Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 5. gr. laga nr. 36/2001 — Lög um Seðlabanka Íslands

Landsréttur birt 19. október 2018

96/2018

Silfursteinn ehf (Tryggvi Agnarsson lögmaður) og Sigrún Einarsdóttir (Ágúst Ólafsson lögmaður, 2. prófmál) gegn Landsbankanum hf (Bjarni Þór Óskarsson lögmaður, Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður, 2. prófmál)

L hf. krafði S um greiðslu tiltekinnar fjárhæðar samkvæmt lánssamningi milli S og forvera L hf. frá árinu 2007. Þá krafðist L hf. þess að honum yrði dæmdur réttur til að gera fjárnám í fasteign SE á grundvelli tryggingarbréfs sem tryggt var með veði í fasteigninni. S og SE byggðu sýknukröfu sína á því að upphaf fyrningarfrests kröfunnar hefði verið 17. júní 2009, sem væri sá dagur sem skuldin gat orðið gjaldfær samkvæmt lánssamningnum, og krafan væri almenn krafa sem fyrndist á fjórum árum samkvæmt lögum nr. 14/1905, um fyrningu skulda og annarra kröfuréttinda. Krafan hefði því verið fyrnd þegar málið hefði verið þingfest í janúar 2016. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans í Landsrétti, var ekki fallist á að krafan hefði verið fyrnd er málið var höfðað. Þá var ekki fallist á að það væri ósanngjarnt af hálfu L hf. að byggja á lánssamningnum og tryggingarbréfinu gagnvart SE, sbr. 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Var því fallist á kröfu L hf.