Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 69. gr. laga nr. 144/1994 — Lög um ársreikninga
Ó réð sig til starfa hjá I ehf. árið 2004 en tæplega ári síðar var honum sagt upp störfum hjá félaginu. Árið 2008 höfðaði Ó mál og krafðist þess að I ehf. yrði gert að greiða sér tæplega níu milljónir króna. Byggði Ó kröfu sína á ákvæði í ráðningasamningi aðila þar sem kveðið var á um launaauka að nánar uppfylltum skilyrðum sem miða ætti við EBITA ársins 2004 hjá I ehf. Ekki var fallist á þá málsástæðu I ehf. að Ó hefði glatað kröfu sinni fyrir sakir tómlætis. Við útreikning á launaauka Ó var talið rétt að miðað við önnur mörk en Ó gerði. Fallist var á kröfu Ó um greiðslu launaauka sem nam tæplega einni milljón króna.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. desember 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 20. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Norðurlands vestra 23. nóvember 1999, þar sem hafnað var kröfu sóknaraðila um að varnaraðila yrði gert að setja málskostnaðartryggingu vegna gagnstefnu varnaraðila í máli, sem sóknaraðili höfðaði gegn varnaraðila. Kæruheimild er í o. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að varnaraðila verði gert að setja tryggingu fyrir greiðslu málskostnaðar við þingfestingu gagnsakar í málinu og að tryggingin nemi eigi lægri fjárhæð en 25.000.000 krónum. Til vara er þess krafist að tryggingin nemi lægri fjárhæð. Þá er krafist málskostnaðar í héraði og kærumálskostnaðar. Varnaraðili krefst aðallega staðfestingar hins kærða úrskurðar og málskostnaðar í héraði og kærumálskostnaðar, en til vara að varnaraðila verði gert að leggja fram lægri málskostnaðartryggingu og að málkostnaður verði felldur niður. Í 1. mgr. 133. gr. laga nr. 91/1991 er stefnda í héraði heimilað að krefjast þess við þingfestingu máls að stefnandi setji tryggingu fyrir greiðslu málskostnaðar. Sóknaraðili höfðaði málið í héraði á hendur varnaraðila og hefði heimild til þess að krefjast tryggingar fyrir greiðslu málskostnaðar því legið hjá varnaraðila, að uppfylltum tilgreindum skilyrðum. Eru ekki lagarök til þess að heimildin færist til sóknaraðila við það að varnaraðili höfði gagnsök á hendur honum. Þegar af þeirri ástæðu verður ekki tekin til greina krafa þess fyrrnefnda um að sá síðarnefndi leggi fram tryggingu fyrir greiðslu málskostnaðar í gagnsök í málinu. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur. Sóknaraðili greiði varnaraðila kærumálskostnað eins og í dómsorði greinir.