Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (hálfur lífeyrir). nr. 75/2020

Landsréttur birt 2. desember 2022

559/2021

A og Öryrkjabandalag Íslands (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Eftir gildistöku laga nr. 116/2016 hinn 1. janúar 2017 áttu ellilífeyrisþegar ekki lengur rétt á sérstakri uppbót samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, eins og áður hafði verið, heldur áttu þeir aðeins rétt á ellilífeyri samkvæmt 17. og 23. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Staða örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega breyttist hins vegar ekki að þessu leyti við gildistöku laga nr. 116/2016. A og Ö höfðuðu mál gegn T til greiðslu vangreiddra bóta, viðurkenningar á skaðabótaskyldu eða til viðurkenningar á því að T hefði verið óheimilt að skerða tilgreindar greiðslur bóta umfram ákveðin mörk og byggðu á því að ellilífeyrisþegar, sem áður nutu sérstakrar uppbótar samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007, hefðu eftir þá kerfisbreytingu sem gerð var með lögum nr. 116/2016 notið betri réttinda en örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar í sömu stöðu. Fæli það í sér ólögmæta mismunun af hálfu löggjafans. Í dómi Landsréttar var tekið undir það með héraðsdómi að almennt yrði ekki fullyrt að staða örorku- og endurhæfingar- lífeyrisþega hefði samkvæmt lögum verið í öllu tilliti hin sama eða sambærileg stöðu ellilífeyrisþega fyrir gildistöku laga nr. 116/2016. Máli skipti að almenni löggjafinn hefði þegar gripið til mótvægisaðgerða þar sem leitast var við að bæta örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum upp þann mun sem var á stöðu þeirra og ellilífeyrisþega eftir fyrrgreindar kerfisbreytingar. Landsréttur féllst á þá niðurstöðu héraðsdóms að ekki væri unnt að fallast á það að fyrirkomulag ákvörðunar um sérstaka uppbót á lífeyri vegna framfærslu, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007, hefði falið í sér ólögmæta mismunun gagnvart A eða öðrum félagsmönnum Ö og þar með brot gegn 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var niðurstaða hinna áfrýjuðu dóma um sýknu T því staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2022

E-5333/2019

A og Öryrkjabandalag Íslands (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Valdmörk dómstóla og löggjafarvalds. Sýknað af kröfu um viðurkenningu skaðabótaskyldu. Frávísun krafna vegna vanreifunar.

Landsréttur birt 9. nóvember 2021

450/2021

A og Öryrkjabandalag Íslands (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

A og Ö höfðuðu mál gegn T til greiðslu vangreiddra bóta, viðurkenningar á skaðabótaskyldu eða til viðurkenningar á því að T hefði verið óheimilt að skerða tilgreindar greiðslur bóta umfram ákveðin mörk. Kærður var sá hluti héraðsdóms þar sem aðalkröfum A og Ö, varakröfu Ö og þrautavarakröfu A í málinu var vísað frá dómi. Í úrskurði Landsréttar kom fram að dómkröfur A og Ö væru skýrar. Deilt væri um það hvort sett ákvæði laga og reglugerðar hafi á tilgreindu tímabili gengið gegn ákvæðum stjórnarskrár þannig að ekki yrði á þeim byggt að öllu leyti. Þá breytti engu í þessu sambandi þó að einungis væri farið fram á að dómurinn liti að hluta til fram hjá reglu samkvæmt settu lagaákvæði og ákvæðum reglugerðar, enda fengist ekki séð að kröfugerð A og Ö fæli það í sér að viðkomandi dómkröfur þeirra leiddu til þess að dómstóllinn setti nýja lagareglu og færi með því inn á svið löggjafans í andstöðu við 2. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944. Að því virtu þóttu ekki efni til að vísa aðalkröfum A og Ö frá dómi á þeim grundvelli að sakarefnið heyrði ekki undir dómstóla, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá væru heldur ekki efni til að vísa þeim kröfum frá dómi á þeim grunni að þær væru svo vanreifaðar að ekki væru uppfyllt skilyrði d- og e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Í úrskurði Landsréttar kom jafnframt fram að í forsendum hins kærða dóms væri réttilega rakið að þrautavarakrafa A og varakrafa Ö væru reistar á sömu málsástæðum og lagarökum og aðalkröfur þeirra og varakrafa A. Af þeirri ástæðu var ekki talið að þessar kröfur A og Ö væru svo vanreifaðar að það leiddi til frávísunar þeirra frá dómi, sbr. 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Ákvæði hins kærða dóms um frávísun á kröfum A og Ö frá héraðsdómi var því fellt úr gildi og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar.