Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 2. gr. laga nr. 21/1990 — Lög um lögheimili

Landsréttur birt 5. febrúar 2026

1025/2024

Valgarð Már Valgarðsson (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

V og Í deildu um lögmæti þeirrar ákvörðunar ríkisskattstjóra að telja V hafa verið með skattalega heimilisfesti og skattskyldu á Íslandi á nánar tilgreindu tímabili. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að af dómaframkvæmd megi ráða að ríkisskattstjóri sé við ákvörðun um heimilisfesti ekki bundinn af skráningu lögheimilis í þjóðskrá ef talið er að aðili hafi haft fasta búsetu á öðrum stað en þar er skráð. Eins bendi dómaframkvæmd til þess að það hvíli á þeim sem borið hefur fulla og ótakmarkaða skattskyldu hér á landi að færa fram gögn til stuðnings breyttri heimilisfesti. Fyrir Landsrétti hafi V hafi meðal annars lagt áherslu á að leggja bæri til grundvallar vottorð breskra skattyfirvalda um að hann hafi haft skattalega heimilisfesti í Bretlandi frá 24. maí 2012. Taldi Landsréttur að þótt framlögð vottorð hefðu sönnunargildi í skilningi 71. gr. laga um meðferð einkamála gæfu þau ekki tilefni til ályktana um skattalega heimilisfesti umfram efni þeirra. Þegar atvik málsins væru metin heildstætt yrði staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að ekki yrði talið að áfrýjandi hafi fellt niður heimilisfesti hér á landi með tilkynningu sinni til þjóðskrár 24. maí 2012. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms að öðru leyti var hann staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. desember 2024

E-2666/2020

A (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Ágreiningur var um hvort stefnandi hefði fellt niður heimilisfesti á Íslandi í kjölfar tilkynningar til þjóðskrár um breytingu á lögheimili. Voru aðstæður stefnanda metnar heildstætt og því hafnað að stefnandi hefði flutt heimilisfesti með tilkynningu sinni til þjóðskrár.