Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 3. gr. laga nr. 57/2012 — Lög um réttarstöðu einstaklinga með kynáttunarvanda
Ágreiningur aðila laut að því hvort A hefði með lögmætum hætti sagt S upp störfum sem grunnskólakennari vegna ummæla um samkynhneigð sem hann lét falla á vefmiðli. Með vísan til 1. mgr. 57. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 réðust réttindi og skyldur S í starfi af ákvæðum kjarasamnings, sem hafði verið í gildi þegar S var veitt áminning í febrúar 2012 og síðar sagt upp störfum í júlí sama ár. Litið var svo á að ákvæði kjarasamningsins um heimildir vinnuveitanda til að áminna starfsmann og segja upp ráðningarsamningi vegna ávirðinga, sem ekki gæfu þó tilefni til fyrirvaralausrar brottvikningar, væru bundnar við atriði sem sneru að framferði starfsmannsins í starfi. Þau ákvæði kjarasamningsins um skyldur starfsmanns, sem gætu að nokkru tekið til háttsemi hans utan starfs, væru á hinn bóginn ekki tengdar við heimildir vinnuveitanda til áminningar eða uppsagnar. Talið var að gæta yrði að því að A væri sem stjórnvald bundinn af þeirri meginreglu að lagaheimildar væri þörf fyrir gerðum hans. A hefði beitt áminningu og uppsögn til að bregðast við ummælum sem S hafði látið falla opinberlega utan starfs síns og án tengsla við það. A hefði því vegna ákvæða 2. og 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar þurft ótvíræða stoð fyrir slíkum viðbrögðum í kjarasamningnum. Þar sem að slík stoð hefði ekki verið fyrir hendi var uppsögn S talin ólögmæt.
S var sýknaður af kröfu A um ógildingu úrskurðar I um að ákvörðun A um uppsögn hans úr starfi væri ólögmæt.