Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

21 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 48. gr. laga nr. 93/1994 — Lyfjalög

Héraðsdómur Vestfjarða birt 2. júní 2020

S-57/2020

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn Wieslaw Bogumil Nesteruk og Dariusz Nesteruk (Kristján Óskar Ásvaldsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Tveir menn sakfelldir fyrir vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni. Annar að auki dæmdur fyrir umferðarlagabrot.

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

451/2016

Ákæruvaldið gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Xvar sakfelldur fyrir lyfja- og vopnalagabrot með því hafa átt í sölu- og dreifingarskyni nánar tiltekið magn af Ritalin og Ritalin Uno töflum og fyrir að geyma mikið magn skotfæra í ólæstum hirslum á heimili sínu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að J hefði ítrekað brotið gegn ákvæðum lyfjalaga nr. 93/1994, sbr. 1. mgr. 49. gr. laganna. Var refsing J ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Þá voru gerð upptæk 100 stykki af Ritalini sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. september 2016

S-392/2016

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson fulltrúi) gegn Antoni Samúel Sigurðssyni (Þorgils Þorgilsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur á fíkniefnum og að hafa átt í sölu- og dreifingarskyni anabólíska stera, auk þess að hafa geymt miki magn skotfæra í ólæstum hirlum.

Hæstiréttur birt 17. desember 2015

265/2015

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Gísla Val Gíslasyni (Jónas Jóhannsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 21. janúar 2015

19/2015

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X, Y (Páll Arnór Pálsson hrl) og Z (Ólafur Björnsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

LH höfðaði mál fyrir héraðsdómi Suðurlands gegn X, Y og Z fyrir áfengis, lyfja- og tollalagabrot. Í úrskurði héraðsdóms var ákærunni vísað frá dómi þar sem LH hefði brostið heimild til þess að höfða málið í öðru umdæmi án þess að hafa fengið fyrirmæli þar um frá R, sbr. 2. og 4. mgr. 24. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með setningu laga nr. 88/2008 hefði ekki verið breytt því fyrirkomulagi eldri laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að lögreglustjóri höfði einvörðungu mál fyrir þeim héraðsdómi sem ætti lögsögu í umdæmi lögreglustjórans. Var varnarþingsreglum VI. kafla laga nr. 88/2008 leiddi að málið bar að höfða í öðru umdæmi, en það hefði hann gert án þess að R hefði tekið ákvörðun þar um. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Hæstiréttur birt 6. febrúar 2014

457/2013

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir lyfjalagabrot með því að hafa átt 462 stykki af Ritalin Uno, 115 stykki af Ritaline og 105 stykki af Mogadon að hluta til í sölu- og dreifingarskyni, án þess að hafa markaðsleyfi og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar. Einnig að hafa selt og afhent ótilgreindum fjölda einstaklingum sömu lyf án þess að hafa slík leyfi. Þá var X ákærður fyrir vopnlagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum sverð, hljóðdeyfa og riffil. Loks var X ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa aflað sér ávinnings með sölu og dreifingu ótiltekins magns af lyfseðilsskyldum lyfjum. Brot J voru talin sönnuð en þó var lagt til grundvallar að ávinningur hans af sölu og dreifingu lyfseðilsskyldra lyfja hefði aðeins verið hluti af því sem honum var gefið að sök í ákæru. Þá varðaði það J ekki refsingu samkvæmt þeim refsiákvæðum sem vísað var til í ákæru að afla sér hljóðdeyfa án leyfis lögreglu. Var X gert að sæta fangelsi í sex mánuði en refsingin var skilorðsbundin til fimm ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. apríl 2012

S-111/2013

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Frey Magnússyni (Snorri Sturluson hdl) og Ár 2012 og þriðjudaginn 9. apríl og er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur og sem háð er í og Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni og héraðsdómara og kveðinn upp dómur og í sakamálinu nr. 111/2013:  Ákæruvaldið (Anna Barbara Árnadóttir)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur til 3ja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir umferðarlaga-, fíkniefnalaga- og vopnalagabrot. Þá var hann sviptur ökurétti í 3 mánuði og dæmdur til að sæta upptöku á fíknefnum og vopnum.

Hæstiréttur birt 27. september 2012

122/2012

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Brot gegn lyfjalögum og lögum um tóbaksvarnir. Peningaþvætti. Upptaka. Vitni J var sakfelldur fyrir brot gegn lyfjalögum lögum um tóbaksvarnir með því að hafa selt tiltekin lyf í verslun sinni D án þe (Björgvin Þorsteinsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

