Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 22. gr. laga nr. 30/2003 — Lög um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði

Hæstiréttur birt 6. júní 2012

288/2012

Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl) gegn Landsbanka Íslands hf (Pétur Örn Sverrisson hrl)

R lýsti kröfu við slit L hf. á grundvelli tiltekinna viðskipta sem R óskaði eftir við L hf. 3. október 2008, á grundvelli samnings aðilanna um eignastýringu, en R taldi að viðskipti þessi hefðu átt að fara fram eigi síðar en 6. sama mánaðar. Um var að ræða viðskipti um innlausn hlutdeildarskírteina í svonefndum peningabréfum L hf. og að andvirði þeirra yrði nýtt til kaupa á svonefndum sparibréfum L hf. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þar sem kröfu R var hafnað, einkum með vísan til þess að L hf. hefði upplýst R um fyrirhugaða framkvæmd viðskiptanna án þess að R hreyfði andmælum við því, en viðskiptin komu síðan aldrei til framkvæmda vegna lokunar markaða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2012

X-48/2010

Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl) gegn Landsbanka Íslands hf (Jón Kristinn Sverrisson hdl)

Sóknaraðili lýsti skaðabótakröfu á hendur varnaraðila og byggði á því að starfsmaður varnaraðili hefði ekki farið að fyrirmælum um innlausn hlutdeildarskírteina í Peningabréfum Landsbankans ISK 3. eða 6. október 2008. Dómurinn taldi að starfsmaðurinn hefði að öllu leyti farið að fyrirmælum sóknaraðila og hafnaði því kröfunni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2012

X-177/2010

Eskja hf (Guðbjarni Eggertsson hdl) gegn Landsbanka Íslands hf. í slitameðferð (Ágúst Karl Karlsson hdl)

Ekki var fallist á að sóknaraðili ætti skaðabótakröfu á hendur varnaraðila vegna kaupa hans á hlutdeildarskírteinum í peningamarkaðssjóði 3. október 2008, en kröfu þessari hafði sóknaraðili lýst við slitameðferð varnaraðila.