Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 23. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 14. júní 2012

563/2011

Halldór J. Júlíusson (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Sveitarfélaginu Álftanesi (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson hrl)

Sveitarfélagið Á var sýknað af kröfu H um skaðabætur vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir er nýtt aðalskipulag sveitarfélagsins fyrir tímabilið 2005 til 2024 tók gildi þar sem ósannað þótti að H hefði orðið fyrir fjártjóni við gildistöku skipulagsins. Þá lá hvorki fyrir að sveitarfélagið hefði valdið H fjártjóni með saknæmri háttsemi er það synjaði hugmyndum H um hagnýtingu á landi hans undir byggingarlóðir né er honum var synjað um leyfi til að reisa þar einbýlishús.

Hæstiréttur birt 10. febrúar 2011

579/2010

Íslenska ríkið (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) gegn Flóahreppi (Óskar Sigurðsson hrl)
Lykilorð: Skipulag. Stjórnsýsla.

Með ákvörðun 29. janúar 2010 synjaði umhverfisráðherra að staðfesta hluta aðalskipulags Flóahrepps 2006–2018 í fyrrum Villingaholtshreppi sem varðaði Urriðafossvirkjun. Ráðherra reisti synjun sína um staðfestingu á því að greiðsla Landsvirkjunar á viðbótarkostnaði sveitarfélagsins við gerð aðalskipulagsins vegna virkjunarinnar hafi verið andstæð ákvæðum þágildandi skipulags- og byggingarlaga 73/1997. F höfðaði mál og krafðist ógildingar á þeirri ákvörðun umhverfisráðherra. Í málinu greindi aðila á um hvort að í 2. og 3. mgr. 19. gr. fyrrgreindra laga hafi falist heimild til þess að synja staðfestingu aðalskipulags að hluta eða hvort lokaorð málsgreinarinnar hafi aðeins átt við um frestun staðfestingar. Hæstiréttur vísaði til þess að samkvæmt 16. gr. laga nr. 73/1997 skyldi í aðalskipulagi fjallað um allt land innan sveitarfélags. Hvergi hafi verið í lögunum að finna heimild til þess að undanskilja ákveðin svæði innan sveitafélags aðalskipulagi. Í 1. og 2. mgr. 20. gr. hafi á hinn bóginn verið að finna þrönga heimild til að fresta gerð aðalskipulagsáætlunar fyrir ákveðið svæði um tilgreindan tíma. Mikilvæg réttaröryggissjónarmið væru að baki því að setja heimildum stjórnvalda til að halda landsvæðum utan aðalskipulags þröng mörk, bæði hvað varðar forsendur slíkra ákvarðana og tímalengd þeirra, enda gæti í þeim falist að þungbær höft væru í reynd lögð á nýtingu viðkomandi svæðis. Yrði að skýra 2. og 3. mgr. 19. gr. laga nr. 73/1997 með hliðsjón af framangreindum ákvæðum þannig að ráðherra væri ekki heimilt að synja um staðfestingu aðalskipulags að hluta. Vísað var til 3. og 4. tl. 34. gr. laganna um greiðslu kostnaðar við gerð aðalskipulags og talið að af þessum ákvæðum og ákvæði 1. mgr. 23. gr. laganna yrði ekki leidd sú niðurstaða að framkvæmdaraðili gæti í engum öðrum tilvikum en greindi í 1. mgr. 23. gr. tekið þátt í kostnaði af gerð skipulags svo fremi sem slík greiðsluþátttaka gengi ekki gegn markmiðum laganna þannig að réttaröryggi í meðferð skipulagsmála yrði tryggt. Í þeim efnum byggði íslenska ríkið á því að ekki væri unnt að leggja til grundvallar að aðalskipulagið hefði gert ráð fyrir Urriðafossvirkjun ef ákvæði um greiðsluþátttöku Landsvirkjunar vegna gerðar aðalskipulagsins hefði ekki verið fyrir hendi. Ekki var fallist á þetta og talið að umrætt ákvæði hefði ekki haft áhrif á hvort gert yrði ráð fyrir virkjun í aðalskipulagi F fyrir fyrrum Villingaholtshrepp. Var því fallist á kröfu F um að ógilda ákvörðun ráðherra.

Hæstiréttur birt 19. júlí 2010

436/2010

Flóahreppur (Óskar Sigurðsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Með ákvörðun umhverfisráðherra 29. janúar 2010 synjaði ráðherra staðfestingar þess hluta aðalskipulags F 2006-2018 í fyrrum Villingaholtahreppi er varðar Urriðafossvirkjun. Í málinu krafðist F þess í fyrsta lagi að ákvörðun umhverfisráðherra yrði ógilt með dómi og í öðru lagi að viðurkennt yrði að ráðherra bæri að staðfesta umrætt aðalskipulag. Í úrskurði héraðsdóms var talið að þar sem F hefði sett fram nýja tillögu að aðalskipulagi sem væri komin í lögformlegt ferli samkvæmt skipulags- og byggingarlögum hefði F ekki lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um kröfur sínar í málinu. Fæli málsókn hans í sér beiðni um lögfræðilega álitsgerð í andstöðu við 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og var málinu vísað frá héraðsdómi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ferli við gerð aðalskipulags væri flókið og tímafrekt. Enda þótt F hefði hafið undirbúning þess að nýju væri ferlinu ekki lokið og væri það á hans valdi hvort því yrði fram haldið. Meðan svo væri, skipti það F máli að lögum að fá úrlausn dómstóla um gildi ákvörðunarinnar og hefði F því lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um fyrri kröfu sína. Var því lagt fyrir héraðsdóm að taka fyrri kröfu F til efnislegrar úrlausnar. Niðurstaða héraðsdóms um að vísa síðari kröfu F frá dómi var hins vegar staðfest, þar sem það leiddi af þrískiptingu ríkisvaldsins, sbr. 2. gr. stjórnarskrárinnar, að almennt væri það ekki á færi dómstóla að taka nýjar ákvarðanir um málefni sem stjórnvöldum væri falið með lögum í stað stjórnvaldsákvarðana, sem ógiltar kynnu að verða með dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2010

E-3297/2010

Flóahreppur gegn íslenzka, ríkinu, kveðinn, upp svohljóðandi, ú r s k u r ð u r og I

Kröfu stefnanda á hendur stefnda um, að ógilt verði ákvörðun stefnda um synjun þess hluta aðalskipulags stefnanda í fyrrum Villingaholtshreppi sem varðar Urriðafossvirkjun og kröfu um að stefnda verði gert að staðfesta aðalskipulag stefnanda í fyrrum Villingaholtshreppi, vísað frá dómi.