Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 14. gr. laga nr. 49/2005 — Lög um fullnustu refsinga
A var handtekinn, úrskurðaður í gæsluvarðhald og síðar vistaður á öryggisgangi fangelsisins að Litla-Hrauni vegna gruns um aðild að stórfelldri líkamsárás í fangelsinu. Með dómi Hæstaréttar 9. mars 2017 var A sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í málinu. Í kjölfarið höfðaði A mál gegn Í og krafðist miskabóta vegna vistunar hans á öryggisdeild, framkvæmdar hennar og nánar tilgreindra ummæla er höfð voru eftir forstjóra Fangelsismálastofnunar í fjölmiðlum. A hélt því fram að ummælin hefðu verið ærumeiðandi í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og gert forstjórann og forstöðumann fangelsisins vanhæf til að taka ákvarðanir um málefni hans. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, var rakið að ákvörðun um vistun A á öryggisdeild sem og síðari framlenging hennar hafi átt sér fullnægjandi stoð í þágildandi lögum nr. 49/2005 um fullnustu refsinga. Ekki var talið liggja fyrir að aðstæður réttlættu ekki slíka ákvörðun. Hvorki var talið sýnt fram á að brotið hafi verið gegn andmælarétti A, rannsóknar-, meðalhófs- eða jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, né að ákvörðun um vistunina hafi falið í sér agaviðurlög í skilningi laga nr. 49/2005. Þá var talið ósannað að framkvæmd og tilhögun vistunarinnar hafi verið ólögmæt svo að bótaskyldu varðaði. Jafnframt var talið ósannað að forstjóri Fangelsismálastofnunar hafi gert sig vanhæfan í málefnum A með ummælum sínum í fjölmiðlum. Þá hafi ummælin ekki falið í sér ólögmæta meingerð gagnvart æru og persónu A. Var Í því sýknað af kröfum A.
Íslenska ríkið var sýknað af kröfu einstaklings um skaðabætur, meðal annars í tengslum við tilhögun á fangelsisvist hans.
A sætti rannsókn og síðar ákæru vegna ætlaðrar aðildar hans að stórfelldri líkamsárás sem leitt hafði til dauða samfanga hans í fangelsinu að Litla-Hrauni. Í þágu rannsóknar málsins var honum gert að sæta gæsluvarðhaldi, auk símhlustunar og hlerunar í klefa hans. Með dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti, var A sýknaður í málinu. Í kjölfarið sömdu A og Í um greiðslu miskabóta vegna gæsluvarðhaldsins og eftir höfðun þessa máls féllst Í einnig á kröfu A um bætur vegna annarra aðgerða við rannsókn fyrrgreinds máls. A krafðist einnig bóta vegna vistunar á öryggisdeild fangelsisins í 541 dag í kjölfar gæsluvarðhaldsins. Byggði A bótakröfu sína á því að vistun hans þar hefði í raun verið í þágu rannsóknar áðurgreinds sakamáls og meðferðar þess fyrir dómi og því farið gegn 70. gr. stjórnarskrárinnar. Með vistuninni hefði einnig verið brotið gegn 67. gr., 71. gr. og 74. gr. stjórnarskrárinnar. Reisti A miskabótakröfu sína annars vegar á 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og hins vegar á 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í dómi Landsréttar var rakið að stjórnvaldsákvarðanir forstöðumanns fangelsisins um vistun A á öryggisdeild hefðu verið teknar á grundvelli sjónarmiða um öryggi og allsherjarreglu í fangelsinu og byggst á lagaheimild, verið í þágu þess lögmæta markmiðs að vernda aðra fanga gegn hugsanlegri hættu sem kynni að stafa af A og að ekki hefði verið völ annars vægara úrræðis sem þjónað hefði markmiðinu. Þá hefði meðalhófs verið gætt við beitingu úrræðisins. Engin efni væru því til að líta svo á að í ákvörðun um vistun A á öryggisdeild hefði falist ályktun um refsiverða háttsemi hans þannig að í bága færi við 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Bótakrafa A yrði því ekki reist á 2. mgr. 246. gr. sakamálalaga, hvorki með beinum hætti né lögjöfnun. Þá var ekki fallist á að brotið hefði verið gegn 67. gr. eða 71. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 5. og 8. gr. mannréttindasáttmálans. Loks var ekki talið að 74. gr. stjórnarskrárinnar ætti við í málinu. Var dómur héraðsdóms staðfestur um sýknu Í af kröfu A um skaðabætur.
Hafnað var kröfu stefnanda um að íslenska ríkið greiddi honum miskabætur vegna vistunar á öryggisdeild fangelsis.
Hafnað var kröfu stefnanda um að íslenska ríkið greiddi honum miskabætur vegna vistunar á öryggisdeild fangelsis.