Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 9. gr. laga nr. 21/1992 — Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

372/2017

Jónína Björk Þorvaldsdóttir (Hlynur Jónsson hrl, Áslaug Árnadóttir hrl, 4. prófmál) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
Lykilorð: Skuldabréf. Fyrning. Gjafsókn.

L krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður málskotsnefndar L þar sem ákvörðun stjórnar L var felld úr gildi og skuld J vegna námslána samkvæmt tveimur skuldabréfum felld niður. Vanskil urðu á endurgreiðslu J á námsláni frá og með gjalddaga í mars 2009, en J gaf út sérstakt vanskilaskuldabréf í mars 2015. Deildu aðilar einkum um fyrningarfrest skuldarinnar og við hvaða tímamark skyldi miða í því sambandi. Fallist var á með J að bæði skuldabréfin hefðu orðið gjaldkræf tveimur árum eftir ákvörðuð námslok, sem var sama tímamark fyrir bæði skuldabréfin. Á hinn bóginn var fallist á það með L að honum hefði verið rétt að ráðstafa greiðslum J samkvæmt 8. gr. laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna fyrst inn á eldra lánið. Það væri meginregla kröfuréttar að þegar kröfuhafi ætti margar kröfur á hendur sama skuldara ætti skuldarinn val um inn á hvaða skuld hann ráðstafaði greiðslu hverju sinni. Léti skuldari engin fyrirmæli fylgja greiðslu sinni bæri að miða við að hann eftirléti kröfuhafa frjálst val um inn á hvaða skuld greiðslunni skyldi ráðstafað. Með því að greiða athugasemdalaust greiðsluseðla sem L sendi hefði J samþykkt í verki fyrirkomulag innheimtunnar. Á meðan J greiddi inn á námslán sitt í samræmi við fyrirmæli 8. gr. laga nr. 21/1992 hefði hvorugt skuldabréfanna verið í vanskilum. Þá var vísað til þess að krafa L væri samkvæmt skuldabréfi sem samkvæmt 1. tölulið 4. gr. laga nr. 14/1905 um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda fyrndist á 10 árum. Ekki var fallist á með J að rök stæðu til þess að fyrirmæli í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 21/1992 um aðfararheimild yrðu lögð að jöfnu við ákvæði áðurgildandi laga um lögtaksrétt þannig að 4 ára fyrningarfrestur 3. töluliðar 3. gr. laga nr. 14/1905 yrði talinn gilda um kröfuna. Þótti ljóst að kröfur L samkvæmt báðum skuldabréfunum væru ófyrndar. Í því ljósi hefðu ekki verið efni til þess að víkja til hliðar loforði J um greiðslu samkvæmt vanskilaskuldabréfinu á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga svo sem gert hafði verið í úrskurði málskotsnefndar L. Með vísan til alls framangreinds var úrskurður málskotsnefndar L því felldur úr gildi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. maí 2017

E-276/2017

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Jónínu Björk Þorvaldsdóttur (Hlynur Jónsson hrl)
Lykilorð: Ógildingarmál.

Ekki var fallist á að námslánaskuld stefndu væri fallin niður vegna fyrningar. Felldur var úr gildi úrskurður málskotsnefndar Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá 25. janúar 2017 þar sem námslánaskuld stefndu samkvæmt tveimur skuldabréfum var felld niður.

Hæstiréttur birt 4. desember 2015

751/2015

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Jóhönnu, Meyer, Birgisdóttur, Aðalheiði, Birgisdóttur, Önnu, Dögg Einarsdóttur, Bergþóru, Birgisdóttur og Val Mörk Einarssyni (Jón Magnússon hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 5. nóvember 2015

229/2015

Edda Guðmundsdóttir, Ellen Herdís Steingrímsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Hermann Ö. Steingrímsson, Hlíf Steingrímsdóttir, John, Bryan og Steingrímsson (Tómas Hrafn Sveinsson hrl) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)

Í málinu var deilt um það hvort E o.fl. sem erfingjar í dánarbúi SH, sem hafði verið skipt einkaskiptum, bæru gagnvart L ábyrgð á skuldbindingum hans sem sjálfskuldarábyrgðarmanns á námslánum SNS en á því var dómkrafa L á hendur þeim reist. Ekki var fallist á með E o.fl. að ábyrgðarskuldbinding SH yrði með stoð í 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga vikið til hliðar í heild eða að hluta, hvorki vegna atvika við samningsgerðina, atvika sem síðar komu til né vegna efnis ábyrgðarskuldbindinganna. Þá var ekki fallist á að efnisreglu 4. mgr. 9. gr. laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna, er kveður á um að endurgreiðslur af námslánum sem koma í gjalddaga eftir andlát lánþega falla sjálfkrafa niður, yrði beitt með lögjöfnun við andlát ábyrgðarmanns. Talið var að E o.fl. hefðu ekki sýnt fram á að fastmótuð stjórnsýsluframkvæmd hefði verið til staðar hjá L við innheimtu námslána eftir andlát ábyrgðarmanns og að henni hefði verið breytt á óheimilan hátt. Þá hefðu E o.fl. ekki getað haft réttmætar væntingar um að innheimtu gagnvart þeim í skjóli ábyrgðarskuldbindingar SH yrði hagað með öðrum hætti en birtar reglur L hefðu kveðið á um. Fallist var á með E o.fl. að L hefði vanrækt tilkynningarskyldu gagnvart þeim samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn, en um afleiðingar þess ræddi í 2., 3. og 4. mgr. lagagreinarinnar. Talið var að þótt L hefði gjaldfellt lánið gagnvart SNS, áður en hann hefði gefið E o.fl. sem ábyrgðarmönnum kost á að koma því í skil og gefa út nýtt skuldabréf fyrir eftirstöðvunum, hefði L með því boði sínu til E o.fl. fullnægt skyldu sinni samkvæmt 4. mgr. 7. gr. laganna. Þá hefði L, með því að gagnáfrýja ekki niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um greiðslu dráttarvaxta af hinni gjaldfelldu skuld og málskostnaðar, axlað gagnvart E o.fl. skyldur lánveitanda samkvæmt 3. mgr. sömu greinar. Gæti þetta því ekki ekki leitt til sýknu þeirra. Loks var ekki talið að um verulega vanrækslu L hefði verið að ræða í skilningi 2. mgr. 7. gr. laga nr. 23/2009. Samkvæmt framansögðu var fallist á dómkröfu L