Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 8. gr. laga nr. 21/1990 — Lög um lögheimili

Landsréttur birt 23. október 2020

698/2019

B C (Katrín Theodórsdóttir lögmaður) og D (Ívar Þór Jóhannsson lögmaður, 1. prófmál) gegn Útlendingastofnun (María Thejll lögmaður, Gunnar Viðar lögmaður, 3. prófmál)

B höfðaði mál vegna sín og dætra sinna, C og D, til að fá felldan úr gildi úrskurð kærunefndar útlendingamála þess efnis að staðfesta ákvarðanir Ú um að synja þeim þremur um alþjóðlega vernd hérlendis á grundvelli 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og að synja þeim um dvalarleyfi af mannúðarástæðum í skilningi 74. gr. sömu laga. Þá tók málshöfðunin einnig til þess að ákvarðanir Ú yrðu felldar úr gildi. A, eiginmaður B og faðir C og D, höfðaði mál af sama tagi gegn Ú og kærunefndinni og voru málin rekin samhliða fyrir dómstólum. Með dómi Landsréttar var kröfum B, C og D á hendur kærunefnd útlendingamála vísað frá héraðsdómi þar sem nefndin hefði engra lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn málsins sem leitt gætu til aðildar hennar að því. Þá var hafnað þeim málatilbúnaði B, C og D að ekki hefði verið lagt rétt mat á aðstæður þeirra þegar metið var hvort skilyrði 1. og 2. mgr. 37. gr. og 74. gr. laga nr. 80/2016 væru uppfyllt og að ekki hefði verið lagt rétt mat á áhrif brottvísunar til heimalands á aðstæður C og D eða hvað væri C og D fyrir bestu. Þá var ekki fallist á það með B, C og D að rannsóknarregla stjórnsýsluréttar hefði verið brotin við meðferð málsins hjá stjórnvöldum, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, og að rökstuðningi í ákvörðunum Ú og úrskurði kærunefndarinnar hefði verið ábótavant, sbr. 22. gr. sömu laga. Á hinn bóginn var fallist á það með B, C og D að þegar metið væri hvort stjórnvöld hefðu lagt rétt mat á aðstæður þeirra bæri réttinum að horfa til aðstæðna eins og þær væru nú, en ekki eins og þær hefðu verið við töku hinna umdeildu stjórnvaldsákvarðana. B, C og D hefðu aftur á móti ekki lagt fram nein gögn sem gæfu tilefni til að ætla að aðstæður hefðu breyst svo að máli skipti með tilliti til 37. og 74. gr. laga nr. 80/2016 þannig að ályktað yrði að rangt mat hefði verið lagt á aðstæður þeirra. Þá hefðu B, C og D ekki gert það sennilegt að það yrði þeim til réttarspjalla, í skilningi 2. mgr. 163. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, að málsástæða þess efnis að þeim yrði veruleg hætta búin vegna hættu á kynfæralimlestingum og nauðgunum, sem fyrst var höfð uppi fyrir Landsrétti, kæmist ekki að í málinu. Loks var ekki fallist á að óheimilt væri að vísa C og D úr landi þar sem þær hefðu haft fasta búsetu hérlendis frá fæðingu samkvæmt þjóðskrá. Því var héraðsdómur staðfestur um sýknu Ú af kröfum B, C og D.

Landsréttur birt 20. desember 2019

187/2019

A (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður, 4. prófmál) gegn Þjóðskrá Íslands (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A krafðist þess að skráning Þ á A í þjóðskrá með lögheimili ótilgreint í Evrópu yrði ógilt og að viðurkennt yrði með dómi að lögheimili hennar yrði skráð sem nánar tilgreint heimilisfang þar sem hún hefði fasta búsetu. Í málinu deildu aðilar um hvernig skýra bæri 1. mgr. 8. gr. þágildandi laga nr. 21/1990 um lögheimili. Skráning lögheimilis A sem ótilgreint í Evrópu byggðist á 1. málslið 1. mgr. 8. gr. laga nr. 21/1990, en samkvæmt ákvæðinu átti barn, 17 ára eða yngra, sama lögheimili og foreldrar þess ef þeir byggju saman. Óumdeilt var að A, sem var yngri en 17 ára, bjó hjá báðum foreldrum sínum. Af hálfu A var því hins vegar haldið fram að þar sem A hefði fæðst á Íslandi og búið hérlendis alla ævi ætti lögheimili hennar ekki að ráðast af lögheimili foreldra hennar, þar sem A hefði aldrei búið þar. Byggði A á því að skrá hefði átt lögheimili hennar í þjóðskrá á þeim stað þar sem hún hefði fasta búsetu, sbr. niðurlagsákvæði 1. mgr. 8. gr. og 1. gr. laga nr. 21/1990. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæði 8. gr. laga nr. 21/1990 væri sérregla um lögheimili barna sem gengi framar almennri reglu 1. gr. laganna. Með hliðsjón af skýru orðalagi 1. málsliðar 1. mgr. 8. gr. laganna var ekki fallist á að skýra niðurlag 1. mgr. 8. gr. með þeim hætti að barn sem fætt væri hér á landi og byggi í raun með báðum foreldrum sínum, teldist búa hjá hvorugu foreldra sinna í skilningi ákvæðisins af þeirri ástæðu einni að þeir hefðu lögheimili í öðru landi og skorti heimild til lögheimilisskráningar hér. Í dómi Landsréttar var fallist á með A að ákvörðun um skráningu Þ á A í þjóðskrá hafi falið í sér stjórnvaldsákvörðun. Talið var að sú ákvörðun hefði verið í samræmi við þau lög sem um skráninguna giltu og að efni hennar og málsmeðferð hefði ekki verið haldið neinum ágöllum sem varðað gætu ógildingu hennar. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu Þ því staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2019

E-2435/2017

A og B – fyrir hönd ólögráða [barns] þeirra C (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Þjóðskrá Íslands (María Thejll lögmaður)
Lykilorð: Lögheimili.
Málaflokkur: Barnaréttur

Hafnað var kröfu stefnenda, sem eru erlendir ríkisborgarar með lögheimili erlendis um að barn þeirra sem fætt er á Íslandi verði skráð með lögheimili á Íslandi.