Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 21. mars 2024.
Mál nr. S-3555/2023:
Héraðssaksóknari
(Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari)
gegn
Armando Luis Rodriguez,
(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Theódóri Heiðari Þorleifssyni,
(Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Lúther Ólasyni
(Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Hermanni Ragnarssyni
(Elva Ósk Wiium lögmaður)
Lykilorð
Sekt. Skattalög. Skilorð. Tekjuskattur. Virðisaukaskattur.
Útdráttur
Sakfellt fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 22. febrúar 2024, er höfðað með tveimur ákærum, útgefnum af héraðssaksóknara.
- Málið var annars vegar höfðað með ákæru, dagsettri 17. maí 2023, á hendur Armando Luis Rodriguez, kt. [...], [...], Theódóri Heiðari Þorleifssyni, kt. [...], [...], Lúther Ólasyni, kt. [...], [...], X, kt. [...], [...], og Hermanni Ragnarssyni, kt. [...], [...], „fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald:
I
Mál 300-2020-000174 – Stapafell ehf.
Á hendur ákærða Lúther sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra félagsins Stapafell ehf., kt. [...], síðar S-fell ehf., nú gjaldþrota, fyrir að hafa:
A
Staðið skil á efnislega röngum skattframtölum Stapafells ehf. gjaldárin 2017 til og með 2019 vegna rekstrarára 2016 til og með 2018 með því að færa til gjalda í skattskilum félagsins kostnað á grundvelli rangra og tilhæfulausra reikninga frá félögunum P ehf., kt. [...], Q ehf., kt. [...], Menn og verk ehf., kt. [...] og Hornbjarg ehf., kt. [...], og þannig oftalið rekstrargjöld í skattskilum félagsins um samtals 75.871.614 krónur á framangreindum rekstrarárum, allt samkvæmt neðangreindri nánari sundurliðun:
B
Staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum Stapafells ehf. vegna uppgjörstímabila maí – júní, júlí – ágúst, september – október og nóvember – desember rekstrarárið 2016, uppgjörstímabila janúar – febrúar, mars – apríl, maí – júní, júlí – ágúst og nóvember – desember rekstrarárið 2017 og uppgjörstímabila mars – apríl, maí – júní, júlí – ágúst, september – október og nóvember – desember rekstrarárið 2018 með því að offramtelja innskatt á grundvelli rangra og tilhæfulausra sölureikninga frá fyrrgreindum félögum P ehf., Q verk ehf., Menn og verk ehf. og Hornbjarg ehf. og þar með vanframtelja virðisaukaskatt vegna sömu uppgjörstímabila sem standa bar skil á í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Með þessu var innskattur félagsins framangreind uppgjörstímabil offramtalinn um samtals 18.209.186 krónur sem sundurliðast nánar svo:
Rekstrarár 2016 Offramtalinn innskattur kr.
| maí – júní | 1.200.000 | |
| júlí – ágúst | 1.440.000 | |
| september – október | 1.548.387 | |
| nóvember – desember | 2.245.161 | |
| 6.433.548 | ||
| Rekstrarár 2017 | Offramtalinn innskattur kr. | |
| janúar – febrúar | 493.548 | |
| mars – apríl | 1.025.806 | |
| maí – júní | 1.354.839 | |
| júlí – ágúst | 1.200.000 | |
| nóvember – desember | 1.083.871 5.158.064 |
| Rekstrarár 2018 | Offramtalinn innskattur kr. | ||
| mars – apríl | 929.032 | ||
| maí – júní | 3.290.323 | ||
| júlí – ágúst | 512.903 | ||
| september – október | 820.800 | ||
| nóvember – desember | 1.064.516 |
6.617.574 Samtals öll árin kr. 18.209.186.
C
Rangfært bókhald Stapafells ehf. vegna rekstrarára 2016 til og með 2018 með því að færa eða láta færa þar til gjalda ranga og tilhæfulausa sölureikninga frá fyrrgreindum félögum, P ehf., Q ehf., Menn og verk ehf. og Hornbjarg ehf., í þeim tilgangi að hækka rekstrargjöld og innskatt í bókhaldi félagsins. Þetta leiddi til þess að bókhald félagsins gaf ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna þess á sömu rekstrarárum þar sem rekstrargjöld þess voru offramtalin um samtals 75.871.614 krónur, sbr. töflu í ákærukafla I-A, og innskattur offramtalinn um samtals 18.209.186 krónur, sbr. töflur í ákærukafla I-B.
D
Á hendur ákærða Armando, sem fór með fyrirsvar og daglega stjórn félagsins Menn og verk ehf., kt. [...], nú afskráð, fyrir hlutdeild í skattalagabrotum ákærða Lúthers samkvæmt A- og B-liðum I. kafla ákæru og fyrir brot gegn lögum um bókhald, eða þar til vara fyrir hlutdeild í bókhaldsbroti ákærða Lúthers samkvæmt C-lið I. kafla ákæru, allt með því að gefa út eða standa að útgáfu rangra og tilhæfulausra sölureikninga til Stapafells ehf. í nafni félagsins Menn og verk ehf. rekstrarárin 2016 og 2017 sem síðan voru færðir og lagðir til grundvallar í bókhaldi og við skattskil Stapafells ehf. sem liður í ofangreindum brotum ákærða Lúthers. Með þessu liðsinnti ákærði Armando ákærða Lúther í verki eða veitti atbeina við framkvæmd skattalagabrota ákærða Lúthers sem lýst er í A- og B-liðum I. kafla ákæru og aðstoðaði við eða stuðlaði að rangfærslu bókhalds Stapafells ehf. með gögnum sem ekki áttu sér stoð í viðskiptum við aðra aðila, eins og lýst er nánar í C-lið I. kafla ákæru. Nánar var hér um að ræða eftirtalda sölureikninga en einnig eru sundurliðuð oftalin rekst[r]argjöld og innskattur hjá Stapafelli ehf. á grundvelli þeirra:
| Reikningar – Menn og verk ehf. | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Dags. | Fjárhæð með VSK kr. | Rekstrargjöld Innskattur | ||||
| 10.11.2016 | 5.800.000 | 4.677.419 | 1.122.581 | |||
| 10.12.2016 | 5.800.000 | 4.677.419 | 1.122.581 | |||
| 15.08.2017 | 6.200.000 | 5.000.000 | 1.200.000 | |||
| 15.12.2017 | 5.600.000 | 4.516.129 | 1.083.871 | |||
| Samtals kr. | 23.400.000 | E | 18.870.967 | 4.529.033 |
Á hendur ákærðu Armando og The[ó]dóri, sem fóru með fyrirsvar og daglega stjórn félagsins Hornbjarg ehf., kt. [...], nú afskráð, fyrir hlutdeild í skattalagabrotum ákærða Lúthers samkvæmt A- og B-liðum I. kafla ákæru og fyrir brot gegn lögum um bókhald, eða þar til vara fyrir hlutdeild í bókhaldsbroti ákærða Lúthers samkvæmt C-lið I. kafla ákæru, allt með því að gefa út eða standa að útgáfu rangra og tilhæfulausra sölureikninga til Stapafells ehf. í nafni félagsins Hornbjarg ehf. rekstrarárið 2018 sem síðan voru færðir og lagðir til grundvallar í bókhaldi og við skattskil Stapafells ehf. sem liður [í] ofangreindum brotum ákærða Lúthers. Með þessu liðsinntu ákærðu Armando og The[ó]dór ákærða Lúther í verki eða veittu atbeina við framkvæmd skattalagabrota ákærða Lúthers sem lýst er í A- og B-liðum I. kafla ákæru og aðstoðuðu við eða stuðluðu að rangfærslu bókhalds Stapafells ehf. með gögnum sem ekki áttu sér stoð í viðskiptum við aðra aðila, eins og lýst er nánar í C-lið I. kafla ákæru. Nánar var hér um að ræða eftirtalda sölureikninga en einnig eru sundurliðuð oftalin rekst[r]argjöld og innskattur hjá Stapafelli ehf. á grundvelli þeirra:
| Reikningar – Hornbjarg ehf. | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Dags. | Fjárhæð með VSK kr. | Rekstrargjöld | Innskattur | |||
| 15.03.2018 | 4.800.000 | 3.870.968 | 929.032 | |||
| 01.05.2018 | 8.500.000 | 6.854.839 | 1.645.161 | |||
| 01.06.2018 | 8.500.000 | 6.854.839 | 1.645.161 | |||
| 01.08.2018 | 2.650.000 | 2.137.097 | 512.903 | |||
| 03.09.2018 | 4.240.800 | 3.420.000 | 820.800 | |||
| 20.12.2018 | 5.500.000 | 4.435.484 | 1.064.516 | |||
| Samtals kr. | 34.190.800 | 27.573.226 | 6.617.574 |
II
Mál 300-2020-000069 – H ehf.
Á hendur ákærða X sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra félagsins A ehf., kt. [...], nú afskráð, fyrir að hafa:
A
Staðið skil á efnislega röngu skattframtali A ehf. gjaldárið 2019 vegna rekstrarárs 2018 með því að færa til gjalda í skattskilum félagsins kostnað á grundvelli sex rangra og tilhæfulausra reikninga frá félaginu Hornbjarg ehf., kt. [...], og þannig oftalið rekstrargjöld í skattskilum félagsins um samtals 24.958.716 krónur á því rekstrarári.
B
Staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum A ehf. vegna allra uppgjörstímabila rekstrarárið 2018 og uppgjörstímabila janúar – febrúar, mars – apríl, maí – júní og júlí – ágúst rekstrarárið 2019 með því að offramtelja innskatt á grundvelli rangra og tilhæfulausra sölureikninga frá félaginu Hornbjarg ehf. rekstrarárið 2018 og frá félaginu MM framkvæmdir ehf., kt. [...], rekstrarárið 2019 og þar með vanframtelja virðisaukaskatt vegna sömu uppgjörstímabila sem standa bar skil á í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Með þessu var innskattur félagsins framangreind uppgjörstímabil offramtalinn um samtals 7.937.310 krónur sem sundurliðast nánar svo:
Rekstrarár 2018 Offramtalinn innskattur kr.
| janúar – febrúar | 352.465 | |
| mars – apríl | 1.163.406 | |
| maí – júní | 512.588 | |
| júlí – ágúst | 529.042 | |
| september – október | 1.962.765 | |
| nóvember – desember | 1.469.826 5.990.092 | |
| Rekstrarár 2019 | Offramtalinn innskattur kr. | |
| janúar – febrúar | 449.754 | |
| mars – apríl | 438.912 | |
| maí – júní | 887.964 |
júlí – ágúst 170.588 1.947.218 Samtals bæði árin kr. 7.937.310.
C
Rangfært bókhald A ehf. vegna rekstrarára 2018 og 2019 með því að færa eða láta færa þar til gjalda ranga og tilhæfulausa sölureikninga frá fyrrgreindum félögum Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. í þeim tilgangi að hækka rekstrargjöld og innskatt í bókhaldi félagsins. Þetta leiddi til þess að bókhald félagsins gaf ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna þess á sömu rekstrarárum þar sem rekstrargjöld þess voru offramtalin um samtals 24.958.716 krónur, sbr. ákærukafla I-A, og innskattur offramtalinn um samtals 7.937.310 krónur, sbr. töflur í ákærukafla I-B.
D
Á hendur ákærðu Armando og The[ó]dóri, sem fóru með fyrirsvar og/eða daglega stjórn félaganna Hornbjarg ehf. og MM framkvæmd[ir] ehf., kt. [...], nú afskráð, fyrir hlutdeild í skattalagabrotum ákærða X samkvæmt A- og B- liðum II. kafla ákæru og fyrir brot gegn lögum um bókhald, eða þar til vara fyrir hlutdeild í bókhaldsbroti ákærða X samkvæmt C-lið II. kafla ákæru, allt með því að gefa út eða standa að útgáfu rangra og tilhæfulausra sölureikninga til A ehf. í nafni félagsins Hornbjarg ehf. rekstrarárið 2018 og í nafni félagsins MM framkvæmdir ehf. rekstrarárið 2019. Reikningarnir voru síðan færðir og lagðir til grundvallar í bókhaldi og við skattskil A ehf. sem liður í ofangreindum brotum ákærða X. Með þessu liðsinntu ákærðu Armando og The[ó]dór ákærða X í verki eða veittu atbeina við framkvæmd skattalagabrota ákærða X sem lýst er í A- og B-liðum II. kafla ákæru og aðstoðuðu við eða stuðluðu að rangfærslu bókhalds A ehf. með gögnum sem ekki áttu sér stoð í viðskiptum við aðra aðila, eins og lýst er nánar í C-lið II. kafla ákæru. Nánar var hér um að ræða eftirtalda sölureikninga en einnig eru sundurliðuð oftalin rekst[r]argjöld og/eða innskattur hjá A ehf. á grundvelli þeirra:
| Reikningar – Hornbjarg ehf. | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Dags. | Fjárhæð með VSK kr. | Rekstrargjöld | Innskattur | |||
| 01.02.2018 | 5.456.000 | 4.400.000 | 1.056.000 | |||
| 04.04.2018 | 5.704.000 | 4.600.000 | 1.104.000 | |||
| 01.06.2018 | 5.200.808 | 4.194.200 | 1.006.608 | |||
| 01.07.2018 | 700.000 | 564.516 | 135.484 |
| 10.10.2018 | 9.920.000 | 8.000.000 | 1.920.000 | |||
| 04.11.2018 | 3.368.000 | 3.200.000 | 768.000 | |||
| Samtals kr. | 30.948.808 | 24.958.716 | 5.990.092 | |||
| Reikningar – MM framkvæmdir ehf. | ||||||
| Dags. | Fjárhæð með VSK kr. | Rekstrargjöld | Innskattur | |||
| 05.01.2019 | 2.375.000 | 1.915.323 | 459.677 | |||
| 05.04.2019 | 2.356.000 | 1.900.000 | 456.000 | |||
| 05.06.2019 | 4.464.000 | 3.600.000 | 864.000 | |||
| 05.08.2019 | 868.000 | 700.000 | 168.000 | |||
| Samtals kr. | 10.063.000 Mál 300-2020-000076 – HR Bygg ehf. | III | 8.115.323 | 1.947.677 |
Á hendur ákærða Hermanni sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra félagsins HR Á hendur ákærða Hermanni sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra félagsins HR Bygg ehf., kt. [...], áður Parket og smíðar ehf., nú gjaldþrota, fyrir að hafa:
A
Staðið skil á efnislega röngu skattframtali HR Bygg ehf. gjaldárið 2019 vegna rekstrarárs 2018 með því að færa til gjalda í skattskilum félagsins kostnað á grundvelli fimm rangra og tilhæfulausra reikninga frá félaginu Hornbjarg ehf., kt. [...], og þannig oftalið rekstrargjöld í skattskilum félagsins um samtals 16.978.000 krónur á því rekstrarári.
B
Staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskatt[s]skýrslum HR Bygg ehf. vegna allra uppgjörstímabila rekstrarárið 2018 og uppgjörstímabila janúar – febrúar, mars – apríl, maí – júní og júlí – ágúst rekstrarárið 2019 með því að offramtelja innskatt á grundvelli rangra og tilhæfulausra sölureikninga frá félaginu Hornbjarg ehf. rekstrarárið 2018 og frá félaginu MM framkvæmdir ehf., kt. [...], rekstrarárið 2019 og þar með vanframtelja virðisaukaskatt vegna sömu uppgjörstímabila sem standa bar skil á í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Með þessu var innskattur félagsins framangreind uppgjörstímabil offramtalinn um samtals 4.997.952 krónur sem sundurliðast nánar svo:
| Rekstrarár 2018 | Offramtalinn innskattur kr. | |
| janúar – febrúar | 382.297 | |
| mars – apríl | 823.462 | |
| maí – júní | 505.449 | |
| júlí – ágúst | 185.821 | |
| september – október | 1.703.690 | |
| nóvember – desember | 473.999 4.074.718 | |
| Rekstrarár 2019 | Offramtalinn innskattur kr. | |
| janúar – febrúar | 173.860 | |
| mars – apríl | 172.893 | |
| maí – júní | 460.531 | |
| júlí – ágúst | 115.950 923.234 | |
| Samtals bæði árin kr. | 4.997.952. C |
Rangfært bókhald HR Bygg ehf. vegna rekstrarára 2018 og 2019 með því að færa eða láta færa þar til gjalda ranga og tilhæfulausa sölureikninga frá fyrrgreindum félögum Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. í þeim tilgangi að hækka rekstrargjöld og innskatt í bókhaldi félagsins. Þetta leiddi til þess að bókhald félagsins gaf ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna þess á sömu rekstrarárum þar sem rekstrargjöld þess voru offramtalin um samtals 16.978.000 krónur, sbr. ákærukafla I- A, og innskattur offramtalinn um samtals 4.997.952 krónur, sbr. töflur í ákærukafla I-B.
D
Á hendur ákærðu Armando og The[ó]dóri, sem fóru með fyrirsvar og/eða daglega stjórn félaganna Hornbjarg ehf. og MM framkvæmd[ir] ehf., fyrir hlutdeild í skattalagabrotum ákærða Hermanns samkvæmt A- og B-liðum III. kafla ákæru og fyrir brot gegn lögum um bókhald, eða þar til vara fyrir hlutdeild í bókhaldsbroti ákærða Hermanns samkvæmt C-lið III. kafla ákæru, allt með því að gefa út eða standa að útgáfu rangra og tilhæfulausra sölureikninga til HR Bygg ehf. í nafni félagsins Hornbjarg ehf. rekstrarárið 2018 og í nafni félagsins MM framkvæmdir ehf. rekstrarárið 2019. Reikningarnir voru síðan færðir og lagðir til grundvallar í bókhaldi og við skattskil HR Bygg ehf. sem liður í ofangreindum brotum ákærða Hermanns. Með þessu liðsinntu ákærðu Armando og The[ó]dór ákærða Hermanni í verki eða veittu atbeina við framkvæmd skattalagabrota ákærða Hermanns sem lýst er í A- og B- liðum III. kafla ákæru og aðstoðuðu við eða stuðluðu að rangfærslu bókhalds HR Bygg ehf. með gögnum sem ekki áttu sér stoð í viðskiptum við aðra aðila, eins og lýst er nánar í C-lið III. kafla ákæru. Nánar var hér um að ræða eftirtalda sölureikninga en einnig eru sundurliðuð oftalin rekst[r]argjöld og/eða innskattur hjá HR Bygg ehf. á grundvelli þeirra:
| Reikningar – Hornbjarg ehf. | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Dags. | Fjárhæð með VSK kr. | Rekstrargjöld | Innskattur | |||
| 20.02.2018 | 2.083.200 | 1.680.000 | 403.200 | |||
| 28.04.2018 | 4.325.120 | 3.488.000 | 837.120 | |||
| 10.06.2018 | 2.740.400 | 2.210.000 | 530.400 | |||
| 14.10.2018 | 8.928.000 | 7.200.000 | 1.728.000 | |||
| 05.11.2018 | 2.976.000 | 2.400.000 | 576.000 | |||
| Samtals kr. | 21.052.720 | 16.978.000 | 4.074.720 | |||
| Reikningar – MM framkvæmdir ehf. | ||||||
| Dags. | Fjárhæð með VSK kr. | Rekstrargjöld | Innskattur | |||
| 12.01.2019 | 981.250 | 791.331 | 189.919 | |||
| 05.03.2019 | 860.000 | 693.548 | 166.452 | |||
| 10.05.2019 | 2.777.600 | 2.240.000 | 537.600 | |||
| Samtals kr. | 4.618.850 | IV | 3.724.879 | 893.971 |
Brot ákærða Lúthers samkvæmt ákæruliðum I-A og I-B, brot ákærða X samkvæmt ákæruliðum II-A og II-B og brot ákærða Hermanns samkvæmt ákæruliðum III-A og III-B teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. (liðir A) 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og (liðir B) 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Brot ákærða Lúthers samkvæmt ákærulið I-C, brot ákærða X samkvæmt ákærulið II- C og brot ákærða Hermanns samkvæmt ákærulið III-C teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 3. tölulið 1. mgr. 37. gr. og 36. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald. Brot ákærðu Armando og Theódórs samkvæmt ákæruliðum I-D, I-E, II-D og III-D teljast varða við (1) 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 7. mgr. 109. gr. sömu laga og 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, (2) 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 7. mgr. 40. gr. sömu laga og 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og (3) aðallega við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 2. mgr. 37. gr. og 36. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald, en til vara við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 3. tölulið 1. mgr. 37. gr. og 36. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald, sbr. 39. gr. sömu laga og 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er einnig krafist að ákærðu verði með vísan til 4. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meiri hluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár.“
- Málið var hins vegar höfðað með ákæru héraðssaksóknara, dagsettri 16. maí 2023, á hendur ákærðu Armando Luis Rodriguez og Theódóri Heiðari Þorleifssyni „fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald í rekstri félagsins Hornbjarg ehf., kt. [...], nú afskráð, ákærða The[ó]dórs sem stjórnarmanns og framkvæmdastjóra félagsins og ákærða Armando sem varastjórnarmanns og daglegs stjórnanda þess með því að hafa:
- Ekki staðið skil á virðisaukaskatt[s]skýrslum félagsins vegna neinna uppgjörstímabila rekstrarárið 2017 og uppgjörstímabilanna janúar – febrúar, september – október og nóvember – desember rekstrarárið 2018 og með því að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskatt[s]skýrslum félagsins vegna uppgjörstímabilanna mars – apríl, maí – júní og júlí – ágúst rekstrarárið 2018 og jafnframt með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil, í samræmi við IX. kafla laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, á virðisaukaskatti sem innheimtur var eða innheimta bar í rekstri félagsins vegna sömu uppgjörstímabila, að frátöldum upp[g]jörstímabilunum mars – apríl 2017 og janúar – febrúar 2018, samtals að fjárhæð 32.384.472 krónur, sem sundurliðast svo:
| janúar – febrúar | kr. | 29.032 | ||
| maí – júní | kr. | 53.226 | ||
| júlí – ágúst | kr. | 48.387 | ||
| september – október | kr. | 29.032 | ||
| nóvember – desember | kr. | 25.232 | ||
| kr. | 184.909 | |||
| 2018 | ||||
| mars – apríl | kr. | 192.764 | ||
| maí – júní | kr. | 8.517.874 | ||
| júlí – ágúst | kr. | 8.947.409 | ||
| september – október kr. | 7.657.733 | |||
| nóvember – desember kr. | 6.883.783 | |||
| gagna vegna rekstrar félagsins. | Samtals kr. | kr. | 32.199.563 32.384.472 |
- Ekki fært tilskilið bókhald fyrir félagið þannig að uppfyllti kröfur laga í meginatriðum og vanrækt að varðveita eða tryggja vörslur fylgiskjala og annarra bókhalds- Brot ákærðu samkvæmt ákærulið 1 teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Brot ákærðu samkvæmt ákærulið 2 teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. og 2. tölulið 37. gr. og 36. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er einnig krafist að ákærðu verði með vísan til 4. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meiri hluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár.“
- Ákærði Armando Luis Rodriguez krefst þess að hann verði sýknaður af ákærum ákæruvaldsins á hendur sér, að öllu leyti eða að hluta, en til vara er krafist lægstu refsingar sem lög leyfa. Þá er þess jafnframt krafist að ákærði verði sýknaður af kröfu ákæruvaldsins um að honum verði bannað að taka þátt í atvinnurekstri, sbr. 4. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga. Loks er krafist hæfilegra málsvarnarlauna til handa skipuðum verjanda hans og að málsvarnarlaun greiðist úr ríkissjóði, að öllu leyti eða að hluta.
- Ákærði Theódór Heiðar Þorleifsson krefst aðallega sýknu af ákærum ákæruvaldsins, en til vara er gerð krafa um vægustu refsingu sem lög leyfa. Þá er þess jafnframt krafist að ákærði verði sýknaður af kröfu ákæruvaldsins um að honum verði bannað að taka þátt í atvinnurekstri, sbr. 4. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga. Loks er þess krafist að allur sakarkostnaður málsins verði greiddur úr ríkissjóði, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda.
- Ákærði Lúther Ólason krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af öllum ákæruliðum. Til vara er þess krafist, verði hann dæmdur til refsingar, að hann hljóti vægustu refsingu sem lög leyfa fyrir þá háttsemi sem dómurinn telur sannað að hann hafi framið og að hún falli niður haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er þess jafnframt krafist að ákærði verði sýknaður af kröfu ákæruvaldsins um að honum verði bannað að taka þátt í atvinnurekstri, sbr. 4. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga. Loks er krafist málsvarnarlauna verjanda ákærða til handa hver sem úrslit málsins verða og að málsvarnarlaun og annar sakarkostnaður málsins verði greiddur úr ríkissjóði.
- Ákærði Hermann Ragnarsson krefst þess að hann verði sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins, þ.m.t. af kröfu um atvinnurekstrarbann. Til vara er þess krafist að ákærða verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa, en kröfu um atvinnurekstrarbann hafnað. Loks krefst ákærði málsvarnarlauna til handa skipuðum verjanda sínum hver sem úrslit málsins verða.
- Hinn 30. ágúst 2023 var mál nr. S-[...]/2023, sem var höfðað á hendur ákærðu Armando Luis Rodriguez og Theódóri Heiðari Þorleifssyni með framangreindri ákæru, dagsettri 16. maí 2023, sameinað þessu máli, sbr. heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Hefur mál nr. S-[...]/2023 samkvæmt því verið rekið sem hluti af þessu máli frá þeim tíma og undir málsnúmeri þessa máls. Er ákærunni í samræmi við það lýst hér að framan, en verjendur ákærðu skiluðu greinargerðum er tóku til beggja ákæranna í málinu.
- Ákærði X lést eftir að mál þetta hafði verið þingfest. Hafði skipaður verjandi hans í málinu skilað greinargerð fyrir hans hönd. Við upphaf aðalmeðferðar þann 21. febrúar 2024 féll ákæruvaldið frá öllum kröfum á hendur X, sbr. 2. mgr. 153. gr. og a-lið 1. mgr., sbr. 2. mgr., 170. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. og ákæruliði A, B og C í II. kafla ákærunnar sem gefin var út 17. maí 2023. Var skipuðum verjanda ákærða ákvörðuð málsvarnarþóknun með bókun í þingbók og greiðist hún úr ríkissjóði, sbr. 2. mgr. 235. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 233. gr. laga nr. 88/2008.
Málsatvik
- Hinn 17. október 2018 var ákærða Theódóri Heiðari Þorleifssyni, sem var skráður stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins Hornbjargs ehf., afhent tilkynning skattrannsóknarstjóra ríkisins þess efnis að hafin væri rannsókn á bókhaldi og virðisaukaskattsskilum félagsins vegna allra uppgjörstímabila rekstrarársins 2017 og uppgjörstímabilanna janúar til og með ágúst rekstrarárið 2018. Bú félagsins var tekið til gjaldþrotaskipta 20. febrúar 2019 og var skiptastjóra búsins send tilkynning um að rannsóknin tæki einnig til virðisaukaskattsskila vegna september til og með desember rekstrarárið 2018. Ákærði Armando Luis Rodriguez var skráður varamaður í stjórn félagsins ásamt því að hafa prókúru á bankareikningi þess frá 25. júní til 23. október 2018. Aðalstarfsemi Hornbjargs ehf. var samkvæmt samþykktum þess málningarvinna, en að auki múrhúðun og uppsetning innréttinga, sem og rekstur fasteigna, bifreiða, lánastarfsemi og skyldur rekstur. Félagið hafði bankareikning, en ekkert bókhald virðist hafa verið fært í því. Í það minnsta var það ekki varðveitt. Enginn var á launum hjá félaginu á árinu 2018.
- Helstu niðurstöður rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins á Hornbjargi ehf. voru þær að ekki hefði verið staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna janúar–febrúar og til og með nóvember–desember 2017 og janúar–febrúar, september–október og nóvember–desember rekstrarárið 2018. Jafnframt hefði verið staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum fyrir uppgjörstímabilin mars–apríl, maí–júní og júlí–ágúst rekstrarárið 2018. Skattskyld velta var talin vera vanframtalin, sem og útskattur. Þá þóttu útgefnir sölureikningar í nafni félagsins á hendur Stapafelli ehf., HR Bygg ehf. og A ehf. ekki eiga við rök að styðjast. Var málið sent til héraðssaksóknara með bréfi, dags. 17. janúar 2020.
Ákæra, dags. 17. maí 2023, ákæruliður I – Stapafell ehf. – ákærðu Lúther, Armando og Theódór
- Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á bókhaldi og skattskilum, þ.m.t. virðisaukaskattsskilum, félagsins Stapafell ehf. hófst formlega þann 31. janúar 2020, en ákærði Lúther Ólason var stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi þess félags. Aðalstarfsemi Stapafells ehf. var almenn verktakastarfsemi í byggingariðnaði o.fl., en samkvæmt framburði ákærða fólst starfsemi félagsins í verktöku og byggingastjórnun.
- Helstu niðurstöður rannsóknar skattrannsóknarstjóra voru þær að staðið hefði verið skil á efnislega röngum skattframtölum vegna rekstraráranna 2016–2018. Jafnframt hefði verið staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna maí–júní, júlí–ágúst, september–október og nóvember–desember rekstrarárið 2016, janúar–febrúar, mars–apríl, maí–júní, júlí–ágúst og nóvember– desember 2017 og mars–apríl, maí–júní, júlí–ágúst, september–október og nóvember–desember 2018.
- Þá var það niðurstaða skattrannsóknarstjóra að útgefnir sölureikningar í nafni P ehf., Q ehf. (áður [...] ehf.), Manna og verka ehf. (áður Bifreiðasalan ehf.) og Hornbjargs ehf. á hendur félaginu, sem færðir hafi verið í bókhaldi félagsins, hafi ekki átt við rök að styðjast og að reikningarnir væru af þeim sökum ekki hæfir sem grundvöllur innskatts og rekstrargjalda. Innskattur og rekstrargjöld hafi þar af leiðandi verið oftalin hjá félaginu.
- Þá þóttu sölureikningar framangreindra félaga ekki uppfylla formskilyrði reglugerðar nr. 50/1993 um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, þar sem meðal annars segir að á sölureikningum skuli koma fram lýsing á því sem selt hefur verið og skuli sú lýsing vera nægilega glögg til að ljóst sé hvort viðskiptin varði skattskylda starfsemi þess sem kaupir. Þá skuli koma fram upplýsingar um magn, einingarverð og heildarverð eftir því sem við verði komið. Embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins vísaði málinu til héraðssaksóknara með bréfi, dags. 21. október 2020.
- Með úrskurði Skattsins, dags. 9. júní 2022, voru opinber gjöld Stapafells ehf. endurákvörðuð vegna gjaldáranna 2017 til og með 2019, þ.e. vegna rekstraráranna 2016 til og með 2018, svo og vegna virðisaukaskatts vegna sömu ára. Var það gert á grundvelli framangreindrar rannsóknar skattrannsóknarstjóra. Við endurákvörðun opinberra gjalda félagsins var frádráttur frá tekjum á skattframtali félagsins 2017, vegna rekstrarársins 2016, lækkaður um 26.806.452 krónur, á skattframtali þess 2018, vegna rekstrarársins 2017, um 21.491.936 krónur og um 27.573.226 krónur á skattframtali félagsins 2019, vegna rekstrarársins 2018. Samtals nam frádráttur frá tekjum félagsins á umræddu tímabili 75.871.614 krónum. Þá var sömuleiðis felldur niður innskattur, alls að fjárhæð 6.433.548 krónur rekstrarárið 2016, alls að fjárhæð 5.158.064 krónur rekstrarárið 2017 og alls að fjárhæð 6.617.574 rekstrarárið 2018. Samtals var um að ræða niðurfellingu á innskatti að fjárhæð 18.209.186 krónur á umræddu tímabili.
- Reikningar útgefnir af Hornbjargi ehf. á hendur Stapafelli ehf. voru alls sex talsins, samtals að fjárhæð 34.190.800 krónur. Voru reikningarnir gefnir út á tímabilinu 15. mars til og með 20. desember 2018. Stapafell ehf. millifærði tvívegis inn á bankareikning Hornbjargs ehf., 3.500.000 krónur þann 21. desember 2018 og 3.000.000 króna þann 29. janúar 2019, eða samtals 6.500.000 krónur. Mismunur á sölureikningum og greiðslum var því 27.690.800 krónur. Í bókhaldi Stapafells ehf. vegna rekstrarársins 2018 voru 3.500.000 krónur færðar sem greiddar en afgangurinn sem ógreiddur.
- Það var niðurstaða skattrannsóknarstjóra að framangreindir sölureikningar Hornbjargs ehf., sem færðir eru sem rekstrargjöld og til innskatts í bókhaldi og skattskilum, þ.m.t. virðisaukaskattsskilum Stapafells ehf., uppfylltu hvorki skilyrði um form né efni sölureikninga og að reikningarnir ættu ekki við rök að styðjast. Var talið að þeir hefðu verið gerðir með það fyrir augum að nýta þá sem rekstrargjöld og innskatt til frádráttar útskatti. Þótti sú staðreynd að enginn hefði fengið greidd laun frá Hornbjargi ehf. á umræddu tímabili meðal annars styðja þá niðurstöðu. Þar sem fyrir hendi væru greiðslur frá Stapafelli ehf. til Hornbjargs ehf., að fjárhæð 6.500.000 krónur, væri þó niðurstaðan sú að þar væri um að ræða möguleg rekstrargjöld, en mismunur útgefinna sölureikninga og rekjanlegra greiðslna nam sem fyrr segir 27.690.800 krónum.
- Vitnið B var skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri P ehf., ásamt því að vera með prókúruumboð frá 18. apríl 2016 til og með 5. apríl 2017, þegar félagið var úrskurðað gjaldþrota. Aðalstarfsemi félagsins fólst í smásölu á fatnaði og fylgihlutum, verslunarrekstri, heildsölu, sem og eignarhaldi og leigu á fasteignum og hvers kyns lausafé, kaupum og sölu á verðbréfum og fasteignum, lánastarfsemi og skyldum rekstri. Fram kemur í gögnum málsins að félagið hafi verið með bankareikninga, en ekkert bókhald hafi verið fært og bókhaldsgögn ekki varðveitt. Fyrir hönd félagsins var ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna maí–júní og júlí–ágúst rekstrarárið 2016. Enginn var á launum hjá félaginu.
- Sölureikningar útgefnir af P ehf. á hendur Stapafelli ehf. voru samtals fjórir. Voru þeir útgefnir á tímabilinu frá 15. júní til 15. ágúst 2016, samtals að fjárhæð 13.640.000 krónur. Voru reikningarnir taldir tilhæfulausir af skattrannsóknarstjóra og til þess gerðir að lækka rekstrargjöld Stapafells ehf. og virðisaukaskattsgreiðslur. Var við það mat litið til þess að vinnu að baki reikningunum var aðeins lýst með almennum hætti, t.d. sem málningarvinnu, engin tilboð hafi legið til grundvallar út- gefnum reikningum og tíma- eða vinnuskýrslur ekki fyrirliggjandi, svo hægt væri að glöggva sig nánar á efni þeirra eða hvaða aðilar hafi átt að hafa unnið þá vinnu sem að baki reikningunum bjó. Þá hafi hluti reikninganna aðeins verið til í afriti. Voru nefndir reikningar hvorki taldir uppfylla skilyrði um form né efni sölureikninga.
