Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 30. gr. laga nr. 64/1976 — Ábúðarlög

Hæstiréttur birt 18. mars 2008

301/2007

Þorsteinn Hjaltested (Kristján Þorbergsson hrl) gegn Þorsteini Sigmundssyni (Sigmundur Hannesson hrl)

Ágreiningur aðila snerist um heimild ÞH til að segja upp leigusamningi aðila um landspildu undir smábýli að Elliðahvammi. Var uppsögn ÞH byggð á vanskilum á leigugjaldi. Þar sem svo mikill vafi lék á um greiðsluskyldu ÞS að ekki varð leyst úr nema fyrir dómstólum var ekki fallist á að ÞH gæti byggt uppsögn sína á vanskilum, meðan málinu var ekki endanlega lokið fyrir dómi. Þar sem ÞS greiddi leigugjaldið án tafar, eftir að dómur varð endanlegur, var ekki fallist á að uppsögn ÞH hefði verið lögmæt. Var ÞS sýknaður af kröfu ÞH.

Hæstiréttur birt 6. apríl 2006

170/2006

Þorsteinn Hjaltested (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hdl) gegn Þorsteini Sigmundssyni (Sigmundur Hannesson hrl)

Í málinu deildu ÞH og ÞS um gildi uppsagnar leigusamnings um lóð. Í upphaflegum samningi frá árinu 1931 var mælt fyrir um að mál vegna hans skyldi reka fyrir gestarétti Reykjavíkur. Talið var að samkvæmt lokamálsgrein 224. gr. laga nr. 85/1936 um meðferð einkamála í héraði hafi gestaréttarmeðferð verið felld úr lögum en jafnframt mælt fyrir um að þar sem til slíkrar meðferðar væri vísað skyldi beita almennum reglum um meðferð einkamála. Þá var talið að í samningsákvæðinu hefði falist samkomulag aðila um að varnarþing skyldi vera í Reykjavík. Þá var ekki talið að vísa bæri málinu frá dómi á grundvelli 2. mgr. 18. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála þótt aðrir en ÞS kynnu að telja til eignarréttinda á hinni umdeildu leigulóð, enda var hinn umdeildi leigusamningur milli málsaðila og uppsögn hans var eingöngu beint að ÞS og ljóst að dómur í málinu væri eingöngu bindandi fyrir málsaðila þess. Var kröfu ÞS um frávísun málsins því hafnað og lagt fyrir héraðsdómara að taka það til efnismeðferðar.

Hæstiréttur birt 30. ágúst 2005

340/2005

Erlingur Einarsson (Hilmar Ingimundarson hrl) gegn Guðmundi Ágústi Gunnarssyni (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

E krafðist þess að viðurkenndur yrði forkaupsréttur hans sem ábúanda að jörðinni B og að honum yrði heimilað að ganga inn í kaup G á jörðinni samkvæmt skiptayfirlýsingu dánarbús GM. Skiptastjóri búsins hafði í desember 2003 rift ábúðarsamningi við E vegna vanefnda leigutaka, og samþykkti búið í apríl 2004 að leggja G út jörðina til greiðslu arfs. Sýnt var að viðhald húsa og ræktunar á B hafði verið vanrækt lengi, auk þess sem fyrir lá að E hafði engan búrekstur stundað á B í allmörg ár og var ekki borið við af hans hálfu að heimild hafi verið fengin hjá þeim, sem gátu leyst hann undan þeirri skyldu. Var með vísan til þessa fallist á með G að skiptastjóra hafi verið heimilt að rifta ábúðarsamningnum í desember 2003. Krafa sóknaraðila um að neyta forkaupsréttar samkvæmt ákvæðum jarðalaga átti hvað sem öðru leið ekki stoð í ábúðarsamningi eftir greint tímamark og var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna forkaupsrétti E.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2005

E-4665/2005

Þorsteinn Hjaltested (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hdl) gegn Þorsteini Sigmundssyni (Sigmundur Hannesson hrl)
Lykilorð: Leigusamningur. Uppsögn.
Málaflokkur: Leiguréttur

Stefndi leigði land af landeiganda M og byggði leigugjaldið á leigusamningi frá árinu 1931. M krafði stefnda ekki um leigugjaldið árum saman. M lézt árið 1999 og fékk stefnandi landið að erfðum. Stefndi greiddi eftir sem áður enga leigu og höfðaði stefnandi mál á hendur honum, sem lauk með því, að stefnda var gert að greiða leigu frá þeim tíma, sem stefnandi tók við landinu. Á meðan á því deilumáli stóð sagði stefnandi stefnda upp leigunni með vísan til ákvæðis í leigusamninum. Stefnandi höfðaði sínan mál þetta til viðurkenningar á lögmæti uppsagnarinnar. Sýkna.