Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á almennum hegningarlögum, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur (misnotkun á félagaformi og hæfisskilyrði). nr. 56/2019

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

370/2024

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Armando Luis Rodriguez (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður), Theódóri Heiðari Þorleifssyni (Jónas Örn Jónasson lögmaður), Lúther Ólasyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) og Hermanni Ragnarssyni
Málaflokkur: Skattaréttur

Saksókn í málinu studdist við tvær ákærur. Með fyrri ákærunni var A og T gefið að sök meiri háttar skattalagabrot í rekstri H ehf. Þá var þeim einnig gefið að sök meiri háttar bókhaldsbrot með því að hafa ekki fært tilskilið bókhald fyrir félagið þannig það uppfyllti kröfur laga. T var framkvæmdastjóri félagsins og stjórnarmaður. Hann játaði sök. Saksókn á hendur A tók til þess að hann hefði verið daglegur stjórnandi félagsins. A neitaði sök og hélt því fram að hann hefði ekki að neinu leyti komið að rekstri og skattskilum H ehf. Landsréttur hafnaði þeirri málsvörn. Var litið svo á í ljósi allra aðstæðna að A og T hefðu sameiginlega borið ábyrgð á skattskilum og bókhaldi H ehf. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærðu samkvæmt ákæru. Með seinni ákærunni var L og H gefið að sök meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum, L í rekstri S ehf. og H í rekstri HR ehf., með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum með því að færa til gjalda í skattskilum þess kostnað á grundvelli rangra og tilhæfulausra reikninga frá fjórum tilgreindum félögum og þannig oftalið rekstrargjöld í skattskilum þeirra. Þá var þeim gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum með því að offramtelja innskatt á grundvelli slíkra reikninga frá sömu félögum. A og T voru í seinni ákærunni bornir sökum um hlutdeild í brotum L og H. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að ákæruvaldið hefði sýnt fram á að um ranga og tilhæfulausa reikninga frá félögunum fjórum hefði verið að ræða, þó að því undanskildu að við það yrði að miða að sölureikningar að fjárhæð 6.500.000 krónur hefðu verið réttmættir. Hefði því ekki mátt færa reikningana sem rekstrargjöld í bókhaldi félaganna og ekki nýta innskatt samkvæmt þeim á móti útskatti þeirra. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu L og H og hlutdeild T og A í þeim brotum, svo og um heimfærslu brota þeirra til refsiákvæða. Þá var héraðsdómur staðfestur um refsingu ákærðu að öðru leyti en því að fangelsisrefsing ákærða A var að hluta bundin skilorði og sekt ákærða L lækkuð.

Héraðsdómur Vesturlands birt 29. nóvember 2024

S-276/2023

Héraðssaksóknari (Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Óskari Óskarssyni (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði sakfelldur fyrir meiriháttar skattalagabrot. Fimm mánaða fangelsi skilorðsbundið. Fésekt og vararefsing, en sýknað af kröfu um atvinnurekstrarbann.

Hæstiréttur birt 27. mars 2024

1/2024

A (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn B skiptastjóra þrotabús C ehf (sjálfur)

Skiptastjóri þrotabús C ehf. krafðist þess að A, sem hafði verið fyrirsvarsmaður og eini eigandi félagsins, yrði gert að sæta atvinnurekstrarbanni. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu hins kærða úrskurðar um að skilyrði atvinnurekstrarbanns væru uppfyllt. Þá komst rétturinn að þeirri niðurstöðu með hliðsjón af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu að löggjöf um atvinnurekstrarbann samkvæmt XXVI. kafla laga nr. 21/1991 fæli ekki í sér refsingu eða refsikennd viðurlög. Þá fjallaði rétturinn um afturvirkni laga nr. 133/2022 með hliðsjón af 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar. Með vísan til þeirra ríku þjóðfélagslegu hagsmuna sem bjuggu að baki lögunum var ekki fallist á með A að óheimilt væri að líta til háttsemi hans fyrir gildistöku laganna við ákvörðun um að leggja á atvinnurekstrarbann. Samkvæmt framangreindu var A gert að sæta atvinnurekstrarbanni í þrjú ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. mars 2024

S-3555/2023

Héraðssaksóknari (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn Armando Luis Rodriguez (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður), Theódóri Heiðari Þorleifssyni (Jónas Örn Jónasson lögmaður), Lúther Ólasyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) og Hermanni Ragnarssyni
Málaflokkur: Skattaréttur

Sakfellt fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum.