Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 44. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 3. mars 2011

444/2010

Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn Húsfélögunum Holtateigi 2 - 10, 12 - 16 og 18 – 22 (Árni Pálsson hrl)

A úthlutaði og seldi T ehf. á leigu lóð við götuna H nr. 2-54. T ehf. annaðist síðar framkvæmdir á lóðinni, þ. á m. malbikun götunnar, og seldi íbúðir við H nr. 2-22 á árunum 2002 til 2004. Húsfélögin að H nr. 2-22 höfðuðu mál þetta gegn T ehf. til heimtu skaðabóta innan samninga vegna galla á lagningu vegarins. Deila aðila laut einkum að aðild húsfélagsins í málinu og því hvort ætlaðar skuldbindingar T ehf. um vegagerð á svæðinu hafi verið við A en ekki húsfélögin eða einstaka íbúðareigendur við H. Hæstiréttur taldi að ekki hefði nauðsyn borið til að önnur húsfélög við götuna, en húsfélögin við H nr. 2-22., ættu aðild að málinu. Þá vísaði Hæstiréttur til þess að gatnagerð félli undir lögbundin verkefni sveitarfélaga og að ekkert í samningum T ehf. við einstaka kaupendur íbúða við H nr. 2-22, né öðrum gögnum þar að lútandi, fæli í sér skuldbindingu T ehf. gagnvart húsfélögunum til að annast gatnagerð og lagningu bundins slitlags, sem þau gætu reist skaðabótakröfu sína á. Var T ehf. því sýknað af kröfu húsfélaganna að H nr. 2-22.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 21. apríl 2010

E-229/2009

Húsfélögin Holtateigur 2-10 12-16 og 18-22 (Árni Pálsson hrl) gegn Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars ehf (Hlynur Halldórsson hdl)
Lykilorð: Skaðabætur. Verktakar.

Verktaki hafði fengið úthlutað byggingarreit við Holtateig á Akureyri. Skyldi hann jafnframt sjá um gerð aðkomuleiða og bílastæða. Verktakinn byggði íbúðir á svæðinu og seldi. Fljótlega komu fram töluverðar skemmdir á malbiki og var verktakinn dæmdur til greiðslu bóta vegna þess.

Hæstiréttur birt 9. mars 2006

415/2005

Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn Akureyrarbæ (Björn Lárus Bergsson hrl)

Við úthlutun byggingarreita í Teigahverfi á Akureyri í desember 1998 fékk T ehf. reit við Holtateig. Samkvæmt deiliskipulagi fyrir hverfið bar honum að annast skipulagningu og hönnun reitsins en afmarka mátti innan hans lóðarhluta til einkaafnota hvers húss eða hverrar íbúðar. Eins og ákveðið var í skilmálum vegna úthlutunarinnar bar honum enn fremur að kosta og sjá um ýmsan frágang innan reitsins, fullgera bílastæði, aðkomuleiðir og göngustíga. Innheimti A síðan gatnagerðargjald af reitnum í heild sinni í samræmi við lög og reglugerð þar að lútandi og gjaldskrá um gatnagerðargjald á Akureyri. Af hálfu T ehf. var talið ekki hefði verið heimilt að innheimta hjá honum full gatnagerðargjöld þar sem framkvæmdir, sem gjöldunum hefði verið ætlað að standa undir, hefðu verið unnar á kostnað lóðarhafa. Talið var að ákvörðun um fjárhæð gatnagerðargjalds lyti hefðbundnum skattalegum sjónarmiðum og skyldi byggjast á almennum efnislegum mælikvarða. Lægi ekki annað fyrir en að gjaldið, sem lagt var á T ehf., hefði verið ákveðið á málefnalegan hátt eftir efnislegum mælikvarða og ósannað var að jafnræðis hefði ekki verið gætt við ákvörðun þess. Var A því sýknaður af kröfum T ehf.