Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 63. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. ágúst 2017

S-253/2017

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson saksóknarfulltrúi) gegn Eduards Naglis
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalabrot, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Honum var gerður hegningarauki við dóm frá árslokum 2015 og var refsing þess dóms tekin upp og ákærða nú dæmd refsing í einu lagi. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til eins árs. Þá var ákærði jafnframt sviptur ökurétti í þrjú ár frá dómsbirtingu að telja og var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.

Hæstiréttur birt 2. mars 2006

467/2005

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari) gegn Einari Þór Sigríðarsyni (Halldór Helgi Backman hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

E var í fyrsta lagi gefið að sök að hafa í félagi við annan mann stolið bensíni úr tanki bifreiðar, í öðru lagi að hafa ekið bifreið án þess að hafa meðferðis ökuskírteini og í þriðja lagi að hafa haft eiturlyf í vörslum sínum. E var í héraði dæmdur í fangelsi í 11 mánuði, og var 10 mánaða skilorðsdómur dæmdur með. Héraðsdómara hafði hins vegar ekki verið kunnugt um að umræddur skilorðsdómur hafði áður verið dæmdur með. Brot E voru framin áður en hann hlaut 14 mánaða fangelsisdóm. Að því virtu og þegar litið var til þess að E játaði greiðlega brot sín var niðurstaða Hæstaréttar sú að E skyldi ekki gerð sérstök refsing fyrir framangreind brot.

Hæstiréttur birt 9. desember 1999

410/1999

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Guðmundi Max Jónssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

G var dæmdur fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og að hafa stofnað í hættu lífi eða heilsu fjölda fólks, með því að hafa ekið bifreiðinni inn í mannþröng og á ljósastaur með þeim afleiðingum að staurinn brotnaði og féll niður á gangstétt þar sem fólk var saman komið. Var G gerð fangelsisrefsing vegna þessa.