- Vitnið C var skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Q ehf. (þá [...] ehf.), ásamt því að vera með prókúruumboð til 10. janúar 2017. Frá þeim tíma var D skráður stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins. Aðalstarfsemi félagsins fólst í alls kyns verktakavinnu í byggingageira, eignarhaldi og leigu á fasteignum og hvers kyns lausafé, kaupum og sölu á verðbréfum og fasteignum, lánastarfsemi o.fl. Félagið var úrskurðað gjaldþrota 18. mars 2020.
- Q ehf. var ekki með bankareikning á því tímabili sem C var skráður sem fyrirsvarsmaður félagsins en fljótlega eftir að D var skráður sem fyrirsvarsmaður var stofnaður bankareikningur. Voru fyrstu hreyfingar á honum um miðjan febrúar 2017. Ekkert bókhald var fært í Q ehf. og bókhaldsgögn ekki varðveitt. Staðin voru skil á virðisaukaskattsskýrslu vegna Q ehf. fyrir október–nóvember 2016. Ekki voru staðin skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna janúar–febrúar til og með maí–júní rekstrarárið 2017. Enginn var launum hjá félaginu.
- Það var niðurstaða skattrannsóknarstjóra að ekki yrði annað ráðið en að útgefnir sölureikningar í nafni Q ehf. á hendur Stapafelli ehf. ættu ekki við rök að styðjast og að þeir hefðu verið gerðir með það fyrir augum að nýta þá sem rekstrargjöld og innskatt til frádráttar útskatti. Þeir sölureikningar sem hér um ræðir eru samtals að fjárhæð 22.850.000 krónur. Tveir þeirra, samtals að fjárhæð 8.000.000 króna, voru dagsettir í nóvember 2016, á þeim tíma er C var skráður fyrirsvarsmaður. Fjórir sölureikningar samtals að fjárhæð 15.850.000 krónur voru dagsettir á þeim tíma er D var skráður fyrirsvarsmaður félagsins. Ekki voru staðin skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna Q ehf. fyrir það tímabil.
- Ákærði Lúther afhenti skattrannsóknarstjóra ríkisins yfirlit sem hann sagði að sýndi greiðslur vegna sölureikninga, útgefinna af Q ehf. Á yfirlitinu er að finna greiðslur og úttektir af bankareikningi Stapafells ehf., alls að fjárhæð 20.826.775 krónur. Greiðslur á skjalinu voru að mati skattrannsóknarstjóra ekki í neinu samræmi við útgefna sölureikninga. Ekki var þar að finna greiðslur til Q ehf. og ekki heldur til fyrirsvarsmanna félagsins. Greiðslur samkvæmt skjalinu eru meðal annars til vitnisins E, samtals að fjárhæð 3.163.000 krónur. Mikill meiri hluti greiðslnanna var framkvæmdur á árinu 2018, eða 16.996.929 krónur. Einnig má í skjalinu sjá úttektir í reiðufé að fjárhæð 13.160.086 krónur, sem ákærði Lúther bar að hann hefði afhent vitninu E. Samkvæmt bókhaldi Stapafells ehf. var hluti sölureikninga, útgefinna af Q ehf., bókaður sem greiddur, en í bókhaldinu voru ekki fyrir hendi gögn til staðfestingar því að svo hafi verið.
- Skoðun skattrannsóknarstjóra á umræddum sölureikningum leiddi í ljós að þeir uppfylltu ekki formskilyrði áðurnefndrar reglugerðar nr. 50/1993 um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, þar sem seldri þjónustu var aðeins lýst með mjög almennum hætti, t.d. sem vinnu við málun. Engin tilboð, tíma- eða vinnuskýrslur voru fyrirliggjandi vegna sölureikninganna þannig að unnt væri að glöggva sig nánar á þeirri vinnu sem að baki þeim væri. Segir í skýrslu skattrannsóknarstjóra að fyrirliggjandi sölureikningar uppfylli hvorki skilyrði um form sölureikninga né efni og að ljóst þyki að í bókhaldi Stapafells ehf. hafi verið færðir sölureikningar sem ekki ættu við rök að styðjast.
- Ákærði Armando Luis Rodriguez var skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Manna og verka ehf. (áður Bifreiðasalan ehf.), ásamt því að vera með prókúruumboð. Aðalstarfsemi félagsins var málningar-, múr- og smíðavinna sem og hver sú starfsemi sem stjórn félagsins á hverjum tíma teldi félaginu til hagsbóta. Félagið átti samkvæmt gögnum málsins bankareikninga, en ekkert bókhald var fært í Mönnum og verkum ehf. og bókhaldsgögn ekki varðveitt. Fyrir hönd félagsins var skilað inn núllskýrslum vegna uppgjörstímabilanna nóvember–desember 2016, júlí–ágúst og nóvember– desember rekstrarárið 2017. Enginn var á launum hjá félaginu á árinu 2016 en tveir einstaklingar á árinu 2017. Voru heildarlaunagreiðslur það ár að fjárhæð 6.373.887 krónur.
- Það var niðurstaða skattrannsóknarstjóra, með vísan til fyrirliggjandi gagna og framburða aðila, að ekki yrði annað ráðið en að útgefnir sölureikningar í nafni Manna og verka ehf. á hendur Stapafelli ehf. ættu ekki við rök að styðjast og að reikningarnir hefðu verið gerðir með það fyrir augum að nýta þá sem rekstrargjöld og innskatt til frádráttar útskatti félagsins. Reikningarnir væru hins vegar ekki tækir til slíks.
- Ákærði Lúther afhenti undir rekstri málsins yfirlit sem hann sagði að sýndu greiðslur frá Stapafelli ehf. vegna sölureikninga félagsins Menn og verk ehf. Ekki var þar um að ræða greiðslur til félagsins sjálfs, en þar var að finna millifærslur til fimm einstaklinga. Enginn þeirra hafði að mati skattrannsóknarstjóra tengsl við Menn og verk ehf. og engin frekari gögn voru, samkvæmt mati skattrannsóknarstjóra, afhent því til staðfestingar að greiðslurnar væru vegna umræddra sölureikninga. Fram kemur einnig í gögnum málsins að sölureikningarnir hafi verið bókaðir sem ógreiddir í bókhaldi Stapafells ehf. Aðeins fannst afrit af sölureikningum, dags, 10. nóvember 2016, 10. desember 2016 og 15. desember 2017, samtals að fjárhæð 17.200.000 krónur.
- Samkvæmt gögnum málsins sýndi skoðun á umræddum sölureikningum að þeir uppfylltu ekki formskilyrði áðurnefndrar reglugerðar nr. 50/1993 um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, þar sem seldri þjónustu var aðeins lýst með mjög almennum hætti, t.d. sem málningarvinnu eða vegna málningarvinnu. Engin tilboð, tíma- eða vinnuskýrslur voru fyrirliggjandi vegna sölureikninganna þannig að unnt væri að glöggva sig nánar á þeirri vinnu sem að baki þeim væri, hver hefði unnið þá vinnu, hvorki í bókhaldi Stapafells ehf. né hjá seljanda þjónustunnar. Segir einnig í skýrslu skattrannsóknarstjóra að fyrirliggjandi sölureikningar uppfylli hvorki skilyrði um form sölureikninga né efni og að ljóst þyki að í bókhaldi Stapafells ehf. hafi verið færðir sölureikningar sem ekki ættu við rök að styðjast.
Ákæra, dags. 17. maí 2023, ákæruliður II – A ehf. – ákærðu Armando og Theódór
- Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á bókhaldi og skattskilum, þ.m.t. virðisaukaskattsskilum, félagsins A ehf. hófst formlega þann 17. október 2019, en X var stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi þess félags. Tilgangur félagsins var samkvæmt samþykktum þess verktaka- og byggingarstarfsemi, lánastarfsemi og kaup og sala eigna.
- Helstu niðurstöður rannsóknar skattrannsóknarstjóra á A ehf. voru þær að staðin hafi verið skil á efnislega röngu skattframtali vegna rekstrarársins 2018. Jafnframt hafi verið staðin skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum vegna allra uppgjörstímabila rekstrarársins 2018 og uppgjörstímabilanna janúar–febrúar, mars–apríl, maí–júní og júlí–ágúst rekstrarárið 2019. Útgefnir sölureikningar í nafni Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. á hendur félaginu ættu sömuleiðis ekki við rök að styðjast og væru ekki hæfir sem grundvöllur innskatts og rekstrargjalda. Þá var talið að innskattur hefði verið oftalinn, sem og rekstrargjöld vegna rekstrarársins 2018. Málinu var vísað til héraðssaksóknara með bréfi, dags. 19. mars 2020.
- Hinn 3. desember 2020 kvað Skatturinn upp úrskurð varðandi endurákvörðun opinberra gjalda félagsins A ehf. Var talið að rekstrargjöld félagsins tekjuárið 2018 hafi verið offramtalin um sem næmi 24.958.716 krónum. Innskattur félagsins vegna ársins 2018 var sömuleiðis talinn hafa verið offramtalinn um sem nemur 5.990.092 krónum og um 1.947.218 krónur fyrir tímabilið janúar–ágúst 2019, eða samtals 7.937.310 krónur. Var tekjuskattsstofn félagsins hækkaður til samræmis við þetta og innskattur lækkaður.
- Var meðal annars litið til þess við endurákvörðun opinberra gjalda A ehf. að samkvæmt framburði fyrirsvarsmanns félagsins væru ekki fyrirliggjandi tilboðsgögn, vinnuskýrslur, samningar og þess háttar á bak við sölureikninga, útgefna af Hornbjargi ehf. og MM framkvæmdum ehf. á hendur félaginu á árunum 2018 og 2019. Um var að ræða sex sölureikninga sem útgefnir voru af Hornbjargi ehf. á hendur félaginu á tímabilinu 1. febrúar til 4. nóvember 2018, samtals að fjárhæð 30.948.808 krónur, og fjóra sölureikninga sem gefnir höfðu verið út af MM framkvæmdum ehf. á hendur félaginu á tímabilinu 5. apríl til 5. ágúst 2019, samtals að fjárhæð 10.063.000 krónur. Allir voru reikningarnir gjaldfærðir í bókhaldi A ehf. og innskattaðir. Ekki þótti sýnt fram á að reikningarnir hefðu verið greiddir. Þóttu áðurnefndir reikningar Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. af framangreindum sökum tilhæfulausir og meðal annars af þeim ástæðum óheimilt að telja þá til rekstrargjalda A ehf. eða að nýta innskatt af þeim við uppgjör virðisaukaskatts.
- Var meðal annars á það bent í úrskurði ríkisskattstjóra að í fyrirliggjandi sölureikningum, útgefnum í nafni Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf., hefði þeirri vinnu sem rukkað var fyrir verið lýst með mjög almennum hætti, þ.e. tilgreint að um hafi verið að ræða vinnu við smíðar. Þá hafi engar tíma- eða vinnuskýrslur verið fyrirliggjandi vegna sölureikninganna í bókhaldi A ehf., svo hægt væri að glöggva sig nánar á efni þeirra, auk þess sem þær hafi ekki fengist afhentar hjá meintum seljendum þjónustunnar. Loks þóttu framangreindir sölureikningar ekki vera í samræmi við ákvæði áðurnefndrar reglugerðar nr. 50/1993 varðandi form og efni sölureikninga.
- Félaginu Hornbjargi ehf. hafa verið gerð skil hér að framan. Ákærði Theódór var skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri MM framkvæmda ehf., ásamt því að vera með prókúruumboð. Aðalstarfsemi félagsins var bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og skyld þjónusta, svo og umsýsla eigna. Einungis var gerð grein fyrir skattskyldri veltu hjá félaginu og útskatti á virðisaukaskattsskýrslu vegna janúar– febrúar 2019. Þá voru launagreiðslur hjá félaginu óverulegar á tímabilinu frá janúar til maí 2019.
- Ákæruvaldið hefur sem fyrr segir fallið frá ákæru á hendur fyrirsvarsmanni A ehf. sem lést, eins og áður segir, eftir þingfestingu málsins. Ákærðu Theódóri og Armando er eftir sem áður gefin að sök hlutdeild í meintum brotum hans, sem lýst var í ákæruliðum A, B og C í II. kafla ákærunnar sem gefin var út 17. maí 2023, sbr. ákærulið D í þeim kafla, en þessum ákæruliðum er öllum lýst hér að framan í um- fjöllun um nefnda ákæru.
Ákæra, dags. 17. maí 2023, ákæruliður III – HR Bygg ehf. (áður Parket og smíðar
ehf.) – ákærðu Hermann, Armando og Theódór
- Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á bókhaldi og skattskilum félagsins HR Bygg ehf., þ.m.t. virðisaukaskattsskilum, hófst formlega þann 15. september 2019, en ákærði Hermann var stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi þess félags. Helstu niðurstöður þeirrar rannsóknar voru þær að staðið hefði verið skil á efnislega röngu skattframtali vegna rekstrarársins 2018. Jafnframt hefði verið staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum vegna allra uppgjörstímabila rekstrarársins 2018 og uppgjörstímabilanna janúar–febrúar, mars–apríl, maí–júní og júlí– ágúst rekstrarárið 2019. Útgefnir sölureikningar í nafni Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. á hendur félaginu ættu sömuleiðis ekki við rök að styðjast og væru ekki hæfir sem grundvöllur innskatts og rekstrargjalda. Þá var það niðurstaða skattrannsóknarstjóra að innskattur hefði verið oftalinn, sem og rekstrargjöld vegna rekstrarársins 2018. Tölulegar niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að offramtalin rekstrargjöld á rekstrarárinu 2018 næmu 16.978.000 krónum og offramtalinn innskattur á tímabilinu frá 2018 til og með ágúst 2019 samtals 4.997.952 krónum. Málið var sent héraðssaksóknara með bréfi, dags. 8. apríl 2020.
- Með úrskurði Skattsins, dags. 7. janúar 2021, voru opinber gjöld HR Bygg ehf. endurákvörðuð fyrir gjaldárið 2019, vegna ársins 2018, og vegna fjárhæða virðisaukaskatts fyrir árin 2018 og 2019. Var það gert á grundvelli áðurnefndrar rannsóknar skattrannsóknarstjóra, þ. á m. á þeim forsendum að alls níu reikningar útgefnir af Hornbjargi ehf. og MM framkvæmdum ehf. á hendur félaginu væru tilhæfulausir. Var meðal annars lagt til grundvallar að reikningarnir hefðu verið gerðir með það fyrir augum að lækka rekstrargjöld og nýta innskatt til frádráttar útskatti HR Bygg ehf. Var á það bent að veittri þjónustu hefði aðeins verið lýst með almennum hætti, svo sem smíðavinnu, engin gögn, hvorki samningar né tímaskýrslur, hefðu fylgt reikningum, og ekki lægju fyrir upplýsingar um þá aðila sem áttu að hafa innt umrædda vinnu af hendi. Þá hafi eigi heldur legið fyrir upplýsingar um að greiðslur hafi átt sér stað vegna umræddra sölureikninga.
- Sölureikningar Hornbjargs ehf. á hendur HR Bygg ehf. voru alls sex talsins. Voru þeir gefnir út á tímabilinu 20. febrúar til 5. nóvember 2018, samtals að fjárhæð 21.052.720 krónur að teknu tilliti til leiðréttingar 8. ágúst sama ár. MM framkvæmdir ehf. gáfu út þrjá sölureikninga á hendur HR Bygg ehf. á tímabilinu 12. janúar til 10. maí 2019, samtals að fjárhæð 4.618.850 krónur. Rekstrargjöld HR Bygg ehf. rekstrarárið 2018 voru að mati ákæruvaldsins oftalin um sem nemur 16.978.000 krónum. Offramtalinn innskattur HR Bygg ehf. var talinn nema 4.074.718 krónum vegna ársins 2018 og 923.234 krónum vegna tímabilsins janúar–ágúst 2019, eða samtals 4.997.952 krónum.
Afstaða ákærðu til þess hvort um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða
- Fyrirsvarsmenn félaganna Hornbjarg ehf., Stapafell ehf., A ehf., HR Bygg ehf., P ehf., Menn og verk ehf. og MM framkvæmdir ehf. mótmæltu því allir við rannsókn málsins og fyrir dómi að um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða, en fyrirsvarsmaður Q ehf. gaf ekki skýrslu fyrir dómi. Svöruðu fyrirsvarsmenn nefndra félaga því til að reikningarnir hefðu verið gefnir út vegna vinnu sem raunverulega hefði verið unnin. Reikningarnir hefðu sömuleiðis verið greiddir, að verulegu leyti með reiðufé, en einnig millifærslum og að nokkru leyti með skiptivinnu.
Framburðir ákærðu og vitna
Framburður ákærða Lúthers
- Ákærði Lúther Ólason kvaðst fyrir dómi vera byggingarfræðingur og húsasmíðameistari að mennt. Hann hefði starfað sjálfstætt árið 2016, en unnið hjá öðrum á árunum 2017 og 2018. Ákærði kvaðst vera eigandi, stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi hjá Stapafelli ehf. Félagið hefði ekki haft aðra starfsmenn en hann, en hann hefði mest starfað sem byggingarstjóri og ráðið undirverktaka til að sinna öðrum verkþáttum. Ákærði mótmælti því fyrir dómi að félagið hefði móttekið tilhæfulausa reikninga. Þá greindi hann frá því að utanaðkomandi aðili hefði fært bókhald fyrir félagið og annast um skattskil.
- Ákærði sagði að vitnið E hefði unnið fyrir Stapafell ehf., ásamt syni sínum, vitninu B. Ákærði kvaðst hafa sagt að hann þyrfti að fá reikning í bókhald Stapafells ehf. og honum þá verið afhentir þeir reikningar sem um ræðir í málinu. Reikningar frá félögunum P ehf. og Q ehf. (áður [...] ehf.) væru samkvæmt því til komnir vegna vinnu E og B, svo og vegna vinnu D. Sagði ákærði mikið traust hafa ríkt á milli hans og E, sem hefði verið í forsvari fyrir hina gagnvart honum.
- Ákærði kannaðist við sölureikninga, útgefna af félaginu P ehf. á hendur Stapafelli ehf. í júní, júlí og ágúst 2016. Hann mundi þó ekki eftir því hver hefði afhent honum þá, en það hefði annað hvort verið E eða B. Sagði ákærði að þeir hefðu í mörg ár unnið sem undirverktakar á vegum Stapafells ehf. við að mála smáhýsi fyrir J og stundum fyrir K. Þá hafi þeir unnið fyrir sveitarfélagið L á [...] við viðhald og viðgerðir á grunnskóla, félagsheimili og bæjarskrifstofum. Um málningarvinnu og múrviðgerðir hefði verið að ræða.
- Sagði ákærði að fábrotin gögn hefðu verið að baki þeim reikningum sem hann hefði móttekið, en E hefði haldið utan um tíma í bók. Vinna fyrir L hefði mest verið unnin í tímavinnu en vinna fyrir J á föstum verðum. E hefði komið til hans og þeir fundið út úr málunum í sameiningu. Sagði ákærði að greitt hefði verið fyrir vinnuna með reiðufé, sem hann hafi afhent E eða B, eða millifærslum á annan þeirra eða aðila sem nákomnir voru þeim. Kvað ákærði Stapafell ehf. ekki hafa fengið kvittanir fyrir þessum greiðslum.
- Ákærði kvaðst aldrei hafa hitt D, fyrirsvarsmann Q ehf., sem hafi unnið með þeim E og B. Ákærði kvað þá E, B og félaga hafa verið að vinna úti á landi, en hann verið í Reykjavík. Hann hefði sem fyrr segir beðið E um reikninga og hann þá komið með þá reikninga sem um ræðir. Ákærði kvaðst ekki vita hver hefði gert umrædda reikninga en E hafi afhent honum þá. Sama vinna hafi legið að baki þessum reikningum og reikningunum frá P ehf., en engin frekari gögn hafi verið þeim til grundvallar. Sagði ákærða að reikningarnir hefðu verið greiddir með millifærslum og reiðufé, sem ákærði hefði í flestum tilvikum afhent E, en stundum B eða D.
- Ákærði Lúther bar jafnframt fyrir dómi að vitnið E hefði komið fram fyrir Menn og verk ehf. (áður Bifreiðasalan ehf.). Sömu menn hefðu unnið með E fyrir þetta félag. Nánar aðspurður sagði ákærði að meðákærði Armando hefði einnig verið að vinna með E og haft menn með sér. Kannaðist ákærði við reikninga sem útgefnir höfðu verið af félaginu á hendur Stapafelli ehf. Kvaðst hann halda að meðákærði Armando hefði gefið reikningana út, en hann eða E hefðu afhent honum reikningana. Þeir hefðu unnið við alls konar verk á vegum Stapafells ehf., þ. á m. við veitingastað á [...] fyrir M ehf. Frekari gögn hefðu ekki legið að baki reikningunum, en þeir hefðu verið greiddir með millifærslum og reiðufé. Millifærslur hefðu átt sér stað að beiðni E og B.
- Ákærði kvað meðákærða Armando hafa verið í forsvari fyrir félagið Hornbjarg ehf. en E hefði eitthvað verið með honum líka. E hefði séð um að allt væri í lagi, en Armando hefði verið í forsvari fyrir „útlendingahersveit“ sem hefði unnið fyrir Stapafell ehf. í N. Um 6–10 menn hefði verið að ræða á hverjum tíma, en hann hefði fengið menn eftir þörfum. E hefði einnig tekið einhvern þátt í verkinu. Ákærði kvaðst lítil samskipti hafa haft við meðákærða Theódór, en þó hefði hann þurft að semja við hann.
- Greindi ákærði Lúther frá því fyrir dómi að vitnið F hefði verið verkstjóri á verkstað og haldið utan um tíma þeirra sem unnu við verkið í N. Sjálfur kvaðst hann hafa verið byggingarstjóri en hann hefði að mestu verið að vinna annars staðar. Kvaðst hann hafa móttekið reikninga, útgefna af Hornbjargi ehf., frá meðákærða Armando, en engin gögn hefðu verið að baki þeim. Reikningar Hornbjargs ehf. hefðu verið greiddir með millifærslum og reiðufé, auk þess sem til hefði staðið að greiða með skiptivinnu sem aldrei hefði farið fram.
- Ákærði Lúther lýsti verkefnum Stapafells ehf. fyrir N, en um hafi verið að ræða múr- , málningar- og smíðavinnu. Um umfangsmikið verkefni hafi verið að ræða sem hafi orðið stærra en áætlað hafði verið vegna óvæntra þátta. Verkefnið hafi verið unnið af meðákærða Armando og vitninu E og mönnum á vegum Armando. Þeir hafi komið fram sem undirverktakar Stapafells ehf., en verkstjórinn, vitnið F, hafi séð um eftirlit. Sagði ákærði það alvanalegt að verktakafyrirtæki semdu við undirverktaka um að annast tiltekna þætti í verki. Sagði ákærði að ekkert samningssamband hefði verið á milli Hornbjargs ehf. og N, en Hornbjarg ehf. hefði gert reikning á Stapafell ehf. sem hefði svo rukkað sinn viðsemjanda, N.
Framburður ákærða Hermanns
- Ákærði Hermann Ragnarsson kvaðst fyrir dómi vera smiður og húsasmíðameistari að mennt og hefði starfað sem slíkur í um 32 ár. Hann hefði verið eigandi, stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi HR Bygg ehf. (áður Parket og smíðar ehf.) í 16 eða 17 ár, en félagið hefði unnið við almenna smíðavinnu. Kvaðst hann jafnframt eiga RH smíðar ehf. Hélt ákærði að hann hefði verið launamaður hjá HR Bygg ehf. Ákærði kvaðst sjálfur hafa skilað inn virðisaukaskattsskýrslum fyrir félögin.
- Greindi ákærði frá því að Hornbjarg ehf. hefði unnið sem undirverktaki fyrir HR Bygg ehf., nánar tiltekið við verk sem RH smíðar ehf. hafi tekið að sér. Hornbjarg ehf. hafi sent reikninga vegna þeirrar vinnu á HR Bygg ehf. Kvaðst ákærði hafa verið í sambandi við meðákærða Theódór fyrir hönd Hornbjargs ehf. en þó ekki í mjög miklum samskiptum. Kvaðst hann einnig hafa verið í samskiptum við meðákærða Armando, sem hafi komið fram sem verkstjóri og verið meira á verkstað en Theódór. Ákærði kvaðst hafa verið í sambandi við Theódór varðandi greiðslur.
- Ákærði Hermann kannaðist við reikninga, útgefna af Hornbjargi ehf. á hendur HR Bygg ehf., og greindi frá því að meðákærði Theódór hefði gert reikningana, en meðákærði Armando afhent ákærða þá. Vinnan hefði verið unnin á árinu 2018 við [...], þ.e. þakviðgerðir, þakkant og þakrennur o.fl., og að [...] í Reykjavík, meðal annars við steyptar svalir, þakkant og þakrennur og við viðgerðir á húsinu að utanverðu.
- Kvaðst ákærði Hermann hafa samið munnlega við meðákærða Armando um aðkomu Hornbjargs ehf. að verkum RH smíða ehf./HR Bygg ehf., en 6–8 menn frá félaginu hefðu unnið að þeim verkefnum. Reikningar Hornbjargs ehf. hefðu verið greiddir með reiðufé að ósk meðákærðu Armando og Theódórs og greiðslurnar meðal annars fjármagnaðar með lánsfé frá föður ákærða, auk þess sem fé hafi verið tekið út af bankareikningi félagsins. Auk þess hafi þau mistök orðið að fjárhæð eins reiknings hafi misfarist, hann hafi átt að vera að fjárhæð 720.000 krónur en orðið 7.200.000 krónur. Það hafi síðar verið leiðrétt.
- Ákærði kannaðist við sölureikninga, útgefna af MM framkvæmdum ehf. á hendur HR Bygg ehf. á árinu 2019. Kvað hann það sama eiga við um þá sölureikninga og að framan greinir. Meðákærði Theódór hafi verið í forsvari fyrir félagið en ákærði Hermann hafi átt samskipti við bæði hann og meðákærða Armando, meiri þó við þann síðarnefnda. Félagið hafi boðið í ákveðinn verkþátt í verki RH smíða ehf., lokið við þann verkþátt og fengið greitt fyrir. Greitt hafi verið fyrir hvern verkþátt.
- Ákærði Hermann greindi enn fremur frá því fyrir dómi að meðákærði Theódór hefði gert þá reikninga sem honum voru afhentir fyrir hönd MM framkvæmda ehf., en meðákærði Armando hefði afhent þá. Sagðist ákærði hafa spurt meðákærða Armando hver hefði gert reikningana og fengið þau svör að prókúruhafinn, Theódór, hefði gert þá. Sagði ákærði að samningar á milli félaganna hefðu verið munnlegir en reikningar verið greiddir með reiðufé. Greiðslan hefði meðal annars verið fjármögnuð með úttektum af bankareikningi félagsins og með lánsfé frá föður ákærða. Að baki reikningum MM framkvæmda ehf. hafi búið vinna við [...] í Reykjavík og á [...] í Hafnarfirði.
- Ákærði Hermann lýsti því jafnframt fyrir dómi að RH smíðar ehf. hefðu gert tilboð í verk, en HR Bygg ehf. unnið verkin sem undirverktaki RH smíða ehf. Ákærði kvað félögin hafa unnið að [...] á árunum 2018 (utanhúss) og 2019 (innanhúss). Verkið í [...] hefði verið unnið á árinu 2019. Ákærði kvaðst hafa verið eini starfsmaður HR Bygg ehf. Kvað ákærði sannanlega vinnu hafa legið að baki útgefnum reikningum Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. Þeir hafi því ekki verið tilhæfulausir líkt og haldið hafi verið fram. Ákærði kvað að hann hefði leitað til undirverktaka til að fyrirbyggja dagsektir.
- Einnig kom fram hjá ákærða Hermanni fyrir dómi að tveir reikningar frá MM framkvæmdum ehf. hefðu verið felldir brott úr bókhaldi HR Bygg ehf. rekstrarárið 2019, áður en því rekstrarári hefði verið lokið, auk þess sem einn reikningur hefði sem fyrr segir verið leiðréttur. Þá kvaðst ákærði sömuleiðis hafa greitt höfuðstól opinberra gjalda HR Bygg ehf. samkvæmt endurákvörðun Skattsins á opinberum gjöldum félagsins. Kvaðst ákærði sem fyrr segir hafa fengið lán frá föður sínum, sem hafi verið greitt í reiðufé yfir lengri tíma, á meðan á verkum stóð. Síðar hafi verið gengið frá skjölum vegna lánsins, þegar það hafði náð ákveðinni fjárhæð. Kvaðst ákærði hafa endurgreitt föður sínum megnið af láninu, en þó ekki lánið að öllu leyti.
Framburður ákærða Armando
- Ákærði Armando kvaðst alltaf hafa starfað sem málari, en ýmist verið launamaður eða verktaki. Á árunum 2016–2019 hafi hann verið launþegi hjá bróður sínum, meðákærða Theódóri. Ákærði mundi þó ekki hjá hvaða félagi hann hefði verið launþegi. Ákærði kvaðst hafa starfað sem verkstjóri hjá Hornbjargi ehf. Hafi hann séð um daglegan rekstur félagsins og þau verkefni sem það hafi haft með höndum. Theódór hafi gefið ákærða fyrirmæli sem hann hafi fylgt, en meðal verkefna hans hafi verið að koma starfsmönnum á verkstað, úthluta verkefnum til þeirra og sjá um verkin á vinnustað. Kvað ákærði að viðskiptavinir Hornbjargs ehf. hefðu yfirleitt verið í sambandi við meðákærða Theódór varðandi einstök verkefni.
- Ákærði kannaðist við að hafa verið varamaður í stjórn Hornbjargs ehf. og að hafa undirritað samþykktir félagsins og fundargerð hluthafafundar þar sem tilgangi félagsins var breytt. Sagði ákærði að Theódór hefði beðið hann um að vera varamaður í stjórn félagsins. Hann kvaðst hins vegar ekkert hafa komið nálægt fjármálastjórn, útgáfu sölureikninga eða þess háttar og ekki haft aðgang að bankareikningum félagsins. Fjármálastjórn Hornbjargs ehf. hefði verið í höndum Theódórs, sem hefði meðal annars gefið út sölureikninga fyrir hönd félagsins og innheimt þá, annast bókhald félagsins, skattskil og annað þess háttar. Ákærði sagði að Theódór hefði haft kort á reikning félagsins, en hann sjálfur aðallega verið í vinnugallanum að vinna. Sérstaklega aðspurður kannaðist ákærði við að hafa á árinu 2018 tímabundið haft umboð vegna bankareikninga félagsins í forföllum meðákærða Theódórs og að hans beiðni.
- Ákærði lýsti því sem fyrr segir fyrir dómi að hann hefði unnið fyrir Theódór við að verkstýra útlendingum og að þeir hefðu meðal annars unnið fyrir Stapafell ehf. Sagði ákærði að Theódór hefði nánast alfarið séð um samskipti við verkkaupa og gilti það bæði um Hornbjarg ehf. og Menn og verk ehf. Sagðist ákærði hafa unnið fyrir bæði félögin, en daglegur rekstur beggja félaganna hefði verið í höndum Theódórs. Félögin hefðu unnið almenna verktakavinnu, smíðavinnu, múrvinnu og málningarvinnu.
- Er ákærði var minntur á að hann hefði verið skráður stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi í félaginu Menn og verk ehf. kannaðist hann við það. Sagðist hann þá hafa séð um daglegan rekstur félagsins, sem hefði unnið almenna verktakavinnu fyrir Stapafell ehf. Er ákærði var spurður út í þá reikninga sem gefnir voru út af Mönnum og verkum ehf. á hendur Stapafelli ehf. kannaðist ákærði við þá, en samkvæmt texta reikninganna voru þeir vegna málningarvinnu. Sagðist ákærði hafa skrifað reikningana. Vinnan hefði verið unnin á þeim tíma, en engin frekari gögn hefðu legið að baki reikningunum, sem hefðu allir verið greiddir með reiðufé í umslagi. Kannaðist ákærði við að vitnið E hefði unnið hjá honum á þessum tíma.
- Ákærði kannaðist við reikninga, útgefna af Hornbjargi hf. á hendur Stapafelli ehf. Hann hefði þó ekki komið að gerð þeirra en þeir hefðu verið vegna almennrar verktakavinnu, að hann hélt vegna N. Vinnan hefði líkast til verið unnin á þeim tímabilum er reikningarnir voru gefnir út, en ákærði vissi hvorki til þess að frekari gögn lægju að baki reikningunum né hvernig þeir hefðu verið greiddir. Áréttaði ákærði að hann hefði aðeins séð um verkstýringu en meðákærði Theódór um pappírsvinnuna.
- Ákærði Armando sagðist í fyrstu ekki þekkja félagið A ehf., en kannaðist svo við að „þeir“ hefðu unnið fyrir félagið. Meðákærði Theódór hefði fyrir hönd Hornbjargs ehf. séð um samskipti við fyrirsvarsmann A ehf. Ákærði kvaðst hafa unnið sem verkstjóri fyrir félagið og mögulega verið í samskiptum við verkstjóra á vegum A ehf. á verkstað.
- Ákærði kannaðist ekki við reikninga útgefna af MM framkvæmdum ehf. á hendur A ehf., en hélt að um smíðavinnu og almenna verktakavinnu hefði verið að ræða. Sagðist hann ekki vita hvort frekari gögn hefðu legið að baki reikningunum eða hvernig þeir hefðu verið greiddir. Kvaðst ákærði sérstaklega aðspurður stundum hafa fengið afhent reiðufé í vinnuskúr og í þeim tilvikum afhent þá Theódóri. Hann mundi þó ekki hvort svo hefði verið í þessu tilviki er hann var spurður út í framburð fyrirsvarsmanns A ehf., sem hafði borið við rannsókn málsins að umræddir reikningar hefðu verið greiddir með reiðufé sem afhent hefði verið í vinnuskúr.
- Ákærði Armando kannaðist við að Hornbjarg ehf. hefði unnið fyrir félagið HR Bygg ehf. á árinu 2018 og síðar MM framkvæmdir ehf. á árinu 2019. Kvaðst ákærði hafa verið í sambandi við meðákærða Hermann vegna þeirrar vinnu sem ákæran varðaði, en um almenna verktakavinnu hefði verið að ræða, sem líklega hefði verið reikningsfærð á svipuðum tíma og hún hefði verið unnin. Ákærði kvaðst halda að meðákærði Theódór hefði gert reikningana. Vissi hann hvorki um frekari gögn að baki þeim né heldur hvernig þeir hefðu verið greiddir.
- Ákærði kannaðist ekki við reikninga útgefna af MM framkvæmdum ehf. á hendur HR Bygg ehf. (þá Parket og smíðar ehf.) og þekkti hvorki hvaða vinna hefði legið að baki reikningunum né hvort þeir hefðu verið greiddir.
- Ákærði sagði annars að hann og hans menn hefðu unnið úti um allt, yfirleitt fyrir fyrirtæki. Ákærði kvaðst hafa rætt við verkstjóra þeirra fyrirtækja sem um hefði verið að ræða en hann hefði ekki vitað hvort um fyrirsvarsmenn fyrirtækjanna hefði verið að ræða. Kvaðst ákærði hafa unnið að verkefnum á höfuðborgarsvæðinu, þ.m.t. við N, en ekki úti á landi að því er hann myndi til. Nánar aðspurður mundi ákærði þó eftir því að menn frá „þeim“ hefðu unnið við húsið [...] á [...]. Þá sagði hann að verið gæti að hann hefði verið með vinnuflokk við blokk í [...] og við hús á [...] í Reykjavík, sem og að [...] og við [...] í Hafnarfirði. Um málningar- og smíðavinnu hefði verið að ræða að [...] og í [...], þ.m.t. vinnu við að skipta um þak í [...]. Neitaði ákærði því að Hornbjarg ehf., MM framkvæmdir ehf. og Menn og verk ehf. hefðu gefið út tilhæfulausa reikninga. Þau verk hefðu öll verið unnin. Aðspurður um fjölda starfsmanna sagði ákærði að þeir hefðu verið um 10–15 á hverjum tíma.
