Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (einföldun og innleiðing ársreikningatilskipunar 2013/34/ESB). nr. 73/2016

Hæstiréttur birt 19. júní 2020

2/2020

Íslenska ríkið (Soffía Jónsdóttir lögmaður) gegn International Seafood Holdings (Birgir Már Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

IS höfðaði mál á hendur Í og gerði þá kröfu að felldur yrði úr gildi úrskurður Ríkisskattstjóra þar sem hafnað var beiðni hans um endurgreiðslu á fjármagnstekjuskatti vegna staðgreiðslu af arði frá dótturfélagi sínu I ehf. Ágreiningurinn laut að því hvort arðgreiðslan hefði fullnægt því skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög að hafa verið úthlutað úr frjálsum sjóði I ehf. og hvort fjármunum félagsins hefði verið úthlutað til hluthafa með lögmætum hætti. Reikningsskil I ehf. voru gerð eftir hlutdeildaraðferð samkvæmt 40. og 41. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga og var sá arður sem greiddur var IS til kominn vegna hagnaðar af rekstri dótturfélaga I ehf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga nr. 138/1994 væri einungis heimilt að úthluta sem arði úr einkahlutafélagi hagnaði samkvæmt samþykktum ársreikningi síðasta reikningsárs, yfirfærðum hagnaði frá fyrri árum og frjálsum sjóðum eftir að dregið hefði verið frá tap sem ekki hefði verið jafnað og það fé samkvæmt lögum eða félagssamþykktum skyldi lagt í varasjóð eða til annarra þarfa. Í lögunum væri enga heimild að finna fyrir frekari úthlutun arðs, þar með talið í tilvikum móðurfélaga sem beittu hlutdeildaraðferð í reikningsskilum sínum á grundvelli laga nr. 3/2006. Taldi Hæstiréttur ekki unnt að fallast á að dómur réttarins 4. desember 2014 í máli nr. 786/2013 ætti að leiða til þeirrar ályktunar við skýringu á ákvæðum 74. gr. laga nr. 138/1994 að bókhaldsleg færsla á hagnaðarhlutdeild frá dótturfélagi geti innan reikningsársins myndað sjóð hjá móðurfélagi til úthlutunar arðs án þess að slík hagnaðarhlutdeild hafi í reynd verið greidd út á milli félaganna í formi arðs. Þótt hlutdeildaraðferð hefði verið beitt við uppgjör samstæðu I ehf. og dótturfélaga þess leiddi slík reikningsskil ekki til rýmri heimilda til arðgreiðslna en mælt væri fyrir um í 1. mgr. 74. gr. laga nr. 138/1994. Var því ekki talið uppfyllt skilyrði fyrir endurgreiðslu staðgreiðsluskatts að um löglega úthlutaðan arð hefði verið að ræða til handa IS.

Landsréttur birt 8. nóvember 2019

847/2018

International Seafood Holdings S.A.R.L (Birgir Már Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

I S.A.R.L. höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu og krafðist þess að felldur yrði úr gildi nánar tilgreindur úrskurður ríkisskattstjóra. Með úrskurðinum hafði ríkisskattstjóri hafnað endurgreiðslu á 5% fjármagnstekjuskatti sem I S.A.R.L. hafði greitt í staðgreiðslu af arði sem félagið fékk greiddan frá dótturfélagi sínu I ehf. Óumdeilt var í málinu að I S.A.R.L. ætti rétt á að draga hinn fengna arð frá tekjum og þar með rétt á endurgreiðslu staðgreiðslufjárhæðarinnar á grundvelli 9. töluliðar 31. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt að því skilyrði uppfylltu að um lögmæta arðgreiðslu hefði verið að ræða. Reikningsskil I ehf. fyrir árið 2011 voru unnin á grundvelli hlutdeildaraðferðar. Það jákvæða eigið fé sem kom fram í ársreikningi I ehf. umrætt ár var að stærstum hluta til komið vegna hlutdeildar félagsins í jákvæðri afkomu dótturfélaga þess sem félagið hafði þó enn ekki notið í formi arðgreiðslna frá dótturfélögunum. Landsréttur taldi að hin reiknaða staða óráðstafaðs eigin fjár I ehf. samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2011, hefði í heild sinni verið frjáls sjóður í skilningi 74. gr. laga nr. 138/1994 og þar með fjármunir sem félaginu hefði verið heimilt að úthluta arði af. Af þeim sökum og þar sem ekki hafi verið formlegir annmarkar á arðsúthlutuninni hafi I S.A.R.L., sem hafði takmarkaða skattskyldu hér á landi, verið heimilt að draga hinn fengna arð frá tekjum á skattframtali 2014 fyrir árið 2013. Var því fallist á kröfu I S.A.R.L. um að úrskurður ríkisskattstjóra yrði felldur úr gildi og kröfu félagsins um endurgreiðslu staðgreidds fjármagnstekjuskatts vegna arðgreiðslunnar á grundvelli 2. mgr. 114. gr. laga nr. 90/2003 og laga nr. 29/1995 um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2018

