Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lög: Lög um búnaðargjald nr. 84/1997

Hæstiréttur birt 2. febrúar 2017

250/2016

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Stjörnugrís hf (Reimar Snæfells Pétursson hrl, Sigurður Kári Kristjánsson hdl, 3. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

Í málinu krafðist S hf. endurgreiðslu búnaðargjalds sem hann greiddi á árunum 2010 til 2014, en fyrir lá að gjaldinu var ráðstafað til Svínaræktarfélags Íslands, Bjargráðasjóðs, Bændasamtaka Íslands og Búnaðarsambands Kjalarnesþings. Reisti S hf. kröfu sína á því að álagning og innheimta gjaldsins samkvæmt lögum nr. 84/1997 um búnaðargjald væri ólögmæt hvað hann varðaði, auk þess sem gjaldtakan stangaðist á við ákvæði stjórnarskrárinnar um félagafrelsi og skattlagningu og bryti í bága við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Talið var að lög nr. 84/1997 mæltu ótvírætt fyrir um að S hf. bæri að greiða búnaðargjald sem næmi veltu af sölu hans á afurðum sínum að teknu tilliti til frádráttar samkvæmt nánar greindum matsreglum ríkisskattstjóra. Hvað varðaði Bjargráðasjóð var litið svo á að hann væri stjórnvald en ekki félag og félli því ekki undir 74. gr. stjórnarskrárinnar. Var Í því sýknað af kröfu S hf. um endurgreiðslu búnaðargjalds, sem hann hafði greitt á framangreindu tímabili, að því leyti sem nam þeim hluta gjaldsins er rann til sjóðsins. Vísað var til þess að þótt reglur um ákvörðun búnaðargjalds og álagningu þess væri í samræmi við fyrirmæli 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar og fullnægði því að formi til kröfum sem gerðar væru til skattlagningar leiddi það eitt og sér ekki til þess að hafnað yrði kröfu S hf. um endurgreiðslu búnaðargjalds að því leyti sem það hefði runnið til Svínaræktarfélags Íslands, Bændasamtaka Íslands og Búnaðarsambands Kjalarnesþings. Talið var að ekki yrði réttlætt að leggja þá skyldu á S hf. að greiða gjald sem ráðstafað hafði verið til þessara þriggja félaga óháð vilja hans með vísan til þess að slíkt hefði verið nauðsynlegt vegna almannahagsmuna eða vegna réttinda annarra, sbr. 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar. Var því fallist á með S hf. að sá hluti gjaldsins hefði farið í bága við það frelsi sem honum væri tryggt í áðurnefndu stjórnarskrárákvæði til að standa utan félaga, sbr. einnig 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með vísan til 1. mgr. 1. gr. laga nr. 29/1995 um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda var Í gert að endurgreiða S hf. þann hluta búnaðargjaldsins.

Hæstiréttur birt 23. ágúst 1999

304/1999

Þór Fannar Ólafsson (Steingrímur Þormóðsson hdl) gegn sýslumanninum á Hvolsvelli (enginn)

Þ kærði úrskurð þar sem hafnað var kröfu hans um að fellt yrði úr gildi fjárnám sem gert var hjá honum fyrir kröfum um opinber gjöld. Talið var að slíkir annmarkar væru á reifun málsins og röksemdafærslu af hendi Þ að ófært væri að taka efnislega afstöðu til krafna hans og var málinu vísað sjálfkrafa frá héraðsdómi.