Framburður ákærða Theódórs
- Ákærði Theódór Heiðar Þorleifsson kvaðst hafa unnið sem málari á árunum 2016– 2019, en hann væri ómenntaður. Kvaðst hann hafa verið fyrirsvarsmaður Hornbjargs ehf., stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi. Kvaðst ákærði meðal annars hafa séð um reikningagerð, innheimtur og greiðslur. Ákærði sagðist sjálfur hafa af- hent reikninga en meðákærði Armando hefði stundum komið að því að ná í peninga. Armando hefði verið verkstjóri en þeir hefðu báðir unnið saman að verkefnum á þessum tíma. Þeir hefðu jafnframt báðir haft aðgang að bankareikningi félagsins, þ.m.t. netbanka.
- Ákærði Theódór kvaðst einn hafa séð um skattskil félagsins, þ.m.t. virðisaukaskattsskil. Sagði ákærði að allt hefði verið komið í vitleysu og því hefði skýrslum í sumum tilvikum ekki verið skilað. Kvaðst ákærði hafa tekið ákvörðun um það sem og að skila núllskýrslum er það átti við. Kvaðst ákærði hafa séð um færslu og varðveislu bókhalds, sem hefði verið lauslega fært en væri nú týnt. Sagði ákærði að félaginu hefði gengið vel um tíma, en hann hefði verið edrú í upphafi. Neyslan hefði hins vegar undið upp á sig, en hann væri nú búinn að vera edrú í tvö og hálft ár. Ákærði kvaðst aldrei hafa gefið út tilhæfulausa reikninga, en reikningar hefðu að hluta til verið greiddir með skiptivinnu.
- Ákærði Theódór kvað Hornbjarg ehf. hafa unnið fyrir Stapafell ehf., en ekki mundi hann hver hefði verið í forsvari fyrir það félag eða við hvern hann hefði rætt varðandi vinnuna. Samskiptin hefðu oft verið í síma. Kvaðst ákærði hafa gefið út þá reikninga sem mál þetta varðar, en um málningar- og smíðavinnu hefði verið að ræða í N. Hann mundi þó ekki hvenær vinnan hefði verið unnin og engin gögn hafi búið að baki reikningunum. Kvaðst ákærði hafa afhent reikningana, en þeir hefðu verið greiddir, að mestu leyti með reiðufé.
- Ákærði Theódór kvaðst kannast við félagið A ehf., en hann þekkti ekki fyrirsvarsmann þess félags. Mundi hann ekki við hvern hann hefði verið í sambandi vegna félagsins. Kvaðst ákærði hafa verið í fyrirsvari fyrir félagið MM framkvæmdir ehf. Hann hefði séð um rekstur félagsins en meira verið á fylleríi á þeim tíma. Bróðir hans, meðákærði Armando, hefði séð um reksturinn, en ákærði séð um alla reikninga og peningamál. Sagði ákærði að MM framkvæmdir ehf. hefðu unnið byggingarvinnu fyrir A ehf., meðal annars í Breiðholti. Um 10 –15 manns hefðu verið í vinnu fyrir félagið, en ákærði gat ekki nefnt nöfn þeirra. Kannaðist ákærði við reikninga, útgefna af MM framkvæmdum ehf. á A ehf., en gat ekki lýst þeirri vinnu sem að baki þeim lá. Hann sagði að um raunverulega vinnu hefði verið að ræða. Frekari gögn hefðu ekki legið að baki reikningunum, sem hefðu verið greiddir með reiðufé sem hann hefði móttekið í vinnuskúr. Reiðuféð hefði verið nýtt til að greiða svört laun og persónulega neyslu.
- Ákærði Theódór kvaðst hafa verið í samskiptum við félagið HR Bygg ehf. en mundi ekki hver hefði verið fyrirsvarsmaður félagsins. Hann hefði verið í samskiptum við hann. Kannaðist ákærði við að hafa gert reikninga Hornbjargs ehf. á hendur HR Bygg ehf. sem frammi liggja í málinu, en gat ekki gert frekari grein fyrir þeirri vinnu sem að baki reikningunum lá og frekari gögn hafi ekki legið að baki þeim. Kvað hann vinnuna hafa verið unna á útgáfutíma reikninganna og að þeir hefðu verið greiddir, að hans frumkvæði, með reiðufé sem hann hefði móttekið.
- Ákærði kannaðist við sölureikninga, útgefna af MM framkvæmdum ehf. á hendur HR Bygg ehf., og kvaðst hafa gert þá. Gat hann ekki skýrt vinnuna að baki reikningunum með öðrum hætti en að um málningarvinnu hefði verið að ræða. Hefði vinnan verið unnin á útgáfutíma reikninganna. Engin frekari gögn hefði legið að baki reikningunum, sem hefðu verið greiddir með reiðufé sem ákærði hefði móttekið.
- Ákærði kvaðst nánar aðspurður um verk Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. fyrir HR Bygg ehf. lítið hafa unnið á verkstað. Þá mundi hann ekki eftir því að reikningur hefði verið rangur, þ.e. að fjárhæð reiknings hefði átt að vera 720.000 krónur í stað 7.200.000 króna. Reikningar á HR Bygg ehf. hefðu ekki verið tilhæfulausir, þar sem vinna hefði verið að baki þeim.
Framburður vitnisins C
- Vitnið C kvaðst þekkja ákærðu Lúther, Armando og Theódór, en ákærði Armando hefði verið að vinna fyrir hann. Kannaðist hann við að hafa verið varamaður í stjórn félagsins P ehf., en félagið hefði verið stofnað vegna reksturs fatabúðar. Gat hann sér þess til að B hefði keypt félagið af honum, en vitnið gekk úr stjórn á árinu 2016. Kvaðst vitnið ekki hafa komið að útgáfu félagsins á reikningum á hendur Stapafelli ehf. Sama mætti segja um félagið Q ehf. (áður [...] ehf.), en vitnið hefði verið skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri til ársins 2017. Svaraði vitnið því til að hann hefði ekki átt aðkomu að útgáfu reikninga þess félags á Stapafell ehf. og ekkert fengið greitt vegna þess.
Framburður vitnisins G
- Vitnið G, faðir ákærða Hermanns, staðfesti fyrir dómi að hann hefði lánað syni sínum fjármuni og að útbúin hefðu verið fjögur skuldabréf af því tilefni. Lánið hefði verið veitt í nokkrum greiðslum á árunum 2018 og fram á árið 2019, þ.e. í reiðufé, en hann hefði síðar viljað formgera lánið og því hefðu skuldabréfin verið útbúin. Ákærði Hermann hefði sagt honum að hann þyrfti fjármuni til að geta greitt verktökum sem hefðu verið að vinna fyrir hann. Kvaðst vitnið ekki vita um hvaða verktaka hefði verið að ræða. Kvað vitnið að lánið hefði að mestu leyti verið endurgreitt.
Framburður vitnisins E
- Vitnið E kvaðst hafa unnið mikið með ákærða Lúther sem verktaki. Vinnusambandið hefði staðið síðan 2009. Þá kvaðst vitnið hafa unnið með ákærða Armando, hann hefði komið inn í verk sem hann hefði verið með, oftast tengt ákærða Lúther. Armando hefði einnig unnið verk fyrir vitnið. Kvaðst vitnið rétt vita hver Theódór, bróðir Armando, væri.
- Vitnið sagðist vita lítið um félagið P ehf. en þeir B og Armando eða B og D hefðu stundum verið að vinna fyrir vitnið. Vitnið kvaðst hins vegar engin tengsl hafa við félagið. Kvaðst vitnið hafa verið að vinna á [...] árið 2016, ásamt B, syni sínum, og D. Þeir tveir hefðu verið að vinna fyrir vitnið og vitnið fyrir ákærða Lúther.
- Vitnið kannaðist ekki við reikninga, útgefna af P ehf., og ekki hafa gert þá, en taldi að þessir reikningar hefðu verið vegna hans vinnu. Sagði E að B og D hefðu rukkað fyrir hann þetta sumar. Vitnið kvaðst hins vegar ekki hafa þegið laun frá félaginu P ehf. Vitnið kannaðist þó við að hafa fengið greiðslur með innlögnum inn á aðra aðila. B hefði ekki haft „bankakort“ um tíma og greiðslur til hans hefðu meðal annars verið lagðar inn á móður hans og barnsmóður. Annars kvað vitnið að að mestu leyti hefði verið lagt inn á hann og hann svo greitt „strákunum“, en það kunni að vera að hann hafi einhverju sinni tekið við reiðufé. Vitnið kvaðst þó ekki muna til þess. Vitnið sagði að Lúther hefði útvegað honum fullt af góðum verkefnum, þ.m.t. fyrir J og L. Vitnið kvaðst mjög oft hafa sent honum tíma fyrir öllu sem þeir gerðu og ákærði hefði svo lagt inn á hann. Vitnið kvaðst ekki hafa verið launþegi hjá Stapafelli ehf.
- E vildi ekki segja til um það hvort hann þekkti félagið Q ehf., en hélt að félagið tengdist B, syni sínum, og D. Þeir hefðu unnið fyrir hann, eins og áður segir. Vitnið kannaðist ekki við reikninga, útgefna af þessu félagi á hendur Stapafelli ehf. Hann hefði ekki gert reikningana. Sagðist vitnið hafa haldið að þeir hafi lokið verkinu á [...] 2016, en hann myndi það ekki.
- E kvaðst oft hafa unnið fyrir Armando og félaga eða þeir fyrir hann, án þess að vita hvað félagið hafi heitið, þ.m.t. við O á [...]. Vitnið kvaðst ekki hafa komið að útgáfu reikninga fyrir Menn og verk ehf. Vitnið kvaðst hins vegar kannast við nöfn aðila sem lagt hefði verið inn á. Hann hefði í einhverjum tilvikum þurft að bíða lengi eftir reikningum frá B og D.
- Vitnið kannaðist ekki við að ákærði Lúther hefði gefið út tilhæfulausa reikninga eða að hann hefði beðið hann um slíkt. Reikningar frá öðrum hefðu oft verið lengi að koma. Lúther hafi millifært yfir á hann og vitnið afhent reikning á móti, sem stundum hafi þurft að bíða eftir. Kannaðist vitnið við að hafa tekið út pening og afhent B og D þegar þá hafi vantað pening.
Framburður vitnisins F
- Vitnið F kvaðst hafa unnið sem eins konar verkstjóri fyrir Stapafell ehf. á árinu 2018. Hann hefði haldið utan um verkþátt félagsins í N. Hlutverk hans hefði verið að halda utan um þá karla sem hefðu unnið að uppbyggingu [...]. Hreinsað hefði verið út úr húsinu, gólf hússins flotað og smíðað, húsið málað og tæki sett upp. Kvaðst vitnið hafa unnið fyrir Stapafell ehf. og fengið greitt frá því félagi, en verið augu og eyru þess félags og verkkaupa á verkstað.
- Vitnið sagði að um 5–10 erlendir karlar hefðu unnið á vegum undirverktaka fyrir Stapafell ehf. í N á hverjum tíma, en ekki hafi alltaf verið um sömu karla að ræða. Sagði vitnið að íslenskur maður hefði fyrst mætt með körlunum, sem kallaður hafi verið Mondó, en hann hefði verið sá eini í hópnum sem talað hefði íslensku. Sagðist vitnið hafa skoðað mynd af ákærða Armando fyrir skýrslugjöfina, en um sama mann væri þar að ræða, þ.e. Mondó og Armando.
- Vitnið kvaðst hafa heyrt nafnið Hornbjarg ehf. en hann kannaðist ekkert við félögin P ehf. eða Q ehf. ([...] ehf.). Kvaðst hann halda að þeir menn sem þarna hafi unnið hafi verið á vegum Hornbjargs ehf. Vitnið kvaðst ekki þekkja samninga Stapafells ehf. og N. Sagði vitnið að reikningar undirverktaka hefðu farið beint til ákærða Lúthers, en vitnið hafi haldið utan um tíma þeirra sem unnu á svæðinu.
Framburður vitnisins H
- Vitnið H kvaðst hafa unnið sem framkvæmdastjóri N. „Þeir“ hefðu tekið við tómum sal, en skipta hefði þurft rýminu niður, styrkja efri hæðina og byggja utanáliggjandi stiga. Um mikið verkefni hefði verið að ræða, sem ákærði Lúther hefði að hluta til séð um í gegnum félag sitt, Stapafell ehf., en þeir hefðu þekkst áður. Sagði vitnið að efni og vinna við standsetningu N hefði kostað um milljarð, sem hafi verið um helmingur af heildarkostnaði verksins. Vitnið kannaðist við nafnið Hornbjarg ehf. en sagði að Stapafell ehf. hefði verið viðsemjandi N. Hann kannaðist þó við að menn á vegum Stapafells ehf. hefðu unnið í húsinu sem undirverktakar í nokkra mánuði, en um útlendinga hafi verið að ræða, að hann hélt frá [...].
- Vitnið kvaðst ekki þekkja hvernig Stapafell ehf. hefði gert upp við undirverktaka sína. Ákærði Lúther hefði oft verið á svæðinu, setið alla verkfundi og annast um samskipti við byggingaryfirvöld. Sagði hann að vitnið F hefði verið verkstjóri á staðnum. Kvað vitnið Stapafell ehf. hafa gert tilboð í ákveðna verkþætti og fengið greitt hlutfallslega eftir verkþáttum. Aukaverk hefðu einnig verið greidd og þá í tímavinnu. Mjög lítið hefði þó verið um aukaverk.
Framburður vitnisins B
- Vitnið B kvaðst hafa unnið fyrir ákærða Lúther á árunum 2014 og 2015, en þeir hefðu fyrst kynnst á árinu 2013. Sagði hann að „þeir“ hefðu fengið verkefni frá Lúther í gegnum föður vitnisins, vitnið E. Sagðist vitnið hafa unnið fyrir Lúther „fyrir austan“. Kannaðist hann við að hafa verið stjórnarmaður og framkvæmdastjóri í félaginu P ehf. á árunum 2016–2017. Félagið hafi stundað smíða- og málningarvinnu, en ekki hafi neinir launamenn starfað hjá félaginu.
- Kannaðist vitnið við reikninga, útgefna af P ehf. á hendur Stapafelli, og kvaðst hafa gert þá. Að baki hefði búið málningar- og smíðavinna. Vinnuna hefði hann unnið og D og mögulega fleiri. Að hluta til hafi verið um að ræða vinnu sem unnin hafi verið af vitninu E „fyrir austan“. Kvaðst vitnið oft hafa hringt beint í ákærða Lúther, en hann mundi ekki hvort þeir reikningar sem frammi liggja í málinu hefðu fengist greiddir. Er bornar voru undir vitnið greiðslur til nafngreindra aðila, sem ákærði Lúther hefur sagt að hafi verið greiðslur á nefndum reikningum kannaðist hann við þær og sagði þær til komnar vegna vinnu á [...]. Eitthvað hefði einnig verið greitt í peningum.
- Vitnið kannaðist við félagið Q ehf. (áður [...] ehf.). Það félag hafi ekki rukkað fyrir hans vinnu, en vitnið hafi unnið með D, forsvarsmanni félagsins. Vitnið kvaðst aldrei hafa verið á launum hjá Q ehf.
- Vitnið þekkti ekki til félagsins Menn og verk ehf. Vitnið kannaðist heldur ekki við að hafa nokkru sinni gefið út tilhæfulausa reikninga á hendur Stapafelli ehf. Vitnið kvaðst á tímapunkti hafa haldið utan um tímaskýrslur og fengið greitt á grundvelli tímagjalds en einnig stundum samkvæmt tilboði. Sagði vitnið að þeir hefðu málað grunnskóla, félagsheimili, elliheimili og einhvern part af leikskólanum.
Niðurstaða varðandi sök í málinu
Ákæra útgefin 16. maí 2023 – Hornbjarg ehf. – ákærðu Armando og Theódór
- Ákærðu Armando og Theódór eru með ofangreindri ákæru gefin að sök meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald í rekstri félagsins Hornbjarg ehf., ákærði Theódór sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri félagsins og ákærði Armando sem varastjórnarmaður og daglegur stjórnandi félagsins, með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum félagsins vegna neinna uppgjörstímabila rekstrarárið 2017 og uppgjörstímabilanna janúar – febrúar, september – október og nóvember – desember rekstrarárið 2018, svo og með því að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum félagsins vegna uppgjörstímabilanna mars – apríl, maí – júní og júlí – ágúst rekstrarárið 2018 og jafnframt með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil, í samræmi við IX. kafla laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, á virðisaukaskatti, sem innheimtur var eða innheimta bar í rekstri félagsins vegna sömu uppgjörstímabila, að frátöldum uppgjörstímabilunum mars – apríl 2017 og janúar – febrúar 2018, samtals að fjárhæð 32.384.472 krónur. Þá er ákærðu jafnframt gefið að sök að hafa ekki fært tilskilið bókhald fyrir Hornbjarg ehf. þannig að uppfyllti kröfur laga og að hafa vanrækt að varðveita eða tryggja vörslur fylgiskjala og annarra bókhaldsgagna vegna rekstrar félagsins.
- Ákærði Theódór hefur gengist við brotum sínum samkvæmt þessari ákæru, en ákærði Armando neitar sök. Hefur hann hafnað því að hafa verið daglegur stjórnandi félagsins. Ákærði Theódór var sem fyrr segir skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri hjá Hornbjargi ehf., auk þess að vera með prókúru fyrir félagið. Ákærði Armando hefur fyrir dómi borið að hann hafi starfað sem verkstjóri hjá félaginu, en að ákærði Theódór hafi séð um að reka félagið, samið um einstök verk, gefið út sölureikninga og innheimt þá, greitt reikninga, borið ábyrgð á bókhaldi og annast skattskil á vegum félagsins, þ.m.t. virðisaukaskattsskil.
- Í málinu liggur frammi tölvupóstur frá viðskiptabanka Hornbjargs ehf. þar sem fram kemur að umboð ákærða Theódórs á reikninga Hornbjargs ehf. hafi verið fellt niður 25. júní 2018. Sama dag hafi ákærði Armando fengið umboð á reikninga félagsins. Umboð Armando hafi verið fellt aftur niður 23. október 2018 og ákærða Theódór veitt umboðið á ný. Fyrir dómi sagði ákærði Theódór að hann og ákærði Armando hefðu báðir haft aðgang að bankareikningum Hornbjargs ehf., þ.m.t. netbanka.
- Við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 11. nóvember 2019 greindi ákærði Theódór frá því að hann hefði séð um rekstur Hornbjargs ehf. fyrsta mánuðinn árið 2017, en að ákærði Armando hafi frá þeim tíma séð um reksturinn og haldið hlutunum gangandi, þar sem Theódór hafi verið í óreglu á þessum tíma, en ákærði Armando var sem fyrr segir varamaður í stjórn félagsins. Nánar aðspurður um aðkomu sína að rekstri Hornbjargs ehf. á árunum 2017 og 2018 svaraði ákærði Theódór: „Hún var voða lítil, ég átti að sjá um að borga reikningana og allt þetta og gerði það ekki oft og skilaði ekki neinu og svona hélt þessu gangandi þannig.“ Kvað ákærði Theódór að ákærði Armando hefði verið verkstjóri hjá honum en gert hluti í hans umboði. Theódór kvaðst þrátt fyrir það hafa vitað af öllu.
- Samkvæmt framansögðu og skýrslu ákærða Theódórs fyrir dómi, og að öðru leyti með vísan til gagna málsins, er ljóst að mikil óregla var í lífi ákærða Theódórs á árunum 2017 og 2018, sem meðal annars hamlaði því að hann gæti sinnt störfum sínum og skyldum sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Hornbjargs ehf. Er að sama skapi ljóst, bæði með framburði Theódórs og að nokkru leyti með framburðum meðákærðu Lúthers og Hermanns sem hafa borið að þeir hafi að meginstefnu til átt samskipti við Armando að ákærði Armando hafi vegna þessa þurft að axla auknar byrðar og að hann hafi tekið á sig auknar skyldur í rekstri félagsins. Fær það einnig stoð í þeirri staðreynd að Armando tók tímabundið yfir bankareikninga félagsins, en sem fyrr segir kom fram hjá Theódóri fyrir dómi að þeir hefðu báðir haft aðgang að bankareikningum félagsins, þ.m.t. netbanka.
- Að því virtu þykir ekki óvarlegt að mati dómsins að leggja til grundvallar dómi í málinu að ákærðu Theódór og Armando hafi í sameiningu stýrt félaginu Hornbjargi ehf. á árunum 2017 og 2018, án tillits til þess hvor þeirra hafi verið skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri félagsins. Þykir þar af leiðandi ekki ástæða til að gera greinarmun á ákærðu hvað ábyrgð þeirra í máli þessu varðar, þ.e. í tengslum við rekstur Hornbjargs ehf. Hefur það því ekki úrslitaþýðingu í málinu að mati dómsins að ákærði Theódór hafi verið stjórnarmaður félagsins og framkvæmdastjóri en Armando varamaður í stjórn.
- Brot Theódórs samkvæmt þessari ákæru eru sem fyrr segir óumdeild og sönnuð með játningu hans sjálfs fyrir dómi. Með vísan til þess sem að framan segir um jafna ábyrgð ákærðu á rekstri Hornbjargs ehf. verður jafnframt að telja að ákærði Armando hafi gerst brotlegur við lög með þeim hætti sem lýst er í þessari ákæru málsins. Verða báðir ákærðu samkvæmt því sakfelldir fyrir þau brot sem lýst er í ákærunni og rakin hafa verið hér að framan. Þykja brot þeirra sömuleiðis rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.
I. kafli ákæru, sem út var gefin 17. maí 2023 – liðir A, B og C – ákærði Lúther
- Ákærða Lúther er í A-lið I. kafla ákærunnar, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra félagsins Stapafell ehf., gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali félagsins gjaldárin 2017 til og með 2019 vegna rekstraráranna 2016 til og með 2018, með því að færa til gjalda í skattskilum félagsins kostnað á grundvelli rangra og tilhæfulausra reikninga frá félögunum P ehf., Q ehf., Menn og verk ehf. og Hornbjarg ehf., og þannig oftalið rekstrargjöld í skattskilum félagsins á því ári, eins og nánar er lýst í ákæru.
- Í B-lið sama kafla er ákærða Lúther gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum Stapafells ehf. vegna uppgjörstímabila maí–júní, júlí–ágúst, september–október og nóvember–desember rekstrarárið 2016, uppgjörstímabila janúar–febrúar, mars–apríl, maí–júní, júlí–ágúst og nóvember–desember rekstrarárið 2017 og uppgjörstímabila mars–apríl, maí–júní, júlí–ágúst, september– október og nóvember–desember rekstrarárið 2018 með því að offramtelja innskatt á grundvelli rangra og tilhæfulausra sölureikninga frá fyrrgreindum félögum og þar með vanframtelja virðisaukaskatt vegna sömu uppgjörstímabila sem félaginu bar að standa skil á.
- Ákærða Lúther er í C-lið I. kafla ákærunnar gefið að sök að hafa rangfært bókhald Stapafells ehf. vegna rekstrarára 2016 til og með 2018 með því að færa eða láta færa þar til gjalda ranga og tilhæfulausa sölureikninga frá fyrrgreindum félögum, P ehf., Q ehf., Menn og verk ehf. og Hornbjarg ehf., í þeim tilgangi að hækka rekstrargjöld og innskatt í bókhaldi félagsins.
- Ákæruliðir A, B og C í I. kafla ákærunnar byggja allir á þeim forsendum að ákærði Lúther hafi sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Stapafells ehf. fært til gjalda í bókhaldi félagsins kostnað samkvæmt reikningum, útgefnum af framangreindum félögum, sem ekki hafi átt sér stoð í raunveruleikanum, og þannig oftalið rekstrargjöld félagsins í skattskilum vegna rekstraráranna 2016, 2017 og 2018, svo og nýtt innskatt vegna þessara reikninga á móti útskatti félagsins. Eru þessir liðir samkvæmt þessu samþættir og því heppilegast að fjalla um þá saman, en ekki er tölulegur ágreiningur um einstaka liði ákærunnar.
- Ákærði hefur sem fyrr segir alfarið neitað sök. Hefur hann þvertekið fyrir að um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða, heldur hafi raunveruleg vinna legið að baki hverjum reikningi og því um eðlilegan kostnað að ræða. Hefur ákærði sömuleiðis leitast við að færa fram sönnun fyrir því að svo hafi verið. Dómurinn getur ekki fallist á skýringar ákærða, nema að litlu leyti, enda er augljóst misræmi á milli þeirra reikninga sem um ræðir og greiðslna frá Stapafelli ehf., ekki aðeins varðandi fjárhæðir heldur einnig varðandi tíma. Þá hefur ákærði ekki nema að litlu leyti sýnt fram á að greiðslur hafi borist útgefanda þeirra reikninga. Í öðrum tilvikum var annað hvort um að ræða greiðslur til ótengdra aðila, sem ekki störfuðu fyrir Stapafell ehf. með nokkrum hætti, eða meintar greiðslur með reiðufé, sem eru ósannaðar að mati dómsins, og í einu tilviki með skiptivinnu sem aldrei fór fram.
- Ákærði greindi frá því fyrir dómi að Stapafell ehf. hafi greitt reikninga P ehf. og Q ehf. með reiðufé og innlögnum á vitnið E og aðila nátengda honum og B syni hans. Könnuðust bæði E og B við það fyrir dómi. Voru vitnin og ákærði sömuleiðis sammála um að vitnin hefðu, ásamt D, fyrirsvarsmanni Q ehf., unnið verkefni fyrir Stapafell ehf. á [...]. Vitnið E staðfesti sömuleiðis framburð ákærða um að hann hefði á vegum Stapafells ehf. málað smáhýsi í eigu J víða um land.
- Með hliðsjón af framansögðu og að öðru leyti með vísan til gagna málsins, þ.m.t. gagna sem ákærði hefur lagt fram, getur dómurinn fallist á að líklegt sé að Stapafell ehf. hafi unnið verkefni á [...] og fyrir J. Þá er einnig hægt að fallast á að líklegt sé að vitnin E og B hafi, ásamt D, komið að þeim verkum, líkt og ákærði Lúther heldur fram.
- Vitnið E kannaðist ekki við að hafa unnið fyrir P ehf. eða fyrir Q ehf., heldur sagði hann að þar hefði verið um að ræða vinnu B og D. Ákærði Lúther hélt því þó fram fyrir dómi að reikningar frá þessum tveimur félögum væru vegna vinnu E, sem og vegna vinnu B og D. Fær sá framburður ákærða samkvæmt framansögðu ekki stoð í framburði E, en jafnvel þótt fallast megi á að vitnin E, B og D hafi unnið að verkefnum á vegum Stapafells ehf. er ekkert sem bendir til þess að það hafi þeir gert sem starfsmenn nefndra félaga.
- Ekkert bendir heldur til þess að aðrir starfsmenn hafi unnið í nafni P ehf. eða Q ehf. fyrir Stapafell ehf., enda hafði hvorugt þessara félaga eins og áður segir starfsmann á launum. Má því ætla að ákærða Lúther hafi verið afhentir umræddir reikningar gagngert í þeim tilgangi að hann gæti nýtt þá í bókhaldi Stapafells ehf., þrátt fyrir að engir starfsmenn hefðu unnið nokkra vinnu í nafni þessara félaga og reikningarnir í þeim skilningi verið tilhæfulausir. Þá er ekkert sem bendir til þess að Stapafell ehf. hafi nokkru sinni greitt fyrir þjónustu veitta af þessum félögum, enda ósannað að greiðslur hafi runnið til þessara félaga í formi reiðufjár. Millifærslur áttu sér sömuleiðis ekki stað og greiðslur til annarra ótengdra aðila geta ekki talist greiðslur til þessara félaga, eða sem greiðslur á reikningum, útgefnum af þeim.
- Ákærði Lúther bar einnig fyrir dómi að vitnið E hefði komið fram fyrir félagið Menn og verk ehf. og haft menn með sér. Nefndi ákærði sérstaklega vinnu við veitingastað á [...] í þessu samhengi. Þessi framburður ákærða fékk þó hvorki stoð af framburði vitnisins E né af framburði meðákærða Armando fyrir dómi. Þá fær hann ekki stoð af öðrum gögnum málsins. Nánar aðspurður af verjanda sínum kannaðist meðákærði Armando þó við að þeir E hefðu verið að vinna saman við veitingastað á [...]. E virtist þó ekki kannast við það en nefndi annað verkefni sem þeir hefðu unnið saman að í Reykjavík.
- Ákærði Lúther bar enn fremur fyrir dómi að meðákærði Armando hefði verið í forsvari fyrir Hornbjarg ehf. Vitnið E hefði einnig að einhverju leyti verið með Armando í því. Fær framburður ákærða Lúthers hvað E varðar hvorki stoð í framburði E sjálfs né í framburðum meðákærðu Theódórs og Armando. Þá fær hann ekki stoð í framburðum annarra vitna eða í öðrum gögnum málsins.
- Kom fram hjá ákærða Lúther að Hornbjarg ehf. hefði unnið fyrir Stapafell ehf. í N. Hvað sem því líður er ekkert sem styður það að vitnið E hafi komið að því verki, annað en framburður ákærða Lúthers. Meðákærðu Theódór og Armando nefndu ekki að E hefði unnið við N á vegum Hornbjargs ehf. Sjálfur virtist E ekkert kannast við slíkt fyrir dómi. Þá talaði vitnið F um að erlendir menn hefðu unnið á vegum Stapafells ehf. í N, en maður að nafni Mondó hefði verið verkstjóri þeirra. Hefði hann verið sá eini sem talaði íslensku. Sagðist vitnið hafa skoðað mynd af ákærða Armando fyrir skýrslugjöfina, en um sama mann væri þar að ræða, þ.e. Mondó og Armando.
- Ákærði Lúther sagðist oft hafa verið á staðnum er N var standsettur, jafnvel þótt hann hafi að mestu leyti unnið annars staðar. Fær það meðal annars stoð í framburði vitnisins H fyrir dómi, sem rakinn er hér að framan. Má því ætla að ákærði Lúther hafi mátt vita hvort vitnið E hafi verið að vinna í N fyrir hönd Stapafells ehf. eða ekki, jafnvel þótt hann hafi eftirlátið vitninu F verkstjórn þeirra manna sem þar unnu á vegum félagsins.
- Ákærðu Lúther, Armando og Theódór voru annars allir sammála um að menn á vegum Hornbjargs ehf. hefðu unnið á vegum Stapafells í N. Fær sá framburður stoð í framburðum vitnisins F og að hluta til í framburði vitnisins H, sem sagðist þó ekki vita hvaðan þeir menn hefðu komið sem unnu fyrir Stapafell ehf. í N. Eins og áður segir millifærði Stapafell ehf. alls 6.500.000 krónur inn á bankareikning Hornbjargs ehf. í desember 2018 og janúar 2019. Er að mati dómsins ósannað að um frekari vinnu hafi verið að ræða af hálfu Hornbjargs ehf. fyrir Stapafell ehf. í N eða að Stapafell ehf. hafi innt af hendi frekari greiðslur til Hornbjargs ehf. vegna þessa verkefnis.
- Með hliðsjón af framangreindu er það mat dómsins að framburður ákærða Lúthers varðandi þá þjónustu sem hann segir að hafi verið að baki umræddum reikningum P ehf., Q ehf., Manna og verka ehf. og Hornbjargs ehf. sé í meginatriðum ótrúverðugur, jafnvel þótt verið geti að E, B, D og Armando hafi unnið að verkefnum fyrir Stapafell ehf. og að E hafi afhent honum reikninga að hans beiðni. Framburður meðákærðu Theódórs og Armando þykir sömuleiðis ekki trúverðugur, enda var hann lítt afgerandi og að mörgu leyti í andstöðu við önnur gögn málsins, auk þess sem minni þeirra fyrir dómi var hverfult, svo ekki sé fastar að orði kveðið.
- Dómurinn metur á hinn bóginn framburði vitnanna F og H sem trúverðuga, enda féllu framburðir þeirra að mörgu leyti saman. Þá er það mat dómsins að framburður vitnisins E hafi að nokkru leyti verið trúverðugur, í það minnsta hvað framangreind atriði varðar, þótt margt sé enn á huldu, svo sem varðandi nánar tímasetningar, tilhögun einstakra verka, greiðslur o.s.frv. Framburður vitnisins B þykir hins vegar ekki vera þess eðlis að hægt sé að byggja dóm á honum, enda var framburður vitnisins lítt afgerandi um framangreind atriði og vitnið leiðitamt fyrir dómi, auk þess sem minni vitnisins var gloppótt.
- Að öllu framangreindu virtu, með vísan til þess að texti umræddra sölureikninga P ehf., Q ehf., Manna og verka ehf. og Hornbjargs ehf. er mjög almenns eðlis, að sumu leyti í andstöðu við framburði ákærðu og vitna fyrir dómi og lítt lýsandi um þá vinnu sem að baki þeim býr, svo og með hliðsjón af því að hvorki liggja fyrir tímaskýrslur né tilboð til grundvallar reikningunum, auk þess sem ekki hefur verið sýnt fram á að þeir hafi nema að litlu leyti verið greiddir þeim félögum sem þá gáfu út, þ.e. einungis að hluta til í tilviki Hornbjargs ehf., þá verður að fallast á þau sjónarmið ákæruvaldsins og skattyfirvalda í málinu að um ranga og tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða. Reikningana hafi því ekki mátt færa sem rekstrargjöld í bókhaldi Stapafells ehf. og að ekki hafi mátt nýta innskatt samkvæmt þessum reikningum á móti útskatti félagsins.
- Verður ákærði Lúther samkvæmt framansögðu sakfelldur fyrir þau brot sem honum eru gefin að sök í liðum A, B og C í I. kafla ákærunnar. Þykja brot ákærða sömuleiðis rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
I. kafli ákæru, sem út var gefin 17. maí 2023 – liður D – ákærði Armando
- Ákærði Armando er í D-lið I. kafla ákærunnar ákærður fyrir hlutdeild í skattalagabrotum meðákærða Lúthers samkvæmt A- og B-liðum sama kafla, eða til vara fyrir hlutdeild í bókhaldsbroti ákærða Lúthers samkvæmt C-lið sama kafla, með því að gefa út ranga og tilhæfulausa reikninga á hendur Stapafelli ehf. í nafni félagsins Menn og verk ehf. rekstrarárin 2016 og 2017, sem síðan voru færðir og lagðir til grundvallar í bókhaldi og við skattskil Stapafells ehf. sem liður í ofangreindum brotum meðákærða Lúthers. Er nefndum reikningum nánar lýst í ákærunni og hér að framan, en ekki er deilt um fjárhæðir.
