Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 3. gr. laga nr. 45/2016 — Lög um kjaramál Félags íslenskra flugumferðarstjóra
Í málinu krafðist F þess að viðurkennt yrði að sér væri heimilt, þrátt fyrir ákvæði laga nr. 45/2016 um kjaramál Félags íslenskra flugumferðarstjóra, að efna til verkfalls í samræmi við ákvæði laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur og að kjör félagsmanna sinna yrðu ekki afráðin með ákvörðun gerðardóms samkvæmt fyrrnefndu lögunum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að sama dag og héraðsdómur var kveðinn upp hefðu deiluaðilar gert með sér sátt til að ljúka gerðarmeðferðinni. Samkvæmt henni hefði verið svo um samið að kjarasamningur þeirra frá í júní 2016, sem áður hafði verið felldur í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna F, skyldi gilda með þeim bókunum og samkomulagi, sem honum hefðu fylgt, og yfirlýsingum sem gefnar hefðu verið í tengslum við samningsgerðina. Í ljósi þess að bundinn hefði verið endi á kjaradeilu F og viðsemjanda hans með gerð kjarasamnings, svo sem heimilað hefði verið með lögum nr. 45/2016, var talið að F hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn dómstóla um dómkröfur sínar. Var málinu því vísað frá Hæstarétti.
Stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda um að viðurkennt yrði að honum væri, þrátt fyrir ákvæði 1. gr., 2. gr. og 3. gr. laga nr. 45/2016, heimilt að efna til verkfalls í samræmi við ákvæði lagan nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur og að kjör félagsmanna stefnanda verði ekki afráðin með ákvörðun gerðardóms samkvæmt lögum nr. 45/2016.