Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (umsáturseinelti). nr. 5/2021
Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi.
Maður sakfelldur fyrir umsáturseinelti og kynferðislega áreitni.
Sakfellt fyrir umsáturseinelti. Fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi. Miskabætur
X var sakfelldur fyrir brot gegn 232. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa sett sig endurtekið í samband við A á rúmlega sex mánaða tímabili og viðhaft nánar tilgreind ummæli. Í niðurstöðu Landsréttar var rakið að með því að setja sig endurtekið í samband við A með nánar tilgreindum hætti hefði X gerst sekur um háttsemi sem félli að verknaðarlýsingu 232. gr. a laga nr. 19/1940. Hafði X einbeittan ásetning til háttseminnar og lét ekki af henni þrátt fyrir að A hefði ítrekað óskað eftir því að X léti hana í friði. Hefðu þau skilaboð sem X sendi til A þannig verið til þess fallin að valda A hræðslu eða kvíða í skilningi 232. a laga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 600.000 krónur í miskabætur.
X var sakfelldur samkvæmt tveimur ákærum fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa á tilgreindu tímabili áreitt A, fyrrverandi maka sinn og barnsmóður, og beitt hana andlegu ofbeldi með nánar tilgreindum símtölum og smáskilaboðum. Þá var hann sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot með því að hafa slegið nokkrum sinnum í átt að A, er hún hélt á syni þeirra, þar af einu sinni í handlegg hennar, og hrint henni. Eins var hann sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa í 12 tilgreind skipti elt A og setið fyrir henni. Í dómi Landsréttar kom fram að þegar háttsemi X væri virt í heild sinni væri sannað og engum vafa undirorpið að hann beitti A hótunum og andlegu ofbeldi með smánandi, vanvirðandi og óviðeigandi ummælum í hennar garð. Þá væri það framferði hans að elta A og sitja fyrir henni til þess fallið að ógna lífi hennar, heilsu og velferð, en í þessum athöfnum X hefði falist mikið andlegt ofbeldi. Var háttsemi X samkvæmt báðum ákærum heimfærð til 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var höfð hliðsjón af 1., 5, 6, og 7 tölulið 70. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Refsing X var ákveðin fangelsi í átta mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 800.000 krónur í miskabætur.
Ákærði var sakfelldur fyrir ofbeldi í nánu sambandi, umsáturseinelti og brot gegn barnaverndarlögum.