Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 105. gr. laga nr. 60/1998 — Lög um loftferðir

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2018

E-2718/2017

Vátryggingafélag Íslands hf (Einar Baldvin Axelsson hrl) gegn Jónum Transport hf (Lilja Jónasdóttir hrl)

Við flutning vöru hingað til lands frá Bandaríkjunum var stefndi talinn hafa gengt hlutverki flutningsmiðlunar. Hann var hins vegar ekki talinn hafa uppfyllt skyldur sínar sem slíkur þar eð hann sá ekki til þess að þeir milliliðir sem hann leitaði til tryggðu að eigandi vörunnar gæti sótt rétt sinn á hendur tjónvaldi yrði tjón á þeirri vöru sem stefndi tók að sér að koma til landsins.

Hæstiréttur birt 18. júní 2015

30/2015

Jónar Transport hf (Lilja Jónasdóttir hrl) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Einar Baldvin Axelsson hrl)

S ehf. fékk greiddar bætur úr farmtryggingu hjá V hf. á grundvelli tjóns af völdum þess að kjötvara, sem J hf. flutti til landsins fyrir S ehf. á grundvelli flutningssamnings, var ekki geymd í kæligeymslu við komu hennar til landsins. V hf. höfðaði mál á hendur J hf. og krafðist greiðslu á grundvelli 1. mgr. 22. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna þeirra bóta sem hann hefði innt af hendi til S ehf. vegna skemmda á kjötvörunni meðan hún var í vörslum J hf. V ehf. byggði á hlutlægri ábyrgðarreglu 1. mgr. 105. gr. loftferðalaga nr. 60/1998, en talið var sú regla kæmi ekki til álita við úrlausn málsins þar sem óumdeilt var að tjónið hefði ekki átt sér stað við loftflutning. V hf. reisti kröfu sína einnig á því að tekja mætti tjónið til rangrar og ófullnægjandi geymslu í vöruhúsi J hf. umrætt sinn og því bæri J hf. skaðabótaábyrgð á tjóninu gagnvart V hf. eftir almennum reglum skaðabótaréttar og sérreglum um skyldur og ábyrgð geymslumanns. Talið var að J hf. hefði samkvæmt flutningssamningnum verið skylt að haga flutningi og geymslu kjötvörunnar þannig að hún yrði ekki fyrir skemmdum af völdum starfsmanna hans og að við meðferð vörunnar hafi J hf. fyrst og fremst borið að fara eftir því sem fram kom á farmbréfi. Ekki var talið að lýsing vörunnar í farmbréfi hefði verið nægileg til þess að J hf. hefði mátt gera sér ljóst að geyma yrði vöruna í kæli. Þá lægi ekki fyrir að hlutaðeigandi vörubretti hefði verið merkt þannig að varan sem á þeim væri skyldi sett í kæligeymslu. Loks var talið ósannað að meðferð J hf. á matvælunum hefði, að þessu gættu, falið í sér brot á lögum nr. 93/1995 um matvæli eða reglum settum samkvæmt þeim. Var J hf. því sýknað af kröfu V hf.

Hæstiréttur birt 13. desember 2007

153/2007

Unnsteinn Örn Elvarsson (Magnús Guðlaugsson hrl) gegn Flugskóla Íslands ehf, Einari Vali Bárðarsyni, Nordic Aviation Insurance Group (Ólafur Eiríksson hrl), Flugskóli Íslands ehf (Jóhannes Ásgeirsson hrl) og Einar Valur Bárðarson (Kristín Edwald hrl)

Í mars 2003, var flugvél sem rekin var af F flogið í jörðina við rætur Eystra-Miðfells. Um borð í henni voru flugneminn U og E sem var flugkennari í þjónustu F. Af slysinu hlaut U líkamstjón og krafðist hann bóta fyrir það í málinu. Sérfróðir meðdómsmenn í héraði komust að þeirri niðurstöðu að slysið yrði rakið til gáleysis E og bæri hann því ábyrgð á slysinu en að F, sem ætti enga sök á slysinu, bæri bótaábyrgð með E sem vinnuveitandi hans. Þessu sakarmati þótti ekki hafa verið hnekkt og var því staðfest í Hæstarétti með vísan til forsendna. Flugvélin var vátryggð hjá N, en samkvæmt vátryggingarskírteini var um að ræða ábyrgðartryggingu vegna notkunar loftfars samkvæmt. 1. mgr. 131. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir, ábyrgðartryggingu flytjanda samkvæmt 3. mgr. sömu lagagreinar, slysatryggingu í einka- og kennsluflugi samkvæmt 5. mgr. hennar og húftryggingu. N byggði á því að U ætti einungis rétt til bóta samkvæmt slysatryggingu í einka- og kennsluflugi þar sem U gæti ekki talist farþegi í flugvélinni í skilningi X. kafla laga nr. 60/1998 og þar með ekki heldur samkvæmt skilmálum vátryggingarinnar. Í málinu lágu fyrir skilmálar fyrir flugvátryggingar einka- og kennsluflugs sem óumdeilt var að giltu um framangreinda vátryggingu. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði að þegar ákvæði þessara skilmála væru virt yrði að gæta að því að þeir sneru eftir heiti sínu gagngert að vátryggingu vegna einka- og kennsluflugs. Með því að sérstök ákvæði væru í skilmálunum um ábyrgðartryggingu vegna farþega gæti þegar af þeirri ástæðu ekki staðist að sá einn teldist farþegi sem bókstafleg skýring á 1. mgr. 86. gr. laga nr. 60/1998 tæki til og ekki yrði rætt um farþega í einka- eða kennsluflugi af þeim sökum. Óumdeilt var að E var einn við stjórn flugvélarinnar þegar hún fórst og varð af þeim sökum að líta á U sem farþega í flugvélinni í skilningi vátryggingarskilmála N og fella hann þannig undir ábyrgðartryggingu til viðbótar lögboðinni slysatryggingu. Þar sem skaðabótaskylda E við U var ekki reist á sérreglum laga nr. 60/1998 var honum ekki gert að greiða bætur, sbr. 3. mgr. 19. gr. og 3. tl. 21. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og hann því sýknaður af kröfu U. Ekki var hins vegar fallist á að fyrrnefnd ákvæði laga nr. 50/1993 tækju til F og bar hann því bótaábyrgð gagnvart U. Var F og N gert að greiða U í sameiningu þjáningabætur og bætur fyrir tímabundið atvinnutjón og varanlega örorku.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. janúar 2007

E-2327/2005

Unnsteinn Örn Elvarsson (Magnús Guðlaugsson hrl) gegn Flugskóla Íslands hf. (Ólafur Eiríksson hrl), Einari Vali Bárðarsyni (Jóhannes Ásgeirsson hdl) og Nordic Aviation Insurance Group (Hulda Árnadóttir hdl)

Flugnemi krafði flugskóla, flugkennara og vátryggingarfélag um skaðabætur vegna flugslyss er kennsluflugvél flaug í jörðina við Eystra Miðfell í Hvalfirði í mars 2003. Flugskólinn og flugkennarinn dæmd skaðabótaskyld, en vátryggingarfélag sýknað þar sem talið var að neminn hafi ekki verið farþegi í flugi í skilningi laga um loftferðir.