Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 31. gr. laga nr. 38/1954 — Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Hæstiréttur birt 7. nóvember 2002

240/2002

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Friðriku Hörpu Ævarrsdóttur (Jónas Haraldsson hrl)

F, sem er lögfræðingur að mennt, réðist til starfa sem fulltrúi sýslumannsins á Akureyri árið 1994. Í nóvember 1996 fór F í barnsburðarleyfi og um rétt hennar til launa í slíku leyfi fór samkvæmt þágildandi reglugerð um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins. F taldi umsamda 30 klukkustunda fasta yfirvinnu á mánuði hafa verið kaupauka við grunnlaun samkvæmt kjarasamningi, sem aukið vinnuframlag hafi ekki komið fyrir, og þannig hluti þeirra dagvinnulauna sem hún ætti rétt á í barnsburðarleyfi. Talið var sannað að vinnuframlag umfram dagvinnu skyldi ekki koma fyrir greiðslu fyrrgreindra 30 yfirvinnustunda á mánuði. Var lagt til grundvallar niðurstöðu í málinu að umsamið endurgjald F fyrir átta stunda vinnudag skyldi vera laun samkvæmt viðeigandi launaflokki og andvirði 30 yfirvinnustunda. Var talið fullt tilefni til að taka fram í umræddri reglugerð að um dagvinnulaun samkvæmt kjarasamningi væri að ræða, hafi önnur laun fyrir dagvinnu ekki átt að koma til greiðslu í barnsburðarleyfi starfsmanna. Fallist var á kröfu F en enginn tölulegur ágreiningur var í málinu. Þá var miðað við að vanefnd hafi orðið af hálfu Í 1. desember 1998, eða mánuði eftir að F gerði athugasemdir við greiðslu launa í barnsburðarleyfinu, og var krafan látin bera dráttarvexti frá þeim tíma. Aðfinnsluvert þótti hvernig héraðsdómsstefna og héraðsdómur voru úr garði gerð.

Hæstiréttur birt 30. mars 2000

435/1999

Haraldur Ásgeirsson (Helgi V. Jónsson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, til vara gegn, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og íslenska ríkinu (Jón G. Tómasson hrl)

H gegndi embættisstörfum í þjónustu ríkisins frá 1945 til 1985, er hann hóf töku eftirlauna úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (L) á grundvelli launa fyrir starf sem forstöðumaður Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins (RB), er hann gegndi um 20 ára skeið. Höfðaði H mál gegn L og til vara L og íslenska ríkinu og krafðist þess að viðurkennt yrði að eftirlaun hans tækju mið af reglubundnum heildarlaunum eftirmanns hans hjá RB auk þess sem hann krafðist greiðslu vangoldinna eftirlauna. Ekki var talið að skilja bæri ákvæði 3. mgr. 12. gr. laga nr. 29/1963, sem í gildi voru meðan H átti aðild að sjóðnum sem starfsmaður, þannig að upphæð ellilífeyris skyldi vera hlutfall af öllum launum vegna starfsins hverju nafni sem þau nefndust. Var ekki fallist á að reglubundnar greiðslur fyrir yfirvinnu til forstjóra RB hafi eðlis síns vegna verið tengdar föstum embættislaunum með þeim hætti, að skylt væri að líta á þær sem hluta af launum fyrir dagvinnu, sem veitt hefðu rétt til eftirlauna. Var einnig litið til þess að framkvæmd reglna um iðgjöld L og ákvörðun eftirlauna úr sjóðnum hafi legið ljós fyrir allan þann tíma, sem hinar reglubundnu greiðslur voru við lýði. Hefðu greiðslurnar ótvírætt verið ákvarðaðar forstjóranum á þeim grundvelli að þær hefðu hvorki áhrif á iðgjöld né eftirlaun, og hafi svo einnig verið um hliðstæðar greiðslur til annarra ríkisstarfsmanna á sama tíma. Voru L og íslenska ríkið sýknuð af kröfum H.