DF ehf. krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að D ehf. væri óheimilt að nota heitið „DOMUS“ í atvinnustarfsemi sinni og yrði gert að afmá skráningu á heitinu „Domusnova“ hjá hlutafélagaskrá að viðlögðum dagsektum. Byggði DF ehf. á því að notkun D ehf. á orðinu „DOMUS“ fæli í sér brot á vörumerkjarétti hans. Báðir aðilar höfðu milligöngu um kaup og sölu á fasteignum. Í héraðsdómi var talið að vernd sú sem DF ehf. nyti samkvæmt lögum nr. 45/1997 um vörumerki væri bundin við orðmerki hans í heild en ekki tvo aðskilda hluti þess. Þá var ekki talið að uppfylltar væru kröfur 1. mgr. 4. gr. laganna sem lytu að sambærileika og ruglingshættu. Hæstiréttur féllst á með héraðsdómi að DF ehf. hefði ekki leitt líkur að því að hætta væri á ruglingi milli firmaheitis D ehf. og skráðs orðmerkis DF ehf. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu D ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. september 2012

S-384/2012

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Tómasi Pálssyni Eyþórssyni
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að hafa ræktað og haft í vörslum sínum fíkniefni í sölu- og dreifingarskyni.

Héraðsdómur Austurlands birt 29. nóvember 2011

S-50/2011

Ákæruvaldið (Helgi Jensson fulltrúi) gegn Ragnari Ólafi Magnússyni (Helgi Birgisson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur á rúmlega 70 grömmum af marihuana en ósannað taldist að fíkniefnin hefðu verið ætluð í sölu- og dreifingarskyni. Jafnframt sakfelldur fyrir brot á tollalögum og áfengislögum. Refsing dæmd sem hegningarauki, 1 mánaðar fangelsi til viðbótar við fyrri 3ja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið.

Hæstiréttur birt 2. desember 2010

495/2010

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari) gegn Davíð Garðarssyni, Guðlaugi Agnari Guðmundssyni, Pétri Jökli Jónassyni, Ávana-, fíkniefni. Peningaþvætti. Upptaka. Sératkvæði, D, G, P voru ásamt Þ, Æ, sakfelldir í héraði fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl), saman að innflutningi á samtals 1.594,43 g af kókaíni til Íslands frá Spáni (Björgvin Þorsteinsson hrl) og ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. G var jafnframt sakfelldur (Brynjar Níelsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

(Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari) gegn Davíð Garðarssyni (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl.) Guðlaugi Agnari Guðmundssyni og (Björgvin Þorsteinsson hrl.) Ávana- og fíkniefni. Peningaþvætti. Upptaka. Sératkvæði. D, G og P voru ásamt Þ og Æ sakfelldir í héraði fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman að innflutningi á samtals 1.594,43 g af kókaíni til Íslands frá Spáni ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. G var jafnframt sakfelldur fyrir peningaþvætti. P játaði aðild sína í málinu en gerði kröfu fyrir Hæstarétti um mildun refsingar sem tekin var til greina og hann dæmdur í tveggja ára fangelsi. D neitaði sök en í málinu lágu meðal annars fyrir skýrslur um efni hljóðritaðra símtala milli hans og P og var talið að sekt hans í málinu væri sönnuð. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu D og fangelsisrefsingu í fjögur ár og sex mánuði, en í henni voru meðtaldar eftirstöðvar refsingar samkvæmt fyrri dómi, sem D hafði fengið reynslulausn af. G neitaði sök, á öllum stigum málsins. Í upphafi beindist rannsókn málsins að honum einum og var sími hans hlustaður í nokkurn tíma. Þá lá fyrir að þau fíkniefni sem um ræddi í málinu höfðu verið flutt með bifreið sem G hafði haft afnot af. Í framburði Æ hjá lögreglu bar hann því við að G hafi beðið hann um fá mann til að flytja fíkniefnin hingað til lands sem Æ hafi gert. Fyrir dómi lýsti Æ atvikum á annan veg og bar því við að hann og P hafi staðið saman að skipulagi innflutningsins. Í dómi Hæstaréttar var talið að þó fullt tilefni væri til að draga þessa frásögn í efa yrði ekki fram hjá því horft að fyrir dómi hefði enginn borið um hlut G að innflutningnum, sem Æ hafi einn lýst í lögregluskýrslu. Samkvæmt þessu væri ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að G hafi átt þátt að innflutningi fíkniefnanna og var hann sýknaður af þeim sökum. Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu hans fyrir peningaþvætti var hins vegar staðfest og refsing hans ákveðin fangelsi í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. nóvember 2010

S-779/2010

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson fulltrúi) gegn Ara Ívars
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var dæmdur til að greiða 94.000 kr. sekt fyrir vörslur á 1,25 g af amfetamíni og 0,96 g af kannabisefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. júlí 2010

S-500/2010

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Garðarssyni (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl), G og uðlaugi Agnari Guðmundssyni (Björgvin Þorsteinsson hrl), Jóhannesi Mýrdal (Haukur Örn Birgisson hrl), Pétri Jökli Jónassyni (Sveinn Andri Sveinssyni hrl) og Orra Frey Gíslasyni (Jóhann Hafstein hdl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu sakfelldir fyrir hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot með því að flytja til landsins 1.594,43 g af kókaíni frá Spáni.