Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 46. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Hæstiréttur birt 24. september 2015

84/2015

Tony Omos (Stefán Karl Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

Kærumál. Afhending gagna. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms, þar sem vísað var frá dómi máli á hendur A, meðal annars með skírskotun til þess að krafa sóknaraðila hafi verið nægjanlega skýr og afmörkuð til þess að héraðsdómara hafi verið unnt að taka afstöðu til hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. mars 2014

E-274/2014

Hassan Alhaj (Helga Vala Helgadóttir Bachmann hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hdl)

Stefndu sýknuð af kröfum stefnanda um ógildingu stjórnvaldsákvarðana innanríkisráðuneytis og Útlendingastofnunar varðandi synjun á efnismeðferð hælisumsóknar stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júní 2006

E-6286/2005

Reginald Iheme (Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði dómsmálaráðuneytisins frá 31. ágúst 2005 en með honum var staðfestur úrskurður Útlendingarstofnunar 18. mars s.á. um að synja beiðni stefnanda um hæli á Íslandi sem flóttamanni. Ekki var fallist á kröfuna enda ekki fallist á að úrskurðurinn væri efnislega rangur eins og stefnandi hafði haldið fram. Stefndi var því sýknaður af kröfu stefnanda í málinu.

Hæstiréttur birt 8. desember 2005

499/2005

Reginald Iheme (Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi kröfum R um að viðurkennt yrði að hann nyti réttarstöðu flóttamanns og að honum skyldi veita hæli á Íslandi sem slíkum, sem og kröfu hans um að hann ætti rétt á dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum. Var talið að ákvarðanir um það hvort veita ætti R hæli á Íslandi, hvort sem væri sem pólitískum flóttamanni eða af mannúðarástæðum ættu ekki undir lögsögu dómstóla, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991. Þá taldist R ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að fá viðurkenningu með dómi á því að hann hefði réttarstöðu flóttamanns, en R hafði verið gert að yfirgefa landið áður en úrskurður héraðsdóms var kveðinn upp. Eftir stóð af málsókn R gegn Í krafa hans um að ógiltur yrði úrskurður dómsmálaráðuneytisins þar sem hafnað var kröfum hans um hæli og dvalarleyfi af mannúðarástæðum og honum vísað brott úr landi, meðal annars með þeim réttaráhrifum að honum væri bönnuð endurkoma inn á Schengen-svæðið í þrjú ár.