Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á ýmsum lögum við stofnun Landbúnaðarstofnunar. nr. 76/2005

Hæstiréttur birt 23. ágúst 2010

420/2010

Guðrún Fjóla Helgadóttir (Magnús Björn Brynjólfsson hrl) gegn Bændasamtökum Íslands og Matvælastofnun (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli G gegn B og M var vísað frá dómi. Í málinu krafðist G þess að B og M yrðu dæmd óskipt til að endurskrá 1,767 kílógramma greiðslumark til framleiðslu sauðfjárafurða sem fært var af ættaróðali á það að nýju, að viðlögðum dagsektum. Til vara krafðist G skaðabóta úr hendi B. Var kröfugerð og málatilbúnaður G talin vera á þann veg að ekki yrði hjá því komist að vísa málinu í heild frá dómi.

Hæstiréttur birt 13. ágúst 2010

383/2010

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl) gegn Dýralæknafélagi Íslands (Hjördís E. Harðardóttir hrl)

Íslenska ríkið kærði úrskurð Félagsdóms, þar sem hafnað var kröfu þess um að máli D á hendur því yrði vísað frá dómi. Ágreiningur málsins var risinn af því hvaða kjarasamningsákvæði ætti að leggja til grundvallar greiðslum og starfskjörum héraðsdýralækna fyrir þá vaktþjónustu sem lög nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr kvæðu á um. Í því sambandi var meðal annars tekist á um þýðingu umrædds kjarasamnings. Samkvæmt þessu var talið að uppi væri ágreiningur milli málsaðila, sem væru samningsaðilar, um skilning á kjarasamningi eða gildi hans að því er tæki til héraðsdýralækna, sem væru félagsmenn í D, sem borinn yrði undir Félagsdóm samkvæmt 3. tölulið 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Yrði aðalkröfu D því ekki vísað frá Félagsdómi á þeim grundvelli að úrlausn hennar ætti ekki undir dóminn. Þá þótti varakrafa D vera í þeim tengslum við aðalkröfuna að henni yrði heldur ekki vísað frá Félagsdómi. Var niðurstaða úrskurðarins staðfest

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2010

E-9054/2009

Guðrún Fjóla Helgadóttir gegn Bændasamtökum Íslands, Matvælastofnun, til réttargæzlu Sigurði Helga Helgasyni, Öldu, Þorsteinsdóttur, Þórsteini, Arnari Jóhannessyni, Sveini, Jóhannessyni, kveðinn, upp svohljóðandi og ú r s k

Stefnanda gerði aðallega kröfu á hendur stefndu in solidum um endurskráningu greiðslumarks til framleiðslu sauðfjárafurða á ættaróðal stefnanda, en til vara skaðabótakröfu á hendur stefnda, Bændasamtökum Íslands. Málinu vísað frá vegna ruglingslegs málatilbúnaðar.