E-4056/2017

International Seafood Holdings S.A.R.L (Guðmundur Ingvi Sigurðsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ekki var fallist á kröfu stefnanda um að fella úr gildi úrskurð Ríkisskattstjóra og endurgreiða honum umkrafða fjárhæð. Byggði niðurstaðan einkum á því að ekki væru skilyrði til slíkrar endurkröfu samkvæmt 9. tl. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 90/2003 þar sem að arðgreiðsla sú sem um var deilt í málinu gæti ekki talist samrýmast áskilnaði 73., sbr. og 74. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.

Hæstiréttur birt 6. apríl 2017

770/2015

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Gunnari Erni Haraldssyni (Jón Egilsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

G voru gefin að sök umboðssvik með því að hafa sem eigandi, framkvæmdastjóri og stjórnarmaður B ehf. misnotað aðstöðu sína og ráðstafað frá félaginu, til annarra félaga sem G var í fyrirsvari fyrir, 31 fasteign sem félagið leigði út án þess að nokkurt endurgjald hefði komið fyrir og án þess að áhvílandi lánum væri skuldskeytt. Þá var G gefið að sök bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að varðveita bókhaldsgögn B ehf. vegna starfsemi þess á árinu 2008 og nánar tilgreind brot gegn lögum um ársreikninga. Kröfu G um frávísun málsins var hafnað. Þá kom fram í dómi Hæstaréttar að B ehf. hefði hvorki orðið fyrir tjóni né hefði skapast veruleg fjártjónshætta við það eitt að félagið hefði misst eignarhald á umræddum fasteignum, enda yrði með hliðsjón af saksókninni að leggja til grundvallar að engin af eignunum hefði hrokkið fyrir áhvílandi skuldum. Skipti þá engu þótt ekki hefði verið aflað samþykkis veðhafa fyrir skuldskeytingu þannig að B ehf. yrði leyst undan áhvílandi skuldum. Hins vegar hefði ráðstöfunin falið í sér að félagið var svipt leigutekjum af eignunum og þar með rekstrargrundvelli sínum. Var G því sakfelldur fyrir brot gegn 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og var það engu talið breyta um refsinæmi brotsins þótt G hefði notað fjármunina til viðhalds og framkvæmda á eignunum. Þá var G sakfelldur fyrir brot gegn lögum nr. 145/1994 um bókhald með því að hafa látið undir höfuð leggjast að varðveita bókhald B ehf. vegna starfsemi þess á árinu 2008 og fyrir brot gegn lögum nr. 3/2006 um ársreikninga með því að hafa látið undir höfuð leggjast að láta fylgja yfirlit um sjóðsstreymi með ársreikningi félagsins sama ár. Hins vegar var G sýknaður af ákæru um brot gegn síðastgreindum lögum fyrir að hafa greint rangt frá í skýrslu stjórnar í ársreikningi B ehf. 2008 og fyrir rangfærslu í efnahagsreikningi ársreiknings félagsins sama ár. Var refsing G ákveðin fangelsi í 1 ár en meðal annars með hliðsjón af því hve langt var um liðið frá því að brotin voru framin var refsingin skilorðsbundin til tveggja ára.