Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 30. gr. laga nr. 15/1998 — Lög um dómstóla
J var einn af 33 umsækjendum um embætti dómara við Landsrétt og meðal þeirra 15 sem dómnefnd samkvæmt lögum um dómstóla nr. 15/1998 hafði talið hæfasta til að gegna því embætti. Þegar dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um hvaða 15 umsækjendur skyldi skipa dómara við réttinn var J ekki á meðal þeirra sem lagt var til að yrðu skipaðir. Alþingi samþykkti tillögur ráðherra og voru þær í kjölfarið sendar forseta Íslands sem ritaði undir skipunarbréf þeirra 15 dómara sem ráðherra hafði gert tillögu um. Höfðaði J þá mál þetta á hendur Í þar sem hann krafðist í fyrsta lagi ógildingar á framangreindum athöfnum ráðherra, í öðru lagi viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna þess tjóns sem hann hefði orðið fyrir vegna þessa og í þriðja lagi miskabóta. Með hinum kærða úrskurði var ógildingarkröfu J vísað frá dómi á þeim grundvelli að ekki yrði séð að hún myndi leiða til afgerandi niðurstöðu um sakarefni málsins, enda myndu ákvarðanir ráðherra og Alþingis um skipun hinna 15 dómara í Landsrétt halda gildi sínu þótt fallist yrði á hana. Þá var kröfu J um viðurkenningu á skaðabótaskyldu Í vísað frá dómi á þeim grundvelli að J hefði ekki sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna athafna ráðherra. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt forseti Íslands væri samkvæmt stjórnarskránni að formi til æðsti embættismaður ríkisins, væru ráðherrar samkvæmt fastmótaðri stjórnskipunarvenju í reynd æðstu handhafar framkvæmdarvaldsins. Væri það því í reynd dómsmálaráðherra sem færi með skipunarvaldið og væri kröfum J því réttilega beint að honum fyrir hönd Í. Þá vísaði Hæstiréttur til þess að fyrirmæli 60. og 70. gr. stjórnarskrárinnar hefðu í framkvæmd verið skýrð þannig að sérhver sem eigi lögvarinna hagsmuna að gæta geti almennt krafist þess fyrir dómi að ákvarðanir stjórnvalda verði ógiltar brjóti þær í bága við lög að formi til eða efni. Að jafnaði væri það hins vegar ekki á færi dómstóla að taka nýjar ákvarðanir um málefni sem stjórnvöldum væri falið með lögum að fara með. Samkvæmt því og að gættum þeim skýringum J að baki ógildingarkröfu sinni, að ekki væri verið að krefjast þess að hróflað yrði við skipun þeirra einstaklinga sem hlutu skipun, taldi Hæstiréttur að J hefði ekki sýnt fram á að hann hefði lögvarða hagsmuni af því að fá skorið sjálfstætt úr um ógildi ákvarðana dómsmálaráðherra. Var því staðfest sú niðurstaða hins kærða úrskurðar að vísa ógildingarkröfu J frá dómi. Hvað viðurkenningarkröfu J varðaði benti Hæstiréttur á að í dómaframkvæmd hefði verið lagt til grundvallar að beiting heimildar 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 til að krefjast viðurkenningar á bótaskyldu væri háð því skilyrði að sá sem höfðar mál leiði nægar líkur að því að hann hafi orðið fyrir tjóni og geri grein fyrir því í hverju tjónið felist. Taldi Hæstiréttur að með framlögðum gögnum og málatilbúnaði sínum að öðru leyti hefði J uppfyllt þau skilyrði. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi hvað viðurkenningarkröfuna varðaði og lagt fyrir héraðsdóm að taka hana til efnismeðferðar.
Á var einn af 33 umsækjendum um embætti dómara við Landsrétt og meðal þeirra 15 sem dómnefnd samkvæmt lögum um dómstóla nr. 15/1998 hafði talið hæfasta til að gegna því embætti. Þegar dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um hvaða 15 umsækjendur skyldi skipa dómara við réttinn var Á ekki á meðal þeirra sem lagt var til að yrðu skipaðir. Alþingi samþykkti tillögur ráðherra og voru þær í kjölfarið sendar forseta Íslands sem ritaði undir skipunarbréf þeirra 15 dómara sem ráðherra hafði gert tillögu um. Höfðaði Á þá mál þetta á hendur Í þar sem hann krafðist í fyrsta lagi ógildingar á framangreindum athöfnum ráðherra, í öðru lagi viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna þess tjóns sem hann hefði orðið fyrir vegna þessa og í þriðja lagi miskabóta. Með hinum kærða úrskurði var ógildingarkröfu Á vísað frá dómi á þeim grundvelli að ekki yrði séð að hún myndi leiða til afgerandi niðurstöðu um sakarefni málsins, enda myndu ákvarðanir ráðherra og Alþingis um skipun hinna 15 dómara í Landsrétt halda gildi sínu þótt fallist yrði á hana. Þá var kröfu Á um viðurkenningu á skaðabótaskyldu Í vísað frá dómi á þeim grundvelli að Á hefði ekki sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna athafna ráðherra. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt forseti Íslands væri samkvæmt stjórnarskránni að formi til æðsti embættismaður ríkisins, væru ráðherrar samkvæmt fastmótaðri stjórnskipunarvenju í reynd æðstu handhafar framkvæmdarvaldsins. Væri það því í reynd dómsmálaráðherra sem færi með skipunarvaldið og væri kröfum Á því réttilega beint að honum fyrir hönd Í. Þá vísaði Hæstiréttur til þess að fyrirmæli 60. og 70. gr. stjórnarskrárinnar hefðu í framkvæmd verið skýrð þannig að sérhver sem eigi lögvarinna hagsmuna að gæta geti almennt krafist þess fyrir dómi að ákvarðanir stjórnvalda verði ógiltar brjóti þær í bága við lög að formi til eða efni. Að jafnaði væri það hins vegar ekki á færi dómstóla að taka nýjar ákvarðanir um málefni sem stjórnvöldum væri falið með lögum að fara með. Samkvæmt því og að gættum þeim skýringum Á að baki ógildingarkröfu sinni, að ekki væri verið að krefjast þess að hróflað yrði við skipun þeirra einstaklinga sem hlutu skipun, taldi Hæstiréttur að Á hefði ekki sýnt fram á að hann hefði lögvarða hagsmuni af því að fá skorið sjálfstætt úr um ógildi ákvarðana dómsmálaráðherra. Var því staðfest sú niðurstaða hins kærða úrskurðar að vísa ógildingarkröfu Á frá dómi. Hvað viðurkenningarkröfu Á varðaði benti Hæstiréttur á að í dómaframkvæmd hefði verið lagt til grundvallar að beiting heimildar 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 til að krefjast viðurkenningar á bótaskyldu væri háð því skilyrði að sá sem höfðar mál leiði nægar líkur að því að hann hafi orðið fyrir tjóni og geri grein fyrir því í hverju tjónið felist. Taldi Hæstiréttur að með framlögðum gögnum og málatilbúnaði sínum að öðru leyti hefði Á uppfyllt þau skilyrði. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi hvað viðurkenningarkröfuna varðaði og lagt fyrir héraðsdóm að taka hana til meðferðar.
Hluta af kröfum stefnanda var vísað frá dómi þar sem málatilbúnaður hans uppfyllti ekki skilyrði laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, m.a. um skýra og ljósa kröfugerð.
Hluta af kröfum stefnanda var vísað frá dómi þar sem málatilbúnaður hans uppfyllti ekki skilyrði laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, m.a. um skýra og ljósa kröfugerð.
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lyfjalögum og vopnalögum með því að flytja inn handjárn og krem sem innihélt lyf.