- Verður með vísan til þess sem rakið er hér að framan, við umfjöllun um ákæruliði A, B og C í I. kafla ákærunnar, og að öðru leyti með vísan til gagna málsins, að fallast á það með ákæruvaldinu að sannað sé að ákærði Armando hafi, sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Manna og verka ehf., veitt meðákærða Lúther liðsinni í verki og þannig veitt atbeina sinn í framkvæmd við framningu þeirra skattalagabrota sem lýst er í A- og B-liðum I. kafla ákærunnar. Hefði ákærði Armando ekki gefið út þá reikninga sem hér um ræðir hefði ákærði Lúther ekki getað notað þá reikninga við að fremja þau brot sem lýst er í A- og B-liðum I. kafla ákærunnar. Verður sömuleiðis að miða við að ákærði Armando hafi vitað að um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða, sem ákærði Lúther hygðist færa sem rekstrargjöld í rekstri Stapafells ehf. og nýta innskatt vegna reikninganna til frádráttar á útskatti félagsins.
- Verður ákærði Armando samkvæmt framansögðu sakfelldur fyrir það brot sem honum er gefið að sök í D-lið I. kafla ákærunnar. Þykir brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
I. kafli ákæru, sem út var gefin 17. maí 2023 – liður E
- Ákærðu Armando og Theódóri er í E-lið I. kafla ákærunnar gefin að sök hlutdeild í skattalagabrotum meðákærða Lúthers samkvæmt A- og B-liðum sama kafla, eða til vara hlutdeild í bókhaldsbroti ákærða Lúthers samkvæmt C-lið sama kafla, með því að gefa út eða standa að útgáfu rangra og tilhæfulausra reikninga á hendur Stapafelli ehf. í nafni Hornbjargs ehf. rekstrarárið 2018, sem síðan voru færðir og lagðir til grundvallar í bókhaldi og við skattskil Stapafells ehf. sem liður í ofangreindum brotum meðákærða Lúthers. Er nefndum reikningum nánar lýst í ákærunni og hér að framan, en eins og áður segir er ekki deilt um fjárhæðir í því samhengi.
- Hér að framan, í umfjöllun um ákæruliði A, B og C í I. kafla ákærunnar, var komist að þeirri niðurstöðu að þeir reikningar sem Hornbjarg ehf. gaf út á hendur Stapafelli ehf. á árinu 2018 hafi verið tilhæfulausir, að öðru leyti en því að fallist er á réttmæti reikninganna að því marki sem þeir voru greiddir með millifærslum frá Stapafelli ehf. til Hornbjargs ehf., sem námu 6.500.000 krónum.
- Ákærði Theódór bar fyrir dómi að hann hefði gefið áðurnefnda reikninga út. Ákærði Lúther greindi hins vegar frá því fyrir dómi að ákærði Armando hefði afhent honum reikningana. Að mati dómsins skiptir þó ekki öllu máli varðandi ábyrgð ákærðu Armando og Theódórs hvor þeirra hafi gefið reikningana út eða afhent þá meðákærða Lúther. Með vísan til þess sem að framan er rakið varðandi sameiginlega ábyrgð ákærðu þeirra á rekstri félagsins Hornbjarg ehf. á árunum 2017 og 2018 verður þvert á móti að leggja til grundvallar að ákærðu beri báðir ábyrgð á útgáfu þeirra reikninga sem um ræðir og afhendingu þeirra til meðákærða Lúthers, án tillits til þess hvor þeirra hafi gefið reikningana út.
- Að því virtu og að öðru leyti með vísan til gagna málsins og þess sem að framan er rakið verður að fallast á það með ákæruvaldinu að sannað sé að ákærðu Theódór og Armando hafi veitt meðákærða Lúther liðsinni í verki og þannig veitt atbeina sinn í framkvæmd við framningu þeirra skattalagabrota sem lýst er í A- og B-liðum I. kafla ákærunnar. Hefðu ákærðu ekki gefið út þá reikninga í nafni Hornbjargs ehf. sem hér um ræðir og afhent þá meðákærða Lúther, þá hefði Lúther ekki getað notað þá reikninga við að fremja þau brot sem lýst er í A- og B-liðum I. kafla ákærunnar. Verður sömuleiðis að miða við að ákærðu Theódór og Armando hafi vitað að um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða, sem ákærði Lúther hygðist færa sem rekstrargjöld í rekstri Stapafells ehf. og nýta innskatt vegna reikninganna til frádráttar á útskatti félagsins.
- Verða ákærðu Armando og Theódór samkvæmt framansögðu báðir sakfelldir fyrir þau brot sem þeim eru gefin að sök í E-lið I. kafla ákærunnar. Þykja brot ákærðu sömuleiðis rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
II. kafli ákæru, sem út var gefin 17. maí 2023 – liðir A, B, C og D – ákærðu Armando og Theódór
- Í A-lið II. kafla ákærunnar var fyrirsvarsmanni félagsins A ehf., sem nú er látinn, gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali félagsins gjaldárið 2019 vegna rekstrarársins 2018 með því að færa til gjalda í skattskilum félagsins kostnað á grundvelli sex rangra og tilhæfulausra reikninga frá félaginu Hornbjarg ehf. og þannig oftalið rekstrargjöld í skattskilum félagsins á því ári.
- Í B-lið sama kafla var fyrirsvarsmanni félagsins gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum félagsins vegna allra uppgjörstímabila 2018 og á tímabilinu janúar–ágúst rekstrarárið 2019 með því að offramtelja innskatt á grundvelli rangra og tilhæfulausra sölureikninga frá félaginu Hornbjarg ehf. rekstrarárið 2018 og frá félaginu MM framkvæmdir ehf. rekstrarárið 2019 og þar með vanframtelja virðisaukaskatt vegna sömu uppgjörstímabila sem standa skyldi skil á.
- Í C-lið sama kafla var fyrirsvarsmanni A ehf. gefið að sök að hafa rangfært bókhald félagsins vegna rekstraráranna 2018 og 2019 með því að færa eða láta færa þar til gjalda ranga og tilhæfulausa sölureikninga frá félögunum Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. í þeim tilgangi að hækka rekstrargjöld og innskatt í bókhaldi félagsins.
- Ákærðu Theódóri og Armando er í D-lið II. kafla ákærunnar gefin að sök hlutdeild í þeim skattalagabrotum sem lýst er í A- og B-liðum sama kafla og rakin voru hér að framan, eða til vara fyrir hlutdeild í því bókhaldsbroti sem lýst er í C-lið sama kafla, sbr. framanritað, með því að gefa út eða standa að útgáfu rangra og tilhæfulausra reikninga á hendur A ehf. í nafni Hornbjargs ehf. rekstrarárið 2018 og MM framkvæmda ehf. rekstrarárið 2019, sem síðan voru færðir og lagðir til grundvallar í bókhaldi og við skattskil A ehf., sem liður í ofangreindum brotum. Er nefndum reikningum nánar lýst í ákærunni og hér að framan, en ekki er deilt um fjárhæðir.
- Eins og áður segir lést fyrirsvarsmaður félagsins A ehf. eftir að mál þetta hafði verið þingfest. Féll ákæruvaldið í kjölfar þess frá þeim ákæruliðum sem hann vörðuðu við upphaf aðalmeðferðar í málinu, sbr. a-lið 1. mgr. 170. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Við þingfestingu málsins neitaði fyrirsvarsmaður A ehf. hins vegar sök og voru sú neitun og sjónarmið að baki henni áréttuð og rökstudd frekar í greinargerð verjanda hans fyrir dómi, sem lögð var fram í málinu á dómþingi hinn 2. nóvember 2023.
- Af framangreindum ástæðum hefur takmörkuð sönnunarfærsla farið fram fyrir dómi um ætluð brot samkvæmt ákæruliðum A, B og C í II. kafla ákærunnar. Fyrirsvarsmaður A ehf. gaf skýrslu hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins þann 11. nóvember 2019 að viðstöddum lögmanni. Neitaði hann þar að um hafi verið að ræða tilhæfulausa reikninga og sagði að raunveruleg vinna hefði verið að baki þeim, sem unnin hefði verið af útlendingum. Sagði hann sömuleiðis að reikningarnir hefðu verið greiddir með reiðufé, sem afhent hefði verið í vinnuskúr. Kannaðist fyrirsvarsmaður sömuleiðis við að hafa hitt ákærða Theódór en ekki við að hafa hitt ákærða Armando.
- Að því virtu að fyrirsvarsmaður A ehf., sem nú er látinn, hefur frá upphafi þessa máls neitað sök og hafnað því að um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða, líkt og ákærðu Armando og Theódór, þar sem ákæruvaldið hefur nú fallið frá ákæruliðum A, B og C í II. kafla ákærunnar og takmörkuð sönnunarfærsla þar af leiðandi farið fram fyrir dóminum um þá ákæruliði, eða meinta háttsemi fyrirsvarsmanns A ehf. sem þar var lýst, sem ákærðu Theódóri og Armando er gefið að sök að hafa átt hlutdeild í, þá verður ekki hjá því komist að sýkna ákærðu Theódór og Armando af þeim brotum sem þeim eru gefin að sök í D-lið II. kafla ákærunnar. Eru þau brot sem ákærðu eru þar gefin að sök ósönnuð að mati dómsins, en ákæruvaldið verður að bera halla af þeim sönnunarskorti, sbr. 108. og 109. gr. laga nr. 88/2008.
III. kafli ákæru, sem út var gefin 17. maí 2023 – liðir A, B og C – ákærði Hermann
- Ákærða Hermanni Ragnarssyni er í A-lið III. kafla ákærunnar, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra félagsins HR Bygg ehf. (áður Parket og smíðar ehf.) gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali félagsins gjaldárið 2019 vegna rekstrarársins 2018 með því að færa til gjalda í skattskilum félagsins kostnað á grundvelli fimm rangra og tilhæfulausra reikninga frá félaginu Hornbjarg ehf. og þannig oftalið rekstrargjöld í skattskilum félagsins á því ári.
- Í B-lið sama kafla er ákærða Hermanni gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum félagsins HR Bygg ehf. vegna allra uppgjörstímabila 2018 og á tímabilinu janúar–ágúst rekstrarárið 2019 með því að offramtelja innskatt á grundvelli rangra og tilhæfulausra sölureikninga frá félaginu Hornbjargi ehf. rekstrarárið 2018 og frá félaginu MM framkvæmdir ehf. rekstrarárið 2019 og þar með að vanframtelja virðisaukaskatt vegna sömu uppgjörstímabila, sem standa skyldi skil á.
- Í C-lið sama kafla er ákærða Hermanni gefið að sök að hafa rangfært bókhald félagsins HR Bygg ehf. vegna rekstraráranna 2018 og 2019 með því að færa eða láta færa þar til gjalda ranga og tilhæfulausa sölureikninga frá félögunum Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. í þeim tilgangi að hækka rekstrargjöld og innskatt í bókhaldi félagsins.
- Framangreindir ákæruliðir A, B og C í III. kafla ákærunnar byggja allir á þeim forsendum að ákærði Hermann hafi sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri HR Bygg ehf. fært til gjalda í bókhaldi félagsins kostnað samkvæmt reikningum, út- gefnum af félögunum Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf., sem ekki hafi átt sér stoð í raunveruleikanum, og þannig oftalið rekstrargjöld félagsins í skattskilum vegna rekstrarársins 2018, svo og nýtt innskatt vegna þessara reikninga á móti útskatti félagsins á árunum 2018 og 2019. Verður samkvæmt því fjallað um þessa ákæruliði í einu lagi. Eru oftalin rekstrargjöld og oftalinn innskattur nánar útlistuð hér að framan og í ákæru, en sem fyrr segir er ekki tölulegur ágreiningur um einstaka liði ákærunnar.
- Ákærði Hermann neitar sök og ber því við að um raunverulega þjónustu hafi verið að ræða, sem greitt hafi verið fyrir með reiðufé að ósk meðákærðu Theódórs og Armando. Kvaðst ákærði hafa verið í sambandi við meðákærða Theódór vegna Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. en þó ekki miklu. Þá kvaðst hann hafa verið í sambandi við Armando, sem hafi verið verkstjóri fyrir hönd félaganna á verkstað. Lýsti ákærði Hermann því jafnframt fyrir dómi að þjónustan sem Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. hefðu veitt hafi verið vegna verka að [...] og að [...] í Reykjavík og við verkefni í Hafnarfirði. Kvaðst ákærði Hermann fyrir dómi hafa greitt meðákærða Theódóri fyrir verkin, en að hann hefði samið við meðákærða Armando um aðkomu Hornbjargs ehf. að verkefnum HR Bygg ehf.
- Meðákærði Theódór mundi ekki eftir ákærða Hermanni er hann var spurður fyrir dómi hvort hann kannaðist við hann. Meðákærði Armando mundi eftir því að hafa unnið að verkum fyrir HR Bygg en hvorki hann né Theódór mundu sérstaklega eftir þeim verkefnum sem Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. hefðu unnið að á vegum HR Bygg ehf. Gat hvorugur þeirra til að mynda nefnt þau verkefni að fyrra bragði sem ákærði Hermann nefndi í skýrslu sinni fyrir dóminum.
- Sagði ákærði Theódór auk þess fyrir dómi að veitt þjónusta þessara félaga í þágu HR Bygg ehf. hefði falist í málningarvinnu á meðan ákærði Armando sagði að um almenna byggingarvinnu hefði verið að ræða. Í framburði Hermanns kom hins vegar fram að Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. hefðu unnið að þakviðgerðum, sinnt vinnu við þakkant og þakrennur, við steyptar svalir o.fl. á vegum HR Bygg ehf. Voru ákærðu samkvæmt því ekki sammála um eðli þeirrar þjónustu sem þeir sögðu hafa verið veitta.
- Ákærði Hermann lýsti því einnig fyrir dómi að einn reikningur, útgefinn af MM framkvæmdum ehf. á árinu 2019, hefði verið rangur. Reikningurinn hafi verið að fjárhæð 7.200.000 krónur en átt að vera að fjárhæð 720.000 krónur. Það hafi síðar verið leiðrétt. Eigi að síður verður ekki betur séð en að ákærði Hermann hafi nýtt innskatt vegna hins upphaflega reiknings við virðisaukaskattsskil HR Bygg ehf. jafnvel þótt það hafi síðar verið leiðrétt. Meðákærði Theódór kannaðist auk þess ekkert við að reikningur hefði verið rangur eða lækkaður eftir á.
- Ákærði Hermann hefur lagt fram ljósmyndir og verksamninga varðandi hluta þeirra verka sem hann segir að menn á vegum Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. hafi unnið við, þ.e. að [...] og í [...] í Reykjavík. Eru þeir verksamningar ekki á milli verkkaupa og HR Bygg ehf. heldur á milli verkkaupa og félagsins RH smíðar ehf., sem ákærði Hermann segist einnig eiga. Að mati dómsins er ástæðulaust að draga í efa að umrædd verk hafi verið unnin af síðarnefnda félaginu í samræmi við nefnda verksamninga.
- Ákærði Hermann hefur einnig gefið þær skýringar að HR Bygg ehf. hafi verið undirverktaki hjá RH smíðum ehf. og að hann hafi verið á launum hjá því félagi. Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. hafi jafnframt verið undirverktakar hjá HR Bygg ehf. og sem slíkir unnið að þeim verkefnum sem RH smíðar ehf. unnu að samkvæmt framangreindum verksamningum. Ástæða þess hafi verið sú að ákærði hafi viljað forðast tafabætur og því viljað hraða umræddum verkum með aðstoð undirverktaka.
- Framangreindur framburður ákærða Hermanns er að mati dómsins ótrúverðugur. Í fyrsta lagi er ekkert sem styður að menn á vegum Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. hafi nokkru sinni unnið við umrædd verk, jafnvel þótt ástæðulaust sé að draga í efa að RH smíðar ehf. hafi uppfyllt skyldur sínar við verkkaupa samkvæmt nefndum verksamningum. Þá er einnig ljóst að ef verkin hefðu tafist hefðu tafabætur samkvæmt verksamningunum lent á félaginu RH smíðar ehf. en ekki á félaginu HR Bygg ehf., enda átti síðarnefnda félagið enga aðild að verksamningunum og bar þar af leiðandi ekki ábyrgð gagnvart verkkaupa á grundvelli þeirra. Það hefði því verið rökréttara, miðað við framburð ákærða Hermanns fyrir dómi, ef undirverktakar hefðu unnið fyrir félagið RH smíðar ehf. fremur en fyrir félagið HR Bygg ehf.
- Ákærði Hermann bar auk þess fyrir dómi að meðákærði Armando hefði afhent honum þá reikninga sem hér um ræðir. Hann hefði spurt Armando hver hefði gefið út reikningana og fengið þau svör að það hafi Theódór gert. Er þessi framburður ákærða torkennilegur að mati dómsins enda vandséð hvers vegna ákærði hefði átt að spyrja meðákærða Armando þessarar spurningar að því gefnu að um hefðbundin viðskipti hafi verið að ræða. Styður þessi framburður ákærða Hermanns að mati dómsins þvert á móti þá ályktun að ekki hafi verið um eðlileg viðskipti að ræða.
- Ákærði Hermann hefur sömuleiðis greint frá því fyrir dómi að umræddir reikningar hafi verið greiddir með reiðufé og meðal annars fjármagnaðir með lánsfé frá föður hans, vitninu G, sem hefði látið ákærða í té reiðufé. Lán vitnisins hefði síðar verið formgert með útgáfu fjögurra skuldabréfa, sem öll hafa verið lögð fram í málinu. Eru tvö bréfanna útgefin af RH smíðum ehf. og tvö þeirra af HR Bygg ehf. (þá Parket og smíðar ehf.).
- Að mati dómsins hafa framangreind skuldabréf enga þýðingu í málinu, enda segja þau ekkert um það hvort um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða eða ekki, né heldur um það hvort reikningarnir hafi verið greiddir eða þá hvernig. Hið sama má segja um framburð framangreinds vitnis. Hefur framburður vitnisins að mati dómsins ekkert sönnunargildi um það hvort reikningar Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. á hendur HR Bygg ehf. hafi verið tilhæfulausir eða ekki, eða hvort þeir hafi verið greiddir.
- Að framangreindu virtu er það mat dómsins að framburður ákærða Hermanns varðandi þá þjónustu sem hann segir að hafi verið að baki umræddum reikningum, út- gefnum af Hornbjargi ehf. og MM framkvæmdir ehf. á hendur HR Bygg ehf., sé ótrúverðugur. Framburður meðákærðu Theódórs og Armando þykir sömuleiðis ekki trúverðugur um þau atriði, enda voru framburðir þeirra lítt afgerandi og minni þeirra hverfult, auk þess sem framburðir þeirra eiga sér ekki stoð í öðrum gögnum málsins.
- Að því virtu, með vísan til þess að texti umræddra sölureikninga Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. er mjög almenns eðlis og segir lítið sem ekkert um þá vinnu sem að baki þeim býr, ekkert liggur fyrir um að menn á vegum þessara félaga hafi unnið að þeim verkum sem ákærði Hermann segir að félögin hafi unnið að, svo og með hliðsjón af því að hvorki liggja fyrir tímaskýrslur né tilboð til grundvallar reikningunum, auk þess sem ekki hefur verið sýnt fram á að þeir hafi verið greiddir þeim félögum sem þá gáfu út, verður að fallast á þau sjónarmið ákæruvaldsins og skattyfirvalda í málinu að um ranga og tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða, sem ekki hafi mátt færa sem rekstrargjöld í bókhaldi HR Bygg ehf. Að sama skapi hafi ekki mátt nýta innskatt samkvæmt þessum reikningum á móti útskatti félagsins.
- Þá er einnig að mati dómsins ósannað að fjárhæð áðurnefnds reiknings MM framkvæmda ehf. hafi verið röng, auk þess sem brot ákærða Hermanns var hvað hann varðar fullframið er hann nýtti sér innskatt af reikningnum á móti útskatti HR Bygg ehf., óháð því hvað síðar gerðist.
- Verður ákærði Hermann samkvæmt framansögðu sakfelldur fyrir þau brot sem honum eru gefin að sök í liðum A, B og C í III. kafla ákærunnar. Þykja þessi brot ákærða sömuleiðis rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
III. kafli ákæru, sem út var gefin 17. maí 2023 – liður D – ákærðu Armando og
Theódór
- Ákærðu Armando og Theódóri er í D-lið III. kafla ákærunnar gefin að sök hlutdeild í skattalagabrotum meðákærða Hermanns samkvæmt A- og B-liðum sama kafla, eða til vara fyrir hlutdeild í bókhaldsbroti ákærða Hermanns samkvæmt C-lið sama kafla, með því að gefa út eða standa að útgáfu rangra og tilhæfulausra reikninga á hendur HR Bygg ehf. í nafni félagsins Hornbjarg ehf. rekstrarárið 2018 og í nafni félagsins MM framkvæmdir ehf. rekstrarárið 2019, sem síðan voru færðir og lagðir til grundvallar í bókhaldi og við skattskil HR Bygg ehf. sem liður í ofangreindum brotum meðákærða Hermanns. Er nefndum reikningum nánar lýst í ákærunni og hér að framan, en ekki er ágreiningur um fjárhæðir.
- Ákærði Theódór hefur gengist við því fyrir dómi að hafa gefið út þá reikninga Hornbjargs ehf. og MM framkvæmda ehf. sem gefnir voru út á hendur HR Bygg ehf. Meðákærði Armando hefur kannast við störf á vegum þessara félaga fyrir HR Bygg ehf. Báðir neita þeir því að um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða. Það gerir einnig meðákærði Hermann, sem greindi frá því fyrir dómi að Armando hefði afhent honum reikninga, útgefna af MM framkvæmdum ehf., og sagt honum að ákærði Theódór hefði gefið reikningana út.
- Hér að framan var komist að þeirri niðurstöðu að ákærðu Theódór og Armando bæru sameiginlega ábyrgð á rekstri Hornbjargs ehf. á árinu 2018. Vísast til þeirrar umfjöllunar í þessu samhengi, þ.e. hvað varðar reikninga útgefna af því félagi á hendur HR Bygg ehf. Ákærði Theódór var einnig stjórnarmaður og framkvæmdastjóri félagsins MM framkvæmdir ehf. Ekki verður hins vegar af gögnum málsins séð að ákærði Armando hafi tengst því félagi með formlegum hætti. Á hinn bóginn bendir það sem fram er komið í málinu til þess að mati dómsins að Armando hafi átt þátt í stjórnun þess félags, líkt og hjá Hornbjargi ehf.
- Að öllu framangreindu virtu, þar sem fallist hefur verið á að um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða og með vísan til framburðar meðákærða Hermanns um aðkomu ákærða Armando að uppgjöri vegna félagsins MM framkvæmdir ehf., svo og að öðru leyti með vísan til gagna málsins, verður að fallast á það með ákæruvaldinu að sannað sé að ákærðu Theódór og Armando hafi veitt meðákærða Hermanni liðsinni í verki og þannig veitt atbeina sinn í framkvæmd við framningu þeirra skattalagabrota sem lýst er í A- og B-liðum III. kafla ákærunnar. Hefði ákærði Theódór ekki gefið út þá reikninga í nafni félaganna Hornbjarg ehf. og MM framkvæmdir ehf. sem hér um ræðir og ákærði Armando afhent þá meðákærða Hermanni, þá hefði ákærði Hermann ekki getað notað þá reikninga við að fremja þau brot sem lýst er í A- og B-liðum III. kafla ákærunnar. Verður sömuleiðis að miða við að ákærðu Theódór og Armando hafi vitað að um tilhæfulausa reikninga hafi verið að ræða, sem ákærði Hermann hygðist færa sem rekstrargjöld í rekstri HR Bygg ehf. og nýta innskatt vegna reikninganna til frádráttar á útskatti félagsins.
- Verða ákærði Theódór og ákærði Armando samkvæmt framansögðu sakfelldir fyrir þau brot sem þeim eru gefin að sök í D-lið III. kafla ákærunnar. Þykja brot ákærðu sömuleiðis rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Niðurstaða varðandi ákvörðun refsingar
- Ákærði Lúther hefur hér að framan verið sakfelldur fyrir þau brot sem honum eru gefin í sök í liðum A, B og C í I. kafla ákærunnar sem út var gefin 17. maí 2023 (seinni ákæran). Ákærði Hermann hefur hér að framan verið sakfelldur fyrir þau brot sem honum eru gefin að sök í liðum A, B og C í III. kafla sömu ákæru. Ákærðu Theódór og Armando hafa hér að framan verið sakfelldir fyrir þau brot sem þeim eru gefin að sök í E-lið í I. kafla sömu ákæru og D-lið í III. kafla ákærunnar, auk brota sem þeim voru gefin á sök með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 16. maí 2023 (fyrri ákæran). Loks hefur ákærði Armando verið sakfelldur fyrir brot sem honum er gefið að sök í D-lið í I. kafla ákærunnar sem út var gefin 17. maí 2023 (seinni ákæran). Ákærðu Armando og Theódór hafa hins vegar verið sýknaðir af broti samkvæmt D-lið II. kafla ákærunnar sem út var gefin 17. maí 2023 (seinni ákæran). Verður ákærðu samkvæmt þessu gerð refsing í máli þessu.
- Ákærði Lúther hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Brot hans samkvæmt ákæruliðum A, B og C í I. kafla ákærunnar eru hins vegar stórfelld og framin í hagnaðarskyni. Endurspegla brotin styrkan og einbeittan brotavilja ákærða. Er það virt honum til refsiþyngingar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing ákærða, sem ákveðin er með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga, þykir að öllu framangreindu virtu og með hliðsjón af umfangi brota ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í 12 mánuði.
- Langur tími er liðinn frá framningu brota ákærða Lúthers, auk þess sem tæp þrjú ár liðu frá því að málið barst embætti héraðssaksóknara og þar til ákæra var gefin út, án þess að séð verði að ákærði geti borið ábyrgð á því. Þykir með hliðsjón af því og hreinum sakarferli ákærða rétt að fresta fullnustu dæmdrar refsivistar skilorðsbundið í tvö ár frá uppkvaðningu dóms þessa að telja og falli dæmd refsivist ákærða niður að þeim tíma liðnum haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
- Ákærði Hermann hefur einu sinni áður hlotið refsingu, sem ekki hefur þýðingu hér. Brot ákærða samkvæmt ákæruliðum A, B og C í III. kafla ákærunnar eru hins vegar framin í hagnaðarskyni. Endurspegla brotin styrkan og einbeittan brotavilja ákærða. Er það virt honum til refsiþyngingar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing ákærða, sem ákveðin er með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga, þykir að öllu framangreindu virtu og með hliðsjón af umfangi brota ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í sjö mánuði.
- Langur tími er liðinn frá framningu brotanna, auk þess sem tæp þrjú ár liðu frá því að málið barst embætti héraðssaksóknara og þar til ákæra var gefin út, án þess að séð verði að ákærða sé um að kenna. Þykir með hliðsjón af því og sakarferli ákærða rétt að fresta fullnustu dæmdrar refsivistar skilorðsbundið í tvö ár frá uppkvaðningu dóms þessa að telja og falli dæmd refsivist ákærða niður að þeim tíma liðnum haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
- Ákærði Armando á nokkurn sakaferil að baki. Voru flestir þeir reikningar sem að framan eru taldir gefnir út áður en ákærði hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjaness 1. júlí 2019. Var ákærða með þeim dómi gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði vegna brots gegn 1. tölulið 127. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, sbr. 1. málslið sömu lagagreinar. Með dómi Landsréttar 28. febrúar 2020 var ákærða gert að sæta fangelsi í fimm mánuði, þar af fjóra mánuði skilorðsbundið í tvö ár, meðal annars fyrir brot gegn lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 36. gr., sbr. 1. og 2. tölulið 1. mgr. 37. gr., laga nr. 145/1994 um bókhald. Með dómi Landsréttar 8. október 2021 var ákærði dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar fyrir brot gegn 36. gr. og 1. og 2. tölulið 37. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald og 1., sbr. 2., mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga. Er sú refsing sem ákærða er gerð í þessu máli hegningarauki við framangreinda dóma, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga.
- Þau brot ákærða Armando sem hann hefur verið sakfelldur fyrir hér að framan, þ.e. brot samkvæmt ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 16. maí 2023, og samkvæmt ákæruliðum D og E í I. kafla og ákærulið D í III. kafla ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 17. maí 2023, eru að mati dómsins stórfelld og skipulögð. Endurspegla brotin styrkan og einbeittan brotavilja ákærða. Er það virt honum til refsiþyngingar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er því hafnað að ákvæði laga nr. 29/2021, sem breyttu fyrirkomulagi skattrannsókna, eða fyrirmæli ríkissaksóknara frá 25. ágúst 2021 nr. 6/2021 geti haft nokkra þýðingu við heimfærslu brota ákærða til refsiákvæða og um leið á refsingu hans í málinu, enda verður ekki séð að framangreind lög eða fyrirmæli hafi breytt nokkru um refsinæmi skattalagabrota eða lögbundin viðurlög við þeim.
- Refsing ákærða Armando, sem ákveðin er með hliðsjón af framansögðu, sakaferli ákærða og 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga, þykir að öllu framangreindu virtu hæfilega ákvörðuð fangelsi í 12 mánuði. Kemur sú refsing til viðbótar þeirri refsingu sem ákærði hlaut með framangreindum dómum. Í ljósi sakaferils ákærða og þá ekki síst þar sem um hegningarauka er að ræða við framangreinda dóma Landsréttar frá 28. febrúar 2020 og 8. október 2021 þykir ekki koma til álita að skilorðsbinda refsivist ákærða, þrátt fyrir að langt sé um liðið frá því að brotin voru framin.
- Ákærði Theódór á alllangan brotaferil að baki. Var honum meðal annars gerð refsing vegna umferðarlagabrots með viðurlagaákvörðun fyrir Héraðsdómi Vesturlands 13. mars 2020. Þá gerði ákærði sátt fyrir lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. janúar 2021. Ákærði var dæmdur í 60 daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness 26. mars 2021 fyrir þjófnað. Hann var sömuleiðis þann 16. nóvember 2021 dæmdur til sektarrefsingar fyrir eignaspjöll fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra. Loks var ákærði dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar í Héraðsdómi Reykjavíkur 23. júní 2022 vegna brota gegn lögum nr. 65/1974 og umferðarlögum nr. 77/2019. Er sú refsing sem ákærði hlýtur í þessu máli hegningarauki við framangreinda dóma, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga.
- Þau brot sem ákærði Theódór hefur verið sakfelldur fyrir hér að framan, þ.e. brot samkvæmt ákæru, útgefinni 16. maí 2023, og ákæruliðum E í I. kafla og ákærulið D í III. kafla ákæru, útgefinni 17. sama mánaðar, eru að mati dómsins stórfelld og skipulögð. Endurspegla brotin styrkan og einbeittan brotavilja ákærða. Er það virt honum til refsiþyngingar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing ákærða, sem ákveðin er með hliðsjón af framansögðu, sakaferli ákærða og 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga, þykir að öllu framangreindu virtu hæfilega ákvörðuð fangelsi í 12 mánuði.
- Í ljósi sakaferils ákærða þykir ekki koma til álita að skilorðsbinda refsivist ákærða að öllu leyti, en þar sem langur tími er liðinn frá framningu brotanna og liðið hafa tæp þrjú ár frá því að málið barst embætti héraðssaksóknara og þar til ákæra var gefin út, án þess að séð verði að ákærða sé þar um að kenna, þykir rétt að fresta skilorðsbundið í tvö ár fullnustu níu mánaða af 12 mánaða fangelsisrefsingu ákærða, sbr. 1. mgr. 57. gr. a í almennum hegningarlögum. Falli skilorðsbundinn hluti refsivistar ákærða niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þess að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
- Auk refsivistar ber að dæma alla ákærðu til greiðslu sektar í ríkissjóð. Að teknu tilliti til dómaframkvæmdar í sambærilegum málum þykir hæfilegt að ákærði Lúther Ólason greiði 55.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs og komi 360 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu þessa dóms.
- Að teknu tilliti til dómaframkvæmdar í sambærilegum málum þykir hæfilegt að ákærði Hermann Ragnarsson greiði 15.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs og komi 210 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu þessa dóms.
- Að teknu tilliti til dómaframkvæmdar í sambærilegum málum þykir hæfilegt að ákærðu Armando Luis Rodriguez og Theódór Heiðar Þorleifsson greiði hvor um sig 50.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs og komi 360 daga fangelsi í stað sektarinnar hjá hvorum um sig verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu þessa dóms.
- Ákærðu skulu allir vera sýknir af kröfu ákæruvaldsins um að þeim verði með vísan til 4. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 56/2019, bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meiri hluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár, enda verður ekki séð að skilyrði standi til þess að fallist verði á kröfu ákæruvaldsins að þessu leyti.
- Er þá meðal annars litið til þess að umrætt lagaákvæði var tekið upp í almenn hegningarlög með 1. gr. laga nr. 56/2019, en þau brot sem ákærðu hafa verið sakfelldir fyrir voru framin á árunum 2016–2019, þ.e. að langmestu leyti áður en umrædd lög tóku gildi. Að því virtu og með hliðsjón af 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga þykir því ekki koma til álita að fallast á þessa kröfu ákæruvaldsins í málinu. Verða ákærðu látnir njóta vafans hvað hana varðar, sbr. 108. gr. laga nr. 88/2008.
- Ákærðu hafa allir verið sakfelldir fyrir þau brot sem þeim hafa verið gefin að sök í máli þessu, að því undanskildu að ákærðu Armando og Theódór hafa verið sýknaðir af brotum samkvæmt D-lið II. kafla ákærunnar sem út var gefin 17. maí 2023. Verður ákærðu því gert að greiða allan sakarkostnað málsins, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, sbr. 1. mgr. 38. gr. og a-lið 1. mgr. 233. gr. sömu laga.
- Ákærði Lúther Ólason greiði að því virtu málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin með hliðsjón af tímaskýrslu lögmannsins og umfangi málsins 4.836.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
- Ákærði Hermann Ragnarsson greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Elvu Óskar S. Wiium lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin með hliðsjón af tímaskýrslu lögmannsins og umfangi málsins 3.772.080 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
- Ákærði Armando Luis Rodriguez greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin með hliðsjón af tímaskýrslu lögmannsins og umfangi málsins 4.836.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
- Ákærði Theódór Heiðar Þorleifsson greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jónasar Arnar Jónassonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin með hliðsjón af tímaskýrslu lögmannsins og umfangi málsins 3.989.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari.
- Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Lúther Ólason, sæti fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu refsivistarinnar skilorðsbundið í tvö ár frá birtingu dómsins að telja og falli hún niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði, Hermann Ragnarsson, sæti fangelsi í sjö mánuði en fresta skal fullnustu refsivistarinnar skilorðsbundið í tvö ár frá birtingu dómsins að telja og falli hún niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði, Armando Luis Rodriguez, sæti fangelsi í 12 mánuði.
Ákærði, Theódór Heiðar Þorleifsson, sæti fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu níu mánaða af þeirri refsingu skilorðsbundið í tvö ár frá birtingu dómsins að telja og falli hún niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði, Lúther Ólason, greiði 55.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs og komi 360 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að telja.
Ákærði, Hermann Ragnarsson, greiði 15.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs og komi 210 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að telja.
Ákærðu, Theódór Heiðar Þorleifsson og Armando Luis Rodriguez, greiði hvor um sig 50.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs og komi 360 daga fangelsi í stað sektarinnar hjá hvorum um sig verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að telja.
Ákærðu eru allir sýknir af kröfu ákæruvaldsins um að þeim verði með vísan til 4. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 56/2019, bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meiri hluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár.
Ákærði, Lúther Ólason, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 4.836.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði, Hermann Ragnarsson, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Elvu Óskar S. Wiium lögmanns, 3.772.080 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði, Armando Luis Rodriguez, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, 4.836.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði, Theódór Heiðar Þorleifsson, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jónasar Arnar Jónassonar lögmanns, 3.989.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.