Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum nr. 86/2011, um verslun með áfengi og tóbak, með síðari breytingum (heimildir ÁTVR til að hafna áfengi). nr. 69/2014

Hæstiréttur birt 4. desember 2024

19/2024

Dista ehf (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður) gegn Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

D höfðaði mál á hendur Á og krafðist ógildingar á ákvörðunum Á um að fella tvær bjórtegundir úr vöruvali Á og hætta innkaupum þeirra. Byggði D á að Á hefði verið óheimilt að byggja ákvarðanir sínar á framlegð vöru þar sem það viðmið ætti ekki stoð í lögum nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak. Samkvæmt 5. mgr. 11. gr. laganna setur ráðherra nánari reglur um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi. Reglurnar skuli miða að því að tryggja vöruúrval m.a. með hliðsjón af eftirspurn kaupenda, jafnframt því að tryggja framleiðendum og birgjum áfengis möguleika á að koma vörum í sölu í áfengisverslunum. Í 1. mgr. 24. gr. reglugerðar nr. 1106/2015, sem sett var á grundvelli tilvitnaðrar lagagreinar, er miðað við að framlegð skuli ráða vöruvali. Hæstiréttur taldi að þótt vera kynni í einhverjum tilvikum að vöruval á grundvelli eftirspurnar annars vegar og framlegðar hins vegar leiddi til svipaðrar niðurstöðu yrði að líta til þess að umrædd viðmið byggðust á ólíkum forsendum. Þau gætu því leitt til mismunandi niðurstaðna eins og raunin hefði verið í málinu en þær bjórtegundir D sem felldar voru úr vöruvali Á nutu meiri eftirspurnar en tilteknar aðrar vörur sem héldu stöðu sinni á grundvelli meiri framlegðar. Hæstiréttur áréttaði að lagafyrirmæli sem liggi til grundvallar skerðingu á atvinnufrelsi þurfi að vera skýr og verði ekki túlkuð með rýmri hætti, borgurunum í óhag en leitt verði af skýrri orðanna hljóðan eða afdráttarlausum vísbendingum í lögskýringargögnum væri uppi einhver vafi um túlkun. Þau skilyrði væru ekki uppfyllt í málinu og því fallist á það með D að þær ákvarðanir Á sem dómkrafa tók til hefðu verið ólögmætar þar sem þær skorti viðhlítandi stoð í lögum. Þar sem með því hefði verið brotið gegn lagaáskilnaðarkröfu 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar voru þær felldar úr gildi.

Landsréttur birt 9. febrúar 2024

460/2022

Áfengis- (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) og tóbaksverslun ríkisins (Þorvaldur Hauksson lögmaður, 2. prófmál) gegn Dista ehf (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður)

D höfðaði mál á hendur Á og krafðist ógildingar á tveimur ákvörðunum Á um að fella tvær bjórtegundir úr vöruúrvali Á og hætta innkaupum þeirra þar sem þær hefðu ekki náð ákveðnu viðmiði um framlegð. Byggði D á því að Á hefði verið óheimilt að byggja ákvörðunartöku sína á framlegð þar sem það viðmið ætti ekki stoð í lögum nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak, heldur bæri við ákvarðanir þar um að miða við eftirspurn kaupenda, sem vísað væri til í 5. mgr. 11. gr. laga nr. 86/2011, sem réðist af sölumagni hlutaðeigandi vöru. Í niðurstöðu Landsréttar var rakið að samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skyldi ráðherra setja nánari reglur um vöruval, innkaup og dreifingu Á á áfengi, sem skyldu miða að því að tryggja vöruúrval m.a. með hliðsjón af eftirspurn kaupenda, jafnframt því að tryggja framleiðendum og birgjum áfengis möguleika á að koma vörum í sölu í áfengisverslunum. Að virtri breytingarsögu ákvæðisins varð ekki ráðið að ætlun löggjafans hefði verið að hrófla við þeirri áralöngu tilhögun að miða árangursviðmið um vöruval við framlegð. Þá var fallist á með Á að viðmið um framlegð endurspeglaði eftirspurn og væri betur til þess fallið að tryggja vöruúrval í verslunum Á og sölumöguleika birgja. Var einsýnt að mati réttarins að þau sjónarmið sem lágu til grundvallar framlegðarviðmiði teldust málefnaleg og í samræmi við markmið áfengislaga um að Á skyldi starfa með samfélagslega ábyrgð og lýðheilsu að leiðarljósi. Var því niðurstaða Landsréttar að framlegðarviðmiðið ætti sér fullnægjandi lagastoð. Þá var ekki fallist á með D að Á hefði brotið gegn andmælareglu stjórnsýsluréttar, en ljóst þótti að D var kunnugt um þau viðmið sem réðu vöruvali Á og að afstaða hans til þeirra lá fyrir. Var því óþarft að gefa honum kost á að tjá sig um efni málsins. Loks var hafnað málsástæðum D um valdþurrð þess starfsmanns Á sem tók hinar umþrættu ákvarðanir og um brot á öðrum meginreglum stjórnsýslulaga. Var Á því sýknað af kröfum D.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2022

E-3343/2021

Dista ehf (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður) gegn Áfengis- (Rakel Jensdóttir lögmaður) og tóbaksverslun ríkisins (Faxe Witbier)

Tvær tilgreindar ákvarðanir Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins felldar úr gildi á þeim forsendum að þær hafi brotið í bága við 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar og lögmætisreglu íslensks réttar.