Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum. nr. 19/2011

Hæstiréttur birt 5. júní 2024

2/2024

Landsnet hf (Pétur Örn Sverrisson lögmaður) og Orkustofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn Landsvirkjun (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Ágreiningur málsins laut að heimild L hf. til að leggja á LV afgjald fyrir innmötun raforku. Deildu aðilar um hvort að 1. málsliður 1. mgr. 12. gr. a raforkulaga nr. 65/2003 veitti L hf. sem flutningsfyrirtæki samkvæmt lögunum heimild til að leggja gjaldið á LV með gjaldskrá sinni nr. 43 sem tók gildi 1. apríl 2022. O fjallaði um breytingarnar í bréfi til L hf. 14. desember 2021 og féllst á gjaldskrárbreytingu en setti fram þrjú skilyrði fyrir henni. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að skilyrði 12. mgr. 30. gr. raforkulaga og það að kæra LV til úrskurðarnefndar raforkamála vegna ákvörðunar O hefði ekki fengið efnislega úrlausn gæti ekki staðið í vegi fyrir því að hann mætti höfða málið. Þá var talið að L hefði beina og lögvarða hagsmuni af kröfu sinni og að í ljósi aðkomu og eftirlitshlutverks O væri stofnunin réttur aðili að málinu. Í forsendum Hæstaréttar kom fram að ljóst væri að innmötunargjald teldist ekki vera skattur sem lyti fyrirmælum 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar. Þá yrði gjaldið ekki talið vera hefðbundið þjónustugjald heldur gjald sérstaks eðlis sem ætlað væri að standa undir fleiri atriðum en þjónustu L hf. Hæstiréttur tók fram að ekki yrði hjá því litið að með lögum nr. 19/2011, sem breyttu raforkulögum nr. 65/2003, hefði verið fellt brott úr 5. mgr. 12. gr. raforkulaga ákvæði þar sem vísað hefði verið til innmötunargjalds. Eftir gildistöku laga nr. 19/2011 væri því ekki lengur mælt fyrir um álagningu slíks gjalds í raforkulögum. Hvorki í 12. gr. a né öðrum ákvæðum laganna væri vikið að aflgjaldi vegna innmötunar raforku eða heimild til heimtu þess úr hendi framleiðenda raforku. Hæstiréttur taldi ummæli í lögskýringargögnum með breytingarlögum nr. 19/2011 um að ekki hafi með setningu laganna verið stefnt að mikilli breytingu á ákvæði um gjaldskrá L hf. ekki getað haft afgerandi þýðingu við úrlausn málsins meðal annars í ljósi þess að innmötunargjald hafði ekki verið í gjaldskrá frá árinu 2007. Þá var ekki fallist á að athugasemdalaus greiðsla LV á afhendingargjaldi sem lagt var á framleiðendur raforku með gjaldskrá L hf. hefði falið í sér viðurkenningu á lögmæti innheimtu aflgjalds vegna innmötunar. Loks var ekki fallist á að lagafyrirmæli um markmið með setningu tekjumarka fælu í sér lagastoð fyrir innheimtu gjaldsins. Var því fallist á það með LV að lagastoð skorti fyrir álagningu afgjalds fyrir innmötun raforku í flutningskerfi L hf. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Landsréttur birt 20. október 2023

191/2023

LANDSRÉTTUR og Dómur föstudaginn 20. október 2023. og Mál nr. 191/2023: og Landsnet hf. (Pétur Örn Sverrisson lögmaður) og Orkustofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn Landsvirkjun (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

