Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 11. gr. laga nr. 19/1964 — Skipulagslög
Deilt var um gildi byggingaleyfis sem K fékk til að reisa hús með tvöfaldri bílageymslu á lóð sinni nr. 9 við Skeljatanga í Reykjavík. Höfðu G o.fl. kært veitingu leyfisins til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála sem felldi það úr gildi. K krafðist því að úrskurður nefndarinnar yrði felldur úr gildi. Tekið var fram að niðurstaða málsins færi eftir skýringu á byggingar- og skipulagsskilmálum umrædds hverfis frá 1990 og ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og reglugerðar sem sett væri með heimild í þeim lögum. Fallist var á að skilmálarnir væru torskildir og til þess fallnir að skapa óeiningu. Samkvæmt þeim væri um sum atriði vísað til mats stjórnvalda en um önnur færi eftir hlutlægri skýringu á viðkomandi ákvæðum. Fyrir lá að sótt var um að byggingin yrði einnar og hálfrar hæðar. Samkvæmt skýrum ákvæðum 3. gr. skilmálanna mætti stalla hús einungis á þeim helmingi grunnflatar þess, sem væri fjær götu, og mætti nýta slíka stöllun á tveimur hæðum. Mun meira en helmingur af gólfplötu hússins væri stallaður niður fyrir þá hæð, sem aðalgólfplatan hefði næst götu. Fyrirhugað hús K fullnægði því ekki ákvæði 3. gr. skilmálanna og yrði ekki fallist á að stöllun í merkingu skilmálanna tæki eingöngu til þess hluta hússins, sem fyrirhugað væri að yrði á tveimur hæðum. Þá yrði að skilja skilmálana svo að hæð húss sem væri stallað á þeim helmingi gólfflatar, sem væri fjær götu, mætti vera hæst 5,7 m miðað við götukóta á þessum hluta, en nær götu skyldi það vera hæst 4,4 m. Glerhýsi K eftir miðju þaksins mætti því ekki allt ná 5,7 m mænishæð. Sú mænishæð skæri sig einnig frá hæð annarra hús við Skeljatanga. Var kröfu K því hafnað.
X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.