Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lög: Lög um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 81/1991

Landsréttur birt 17. mars 2023

744/2021

Aurora Leisure ehf (Gestur Jónsson lögmaður) gegn Dalvíkurbyggð (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)

A ehf. höfðaði mál til heimtu skaðabóta vegna tjóns á fasteign sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna leka frá heimæð. Deildu aðilar um eignarhald á heimæðinni og þar með hver hefði borið ábyrgð á viðhaldi hennar. Féllst Landsréttur á með A ehf. að D færi, að undangenginni endurnýjun á kaldavatnslögn inn í fasteign A ehf., líkast til á árinu 2006, með eignarhald á heimæð að fasteigninni. Vatnslögn sú sem um var deilt í málinu greindist í tvennt en óumdeilt var að framangreind endurnýjun fór fram á þeirri grein er lá í norðurálmu fasteignarinnar en að lekinn hefði komið fram í suðurálmu hennar. D var látinn bera hallann af þeirri óvissu sem leiddi af því að upprunalegar teikningar fyrir fasteignina voru ekki lagðar fram í málinu en í dómi Landsréttar kom fram að vatnalög nr. 15/1923 og reglugerð nr. 16/1963 um vatnsveitu Dalvíkur, sem í gildi voru á byggingartíma fasteignarinnar, gerðu ráð fyrir að heimæðar gætu verið fleiri en ein. Var því fallist á með A ehf. að sú grein heimæðarinnar sem leki kom að teldist til hennar og væri þannig í eigu D. Um orsakir lekans á heimæðinni lá ekkert fyrir. Vísaði Landsréttur til þess að efalaust væri að það hefði staðið D nær en A ehf. að upplýsa um málsatvik að þessu leyti. D hefði annast viðgerðina og tekið ákvörðun um að grafa ekki upp lögnina heldur tengja nýja lögn við inntak í húsið. Yrði hann í því ljósi að bera hallann af þeirri óvissu sem uppi væri um ástæður þess að lögnin lak. Um tjónið vísaði Landsréttur til þess að fyrir lægi matsgerð í málinu sem ekki hefði verið hnekkt og yrði hún því lögð til grundvallar tjóni áfrýjanda. Var samkvæmt því fallist á kröfu A ehf. og D dæmdur til að greiða A ehf. umkrafðar skaðabætur með dráttarvöxtum frá þeim tíma er mánuður var liðinn frá því matsgerð dómkvadds matsmanns um fjárhæð tjóns A ehf. var lögð fram í héraði.

Landsréttur birt 26. mars 2021

17/2020

Aurora Leisure ehf (Gestur Jónsson lögmaður) gegn Dalvíkurbyggð og Vátryggingafélagi Íslands hf. til réttargæslu (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)

A krafði D um greiðslu fjárhæðar vegna ætlaðs tjóns á fasteign í sinni eigu sem hann taldi að hefði hlotist af leka frá heimæð. Ágreiningur aðila laut meðal annars að því hvor þeirra færi með eignarhald heimæðarinnar og hefði þar með borið ábyrgð á viðhaldi hennar. Í héraðsdómsstefnu var ekki nánar rökstutt á hvaða grundvelli D væri eigandi heimæðarinnar. Í greinargerð sinni í héraði mótmælti D því að hann væri eigandi heimæðarinnar og vísaði meðal annars til þess að hún hefði frá upphafi verið í einkaeigu og ekki verið endurnýjuð. Við aðalmeðferð málsins í héraði hélt A því fram að með ætlaðri endurnýjun heimæðarinnar hefði D orðið eigandi hennar. Með hinum áfrýjaða dómi var því hafnað að þessar röksemdir kæmust að í málinu þar sem A hefði borið að gera grein fyrir þeim í héraðsdómsstefnu. Í dómi Landsréttar var rakið að A hefði fyrst haft tilefni til að gera nánar grein fyrir því með hvaða hætti D hefði orðið eigandi heimæðarinnar þegar varnir D í héraði lágu fyrir. Skortur á rökstuðningi í héraðsdómsstefnu í þessum efnum yrði því ekki virtur A til vanrækslu. Þá kom fram að A hefði verið heimilt að bregðast við vörnum D tengdum eignarhaldi heimæðarinnar með frekari sönnunarfærslu af sinni hálfu og röksemdum þar að lútandi við meðferð málsins í héraði. Þar sem héraðsdómari hefði ekki tekið efnislega afstöðu til málsástæðu A um eignarhald D á heimæðinni, eins og hún hefði verið nánar rökstudd við dómtöku málsins, var hinn áfrýjaði dómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað með vísan til f-liðar 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991.

Hæstiréttur birt 23. september 2004

112/2004

Jóhannes Kristjánsson (Helgi Jóhannesson hrl, Lárentsínus Kristjánsson hdl) gegn Mýrdalshreppi (Karl Axelsson hrl, Steinar Þór Guðgeirsson hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Málið varðaði álagningarstofn fasteignaskatts og hélt J því fram, að skattlagningarheimild 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, eins og ákvæðið var á þeim tíma sem málið tók til, bryti gegn jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Í dóminum segir að fasteignaskattur hafi upphaflega verið lagður á eigendur fasteigna til þess að standa straum af kostnaði sveitarfélags sem af fasteignum leiðir. Kostnaður sveitarfélags af eign lúti öðrum lögmálum en markaðsverð fasteigna og því þurfi kostnaður sveitarfélags af fasteign utan höfuðborgarsvæðisins ekki að vera minni en höfuðborgarinnar af sambærilegri fasteign. J hafi greitt fasteignaskatt af eigum sínum í samræmi við 3. gr. laga nr. 4/1995, svo sem aðrir fasteignareigendur í sama sveitarfélagi. Álagningarstofn fasteignaskatts hafi farið að lögum, sbr. 40. gr. stjórnarskrár, og var sá sami fyrir alla fasteignareigendur óháð legu eignar. Var því ekki fallist á að umdeild skattlagningarheimild hafi brotið gegn jafnræðisreglu stjórnarskrár og var M sýknaður.

Hæstiréttur birt 13. apríl 2000

474/1999

Jóhann G. Jóhannsson (Hallvarður Einvarðsson hrl) gegn Ingunni Ásgeirsdóttur (Hákon Árnason hrl, Valgeir Pálsson hrl)

Stífla í frárennslislögn frá húsum nr. 7 og nr. 9 við götuna B olli því að í kjallara hússins nr. 7 flæddi upp úr niðurföllum og inn í vinnustofu og lager, sem J leigði af eiganda hússins. J krafðist þess að eigendur hússins nr. 7 og nr. 9 bættu tjón, sem hann hafði orðið fyrir af þessum sökum, en meðal þeirra muna sem skemmdust voru 14 vatnslitamyndir eftir hann sjálfan. Á það var fallist með héraðsdómi að það teldist bilun á lögn í skilningi laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús þegar frárennslislögn sigi svo í jörðu að vatnshalli hennar hyrfi og stífla myndaðist. Tjón hans var talið eigendum hússins nr. 9 óviðkomandi, en eigendur hússins nr. 7 þóttu skaðabótaábyrgir gagnvart J samkvæmt 3. tl. 52. gr. laga nr. 26/1994. Hins vegar var talið að J hefði verið í lófa lagið að afla mats sérfróðra og óvilhallra manna á tjóninu. J hefði vanrækt að tryggja sér slíka sönnun um tjón sitt og var tjón hans vegna vatnslitamyndanna og fleiri muna því talið ósannað. Kröfu hans um miskabætur vegna vatnstjónsins var hafnað, þar sem hún þótti hvorki reist á 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/199356. gr. höfundalaga nr. 73/1972. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna eigendur húsanna nr. 7 og nr. 9 af kröfu J.