LV höfðaði mál á hendur L hf. og O og krafðist viðurkenningar á því að óheimilt hafi verið að leggja á L aflgjald vegna innmötunar raforku á flutningskerfi L samkvæmt gjaldskrá L nr. 43/2022. Byggði LV á því að engin lagastoð væri fyrir gjaldtöku vegna inmötunar raforkuvinnsluaðila á flutningskerfi L. Af hálfu L og O var hins vegar byggt á því á því að ekki hefði staðið til að afnema lagaheimild til töku innmötunargjalds með lögum nr. 19/2011 um breytingu á raforkulögum, enda hefði í athugasemdum við 7. gr. í frumvarpi er varð að lögunum komið fram að frumvarpið gerði ráð fyrir litlum efnisbreytingum á gildandi ákvæðum um gjaldskrá. Þá ætti gjaldtakan sér stoð í ýmsum öðrum ákvæðum raforkulaga og reglugerð nr. 1040/2005 um framkvæmd raforkulaga. Í Landsrétti var fyrst tekið til skoðunar hvort vísa bæri málinu frá héraðsdómi að sjálfsdáðum á grundvelli þess að farið hefði verið á svig við málshöfðunarskilyrði 12. mgr. 30. gr. raforkulaga. Að virtu því hvernig atvikum máls var háttað yrði LV ekki gert að sæta því að aðal-, vara- og þrautavarakröfu hans yrði vísað frá héraðsdómi. Þá var talið að LV hefði enn lögvarða hagsmuni af því að leyst yrði úr kröfum hans um lögmæti aflgjalds vegna innmötunar, þótt gjaldskrá nr. 43/2022 væri fallin úr gildi og ný gjaldskrá komin í hennar stað enda var í nýrri gjaldskrá mælt fyrir um innmötunargjald með sama hætti og áður. Við úrlausn um lögmæti gjaldtöku vegna innmötunar var rakið að samkvæmt 1. mgr. 12. gr. a raforkulaga skyldi L setja sér gjaldskrá vegna þjónustu sinnar og gjaldskráin gilda fyrir úttekt dreifiveitna frá flutningskerfi og úttekt stórnotenda. Voru því ekki forsendur til annars en að líta svo á að gjaldtaka samkvæmt gjaldskrá skyldi einungis vera bundin við úttektir í framangreindum skilningi. Þá varð ekki séð að leiða mætti heimild til töku aflgjalds af ákvæðum 12. gr. raforkulaga um tekjumörk flutningsfyrirtækis eða öðrum ákvæðum þeirra. Loks var ekki fallist á með L og O að grundvalla mætti slíka gjaldtökuheimild á athugasemdum við 7. gr. í frumvarpi að lögum nr. 19/2011 og þá meðal annars horft til þess að innmötunargjald hafði ekki verið innheimt um nokkurt skeið þegar frumvarp til laganna var upphaflega lagt fram. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2023

E-2985/2022

Landsvirkjun (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Landsneti hf. (Pétur Örn Sverrisson lögmaður) og Orkustofnun (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Deilt var um hvort lagaheimild væri fyrir álagningu og innheimtu svokallaðs aflgjalds fyrir innmötun raforku á flutningskerfi raforku sem stefnanda var gert að greiða stefnda, Landsneti hf. Var það niðurstaða dómsins að í gildandi raforkulögum væri ekki að finna lagaheimild fyrir innheimtu gjaldsins.

Hæstiréttur birt 22. maí 2014

286/2014

Bjallaból ehf og Fura ehf (Indriði Þorkelsson hrl) gegn Orkustofnun, íslenska, ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl) og Landsneti hf (Helga Melkorka Óttarsdóttir hrl)

X var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum með því að hafa látið undir höfuð leggjast að telja fram fjármagnstekjur að fjárhæð 120.026.444 krónur sem voru tekjur X af uppgjöri tveggja framvirkra skiptasamninga. Kröfu X um frávísun málsins var hafnað. Vísað var til þess að í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefði ekki verið talið að það færi í bága við bann við endurtekinni málsmeðferð þótt stjórnvöld hefðu áður gert manni að greiða skatt af álagi á skattstofn og sama manni væri síðan í öðru máli gerð viðurlög vegna sömu málsatvika. Þá varðaði það ekki frávísun málsins þótt skattrannsóknarstjóri eða sérstakur saksóknari hefði tjáð sig með almennum hætti um fyrirhugaða lagasetningu á sviði skattaréttar, enda væri slík umfjöllun saksókninni óviðkomandi. Ekki var heldur fallist á að tilteknir annmarkar á samningu héraðsdóms yllu því að ómerkja bæri dóminn. Í dómi Hæstaréttar var tekið fram að þótt lögum hefði síðar verið breytt um skattlagningu fjármagnstekna breytti það engu um refsinæmi þess að skýra rangt eða villandi frá því sem máli skipti við álagningu tekjuskatts. Var málið því dæmt eftir gildandi skattalögum á þeim tíma er ákærði aflaði teknanna. Talið var að hagnaður X af gerð umræddra framvirkra skiptasamninga hefði falið í sér skattskyldar fjármagnstekjur og að ekki hefði staðið heimild til að draga frá þeim tap af öðrum sams konar samningum eða beinan kostnað við öflun teknanna. Ekki var fallist með X að um hefði verið að ræða tekjur í sjálfstæðri atvinnustarfsemi. Þá leysti það X ekki undan refsiábyrgð þótt samningsaðili hans hefði vanrækt skyldu sína til að standa skil á skattinum eftir lögum nr. 94/1996 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur. X var fundinn sekur um brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá var honum gert að greiða 21.000.000 krónur í sekt og skyldi átta mánaða fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd.