Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 15. gr. laga nr. 76/2001 — Lög um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa

Héraðsdómur Vestfjarða birt 27. júní 2023

S-64/2023

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Helgi Jensson lögreglustjóri) gegn Magnúsi Kristjáni Guðmundssyni
Lykilorð: Siglingalög.

Ákærði dæmdur fyrir að stjórna skipi án þess að hafa haft á tilteknu tímabili gild skipstjórnarréttindi, en auk þess fyrir að hafa á sama tímabili lögskráð annan mann, sem ekki hafi verið um borð í skipinu sem skipstjóra þess. Þá var hann sakfelldur fyrir að stjórna skipi undir áhrifum fíkniefna. Brot hans fólu í sér skilorðsrof á eldri dómi. Var sá dómur því dæmdur upp og ákærða gert að sæta fangelsi samtals í þrjá mánuði.

Landsréttur birt 16. febrúar 2018

14/2018

Ákæruvaldið gegn Stefáni Guðmundssyni (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður), Aðalsteini Steinþórssyni (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður), Ingimar Eydal Óskarssyni (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Karli Óskari Geirssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

S, A, I og K voru gefin að sök brot gegn lögum um eftirlit með skipum, reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, siglingalögum, lögum um lögskráningu sjómanna, reglugerð um lögskráningu sjómanna og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, sem skipstjórar á hvalaskoðunarbátum G ehf. Með dómi Landsréttar voru þeir allir sakfelldir fyrir að hafa siglt með of marga farþega, en S jafnframt sakfelldur fyrir að bera ábyrgð á því sem fyrirsvarsmaður G. Á hinn bóginn voru S og K sýknaðir af þeim sakargiftum að hafa siglt án þess að lögskrá áhöfn áður en farið var á sjó. Auk þess var A sakfelldur fyrir að hafa siglt án skipskjala, en sýknaður af því að hafa ekki verið með vélavörð um borð. Þeim var öllum gerð sektarrefsing fyrir þá háttsemi sem þeir voru sakfelldir fyrir.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 22. maí 2008

S-26/2008

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Sveini Geir Arnarssyni
Málaflokkur: Önnur sakamál

Karlmaður sakfelldur og dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um lögskráningu sjómanna, siglingalögum, lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna og lögum um atvinnuréttindi vélstjórnarmanna.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 22. maí 2008

S-23/2008

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Arnari Kristjánssyni
Málaflokkur: Önnur sakamál

Karlmaður sakfelldur og dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um lögskráningu sjómanna, siglingalögum, lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna og lögum um atvinnuréttindi vélstjórnarmanna.

Héraðsdómur Austurlands birt 15. janúar 2008

S-4/2008

Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi) gegn Jóhanni S Steindórssyni (enginn)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Sakfellt fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa og lögum um eftirlit með skipum. Sekt.

Héraðsdómur Austurlands birt 15. janúar 2008

S-3/2008

Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi) gegn Guðmundi Theódór Ríkharðssyni (enginn)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Sakfellt fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa. Sekt.

Héraðsdómur Vesturlands birt 9. janúar 2008

S-428/2007

Ákæruvaldið (Daði Jóhannesson fulltrúi) gegn Rafni Guðlaugssyni
Lykilorð: Atvinnuréttindi.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélstjórnarmanna á íslenskum skipum.

Héraðsdómur Vesturlands birt 9. janúar 2008

S-423/2007

Ákæruvaldið (Daði Jóhannesson fulltrúi) gegn Poul Jepsen
Lykilorð: Atvinnuréttindi.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélstjórnarmanna á íslenskum skipum og lögum um lögskráningu sjómanna.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 29. maí 2007

S-50/2007

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Vigni Arnarsyni

V, sem stýrði báti án vélstjórnarréttinda og var einn í áhöfn var ákærður fyrir brot gegn ákvæði sem var fellt brott úr lögum árið 2001. Þeim þætti var vísað frá dómi. Þá var hann ákærður fyrir að sigla bátnum óhaffærum, þar sem gilt haffærisskírteini var ekki um borð. V bar hjá lögreglu að hafa haft munnlegt leyfi starfsmanns Siglingastofnunar til að sigla skipinu. Var sú staðhæfing ekki könnuð nánar. Var V látinn njóta vafa um þetta og refsing hans látin falla niður.