Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 3. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup
A ehf. höfðaði mál gegn I ohf. og krafðist skaðabóta vegna ákvörðunar I ohf. um að semja ekki við K ehf., síðar A ehf., um leigurými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í kjölfar tilgreindrar samkeppni. I ohf. var sýknað af kröfum A ehf. í héraði og áfrýjaði A ehf. dómi héraðsdóms til viðurkenningar á skaðabótaskyldu I ohf. Fyrir Landsrétti fór fram munnlegur málflutningur um formhlið þess. Í úrskurði Landsréttar var rakið að dómur héraðsdóms hefði verið skipaður tveimur meðdómsmönnum. Samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála væri dómara heimilt að kveðja til tvo meðdómsmenn ef hann teldi þurfa sérkunnáttu í dómi á fleiri en einu sviði. Eins og málið hefði legið fyrir er það var dómtekið í héraði hefði það snúist um viðurkenningu á ætlaðri bótaskyldu I ohf. en A ehf. hefði meðal annars byggt á því að ætluð brot I ohf. á skilmálum samkeppninnar teldust ólögmæt og saknæm háttsemi sem leiddi til skaðabótaskyldu hans. Ekki var talið að sýnt hefði verið fram á hvernig sérþekking annars meðdómsmannsins yrði jafnað til sérkunnáttu sem kynni að þurfa til að leysa úr þeim ágreiningi sem lægi fyrir í málinu, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/1991. Þá hefðu heldur ekki verið færð fyrir því haldbær rök að þörf hefði verið á að skipa dóminn tveimur meðdómsmönnum með sérkunnáttu á fleiri en einu sviði. Var skipun dómsins því talin í andstöðu við 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/1991. Með úrskurði sínum ómerkti Landsréttur héraðsdóm og vísaði málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Deilt var um hvort staðið hafi verið með réttum hætti að samkeppni um leigu á verslunar- og veitingarými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á árinu 2014. Taldi dómurinn m.a. að ekki yrði talið að stefndi hafi brotið rétt á stefnanda með því að hafa ekki farið eftir skilmálum í útboðinu. Var stefndi sem er opinbert hlutafélag sýknaður af kröfum stefnanda.
Stefndi var sýknaður af kröfu um viðurkenningu á rétti til skaðabóta vegna missis hagnaðar stefnanda.
S auglýsti útboð vegna aksturs almenningsvagna innan starfsvæðis síns og milli þess og höfuðborgarsvæðisins. B ehf. var meðal þeirra sem bauð í aksturinn og átti félagið lægsta tilboð í útboðinu sem fólst í boði í fyrsta og annan verkhluta þess sameiginlega, en að auki hafði B ehf. boðið í hvorn verkhluta fyrir sig. Aðilar málsins deildu annars vegar um það hvort hið sameiginlega tilboð B ehf. í fyrst og annan verkhluta hefði verið ógilt og hins vegar hvaða kosti S átti þegar fyrir lá að B ehf. hygðist ekki standa við lægsta tilboð sitt í útboðinu. Hæstiréttur taldi að B ehf. hefði hvorki sýnt fram á að lægsta tilboð hans í útboðinu hefði vegna misritunar eða annarra mistaka orðið annars efnis en til hefði verið ætlast þannig að óskuldbindandi væri fyrir félagið samkvæmt 1. mgr. 32. gr. laga nr. 7/1936 né að tilboðið hefði verið óeðlilega lágt í skilningi 73. gr. laga nr. 84/2007. Hefði lægsta tilboð B ehf. í útboðinu því verið gilt og skuldbindandi fyrir félagið. Með tilkynningu sem send var um að tilboðið væri endanlega samþykkt hefði komist á bindandi samningur milli aðila á grundvelli útboðsgagna og lægsta tilboðs B ehf. Þegar ljóst hefði verið að B ehf. hugðist ekki standa við tilboðið hefði S verið heimilt samkvæmt almennum reglum kröfuréttar um fyrirsjáanlegar vanefndir að lýsa þá þegar yfir riftun samningsins, enda hefði vanefnd B ehf. verið veruleg. Var því fallist á með héraðsdómi að hefði B ehf. beðið tjón í skiptum sínum við S vegna þessa yrðu ástæður þess að öllu leyti raktar til háttsemi hans sjálfs en ekki til S. Var S því sýknað af kröfu B ehf. um skaðabætur. Á hinn bóginn vísaði Hæstiréttur til þess að S hefði ekki verið rétt að ganga til samningskaupa við annan aðila án þess að fram færi almennt eða lokað útboð á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem ekki hefði verið fullnægt skilyrðum c. liðar 33. gr. laga nr. 84/2007. Hefði S átt þess kost að láta fara fram hraðútboð á grundvelli 60. gr. laganna, enda hefði verið fullnægt því skilyrði að fyrir hendi hefðu verið aðstæður sem honum yrði ekki um kennt. Þótt val á þeirri leið hefði að líkindum leitt til þess að akstur samkvæmt nýju útboði hefði ekki getað hafist á þeim degi sem til stóð, og S því þurft að semja tímabundið við annan um þann akstur, væru líkur til að S hefði með þeim hætti getað takmarkað tjón sitt frekar en reyndin varð. Þar sem valin hefði verið leið sem ekki hefði verið fær samkvæmt lögum nr. 84/2007 yrði hann að taka afleiðingum þess og bera sjálfur það tjón sem af kynni að hafa hlotist. Var B ehf. því sýknað af kröfu S.
Útboð á almenningssamgöngum: Í aðalsök var deilt um gildi tilboðs og var stefndi, verkkaupi, sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda, bjóðanda. Í gagnsök var stefndi, bjóðandi, sýknaður af skaðabótakörfu stefnanda, verkkaupa, innan samninga.