Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 129. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Héraðsdómur Austurlands birt 8. janúar 2009

S-73/2008

Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi) gegn Ægi Olgeirssyni (Sigríður Kristinsdóttir hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Æ var sakfelldur fyrir líkamsáras, skv. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa slegið B með glasi, sem við það brotnaði. Skarst B illa í árásinni. Var hann dæmdur til 6 mánaða fangelsisvistar skilorðsbundið til tveggja ára og til að greiða B miskabætur.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. júní 2008

S-63/2008

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Dæmd sekt fyrir vörzlur fíkniefna

Hæstiréttur birt 8. júní 2006

28/2006

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Bjarka Elíassyni, Guðmundi Margeirssyni, Guðmundi Sigurbergssyni og Ólafi Halldóri Garðarssyni (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)
Lykilorð: Ómerking. Heimvísun.

Rúmir tíu mánuðir liðu frá skýrslutökum og málflutningi til dómsuppsögu í opinberu máli en málið hafði verið endurupptekið um mánuði fyrir dómsuppsögu án þess þó að skýrslutökur og raunverulegur endurflutningur hafi farið fram. Eins og á stóð varð að telja að skýrslutökur og munnlegur málflutningur hafi ekki komið að því gagni sem til er ætlast samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála. Varð því ekki hjá því komist að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og meðferð málsins í héraði frá og með aðalmeðferð þess og leggja fyrir héraðsdómara að taka það til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.

Hæstiréttur birt 6. febrúar 2003

393/2002

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Árna Johnsen (Björgvin Þorsteinsson hrl), B (Gestur Jónsson hrl), Gísla Hafliða Guðmundssyni (Andri Árnason hrl), SA (Hilmar Ingimundarson hrl) og T (Pétur Guðmundarson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa ráðist á A fyrir utan skemmtistað, slegið hann niður, sest klofvega yfir hann og slegið hann með bjórflösku, sem brotnaði við það, og slegið hann hnefahöggum svo A hlaut mar yfir vinstri augabrún, mar undir vinstra auga, bólgu á öllum hægri helmingi andlits og eymsli í kinnbeini og neðri kjálka og með því að beita brotinni flöskunni til að skera A þannig að hægra eyra var meira og minna tætt og eyrnavængur sundurskorinn, sbr. 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í 4 mánuði, en fullnustu hennar frestað og hún látin falla niður að liðnum 3 árum með hliðsjón af ungum aldri og sakaferli X. Þá var X gert að greiða A skaðabætur að fjárhæð 231.111 krónur.