Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 8. mgr. 100. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 17. desember 2021

56/2021

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Ásgeiri Gunnarssyni (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Á var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir akstur samtímis undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna. Með dómi héraðsdóms var Á gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, og greiða jafnframt 300.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 20 daga. Loks var Á sviptur ökurétti í 15 mánuði, fyrst í 12 mánuði frá 15. september 2019 til 15. september 2020 en að auki í þrjá mánuði frá birtingu dómsins að telja. Þá voru haldlögð fíkniefni gerð upptæk. Fyrir Landsrétti undi Á niðurstöðu héraðsdóms um fangelsisrefsingu og greiðslu sektar en krafðist styttingar á sviptingu ökuréttar vegna ölvunar- og fíkniefnaaksturs. Í dómi Landsréttar kom fram að af dómum Hæstaréttar Íslands í málum nr. 335/2008 og 222/2015 þætti mega draga þá ályktun að þegar svo háttaði til eins og í tilviki Á sem ökumanns sem væri samtímis undir áhrifum áfengis og fíkniefna bæri að dæma honum sekt fyrir hvort tveggja þessara brota en ákvarða ökuréttarsviptingu eftir því hvort ölvunar- eða fíkniefnaakstur ætti að leiða til lengri sviptingar en ekki að samanlögðum tíma fyrir bæði brotin. Með vísan til þessa þótti rétt að Á sætti sviptingu ökuréttar í 12 mánuði. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur að öðru leyti, það er um ákvörðun refsingar ákærða, upptöku fíkniefna og sakarkostnað.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 2. júní 2016

S-96/2016

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn X
Lykilorð: Skjalabrot.
Málaflokkur: Skjalafals

Skjalabrot, umferðarlagabrot

Hæstiréttur birt 9. júní 2011

630/2010

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari) gegn Ómari Svan Ómarssyni (Gísli M. Auðbergsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ó var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi við X haft í vörslum sínum 241,32 g af hassi og 29,73 g af MDMA, sem fundust við leit lögreglu í bifreið þeirra. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti, var refsing ákærða ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Þá voru fíkniefnin gerð upptæk.

Héraðsdómur Austurlands birt 1. október 2009

S-48/2009

Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi, Birna Kristín Einarsdóttir sýslumannsfulltrúi) gegn Agnesi Ósk Þorgrímsdóttur (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelld fyrir að hafa í tvígang ekið svipt ökurétti og að hafa í bæði skiptin í blekkingarskyni framvísað ökuskírteini þrátt fyrir að vera svipt ökuréttindum. Þá var hún sakfelld fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var A dæmd til að greiða sekt og var svipt ökurétti.

Hæstiréttur birt 4. desember 2008

335/2008

Ákæruvaldið gegn Friðþóri Erni Kristinssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

F var sakfelldur fyrir þjófnað með því að hafa stolið tveimur leikjatölvum og fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í tvígang og í síðara skiptið einnig undir áhrifum áfengis. F var dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu fimm mánaða refsingarinnar var frestað. Þá var F dæmdur til greiðslu 250.000 króna sektar og sviptur ökurétti í þrjú ár.