Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 15. gr. laga nr. 76/2001 — Lög um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa
S, A, I og K voru gefin að sök brot gegn lögum um eftirlit með skipum, reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, siglingalögum, lögum um lögskráningu sjómanna, reglugerð um lögskráningu sjómanna og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, sem skipstjórar á hvalaskoðunarbátum G ehf. Með dómi Landsréttar voru þeir allir sakfelldir fyrir að hafa siglt með of marga farþega, en S jafnframt sakfelldur fyrir að bera ábyrgð á því sem fyrirsvarsmaður G. Á hinn bóginn voru S og K sýknaðir af þeim sakargiftum að hafa siglt án þess að lögskrá áhöfn áður en farið var á sjó. Auk þess var A sakfelldur fyrir að hafa siglt án skipskjala, en sýknaður af því að hafa ekki verið með vélavörð um borð. Þeim var öllum gerð sektarrefsing fyrir þá háttsemi sem þeir voru sakfelldir fyrir.
Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi) gegn
Jóhanni S Steindórssyni (enginn)
Sakfellt fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa og lögum um eftirlit með skipum. Sekt.
Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi) gegn
Guðmundi Theódór Ríkharðssyni (enginn)
Sakfellt fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa. Sekt.
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Vigni Arnarsyni
V, sem stýrði báti án vélstjórnarréttinda og var einn í áhöfn var ákærður fyrir brot gegn ákvæði sem var fellt brott úr lögum árið 2001. Þeim þætti var vísað frá dómi. Þá var hann ákærður fyrir að sigla bátnum óhaffærum, þar sem gilt haffærisskírteini var ekki um borð. V bar hjá lögreglu að hafa haft munnlegt leyfi starfsmanns Siglingastofnunar til að sigla skipinu. Var sú staðhæfing ekki könnuð nánar. Var V látinn njóta vafa um þetta og refsing hans látin falla niður.