Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 16. gr. laga nr. 103/2002 — Lög um búfjárhald o.fl.

Landsréttur birt 18. júní 2021

207/2020

Félagsbúið Höfða sf og dánarbú Sigurðar Bergþórssonar (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður, Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður, 2. prófmál)

Ágreiningur málsins átti rætur að rekja til afskipta M af búrekstri F og S á tilgreindri jörð í Borgarfirði sem lauk með vörslusviptingu lögreglunnar á sauðfé í þeirra eigu. Í málinu var meðal annars uppi ágreiningur um hvort vörslusvipting lögreglunnar hefði verið liður í rannsókn sakamáls og hvort F og dánarbú S, sem tekið hefði við rekstri málsins, gætu af þeim sökum reist bótakröfur sínar á nánar tilgreindum ákvæðum laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í dómi Landsréttar var litið til þess að afskipti M af búrekstrinum hefðu hafist í kjölfar athugasemda um að búfjárhald á bænum hefði ekki verið í samræmi við ákvæði nr. 15/1994 um dýravernd og ákvæði þágildandi laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl. Þá hefðu ákvarðanir stofnunarinnar verið reistar á ákvæðum þessara laga og þannig byggðar á dýraverndunarsjónarmiðum í samræmi við tilgang þágildandi laga nr. 103/2002. Jafnframt var litið til þess að aðgerðir lögreglu hefðu farið fram að beiðni M með vísan til 3. mgr. 16. gr. þágildandi laga nr. 103/2002. Í ljósi þessa og með hliðsjón af fyrirmælum 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að aðgerðir lögreglu umrætt sinn hefðu ekki geta talist liður í rannsókn sakamáls í skilningi laga nr. 88/2008. Loks var talið að vörslusviptingin hefði farið fram með formlegum hætti en á hinn bóginn hvorki fallist á hún hefði falið í sér ólögmæta stjórnvaldsákvörðun né að brotið hefði verið gegn málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga við töku hennar. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu Í af kröfum F og dánarbús S.

Héraðsdómur Austurlands birt 26. október 2012

S-77/2011

Ákæruvaldið (Júlíus Kr. Magnússon hdl) gegn Stefaníu Ingu Lárusdóttur (Gísli M. Auðbergsson hdl) og Friðriki B. Friðrikssyni (Hilmar Gunnlaugsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Tveir bændur ákærðir fyrir brot á lögum og reglugerðum á sviði dýraverndar og búfjárhalds, annar þeirra B, fyrir hlutdeild í tilteknum brotum hins, A. Ákærðu bæði sakfelld af hluta sakargifta en sýknuð af öðrum. A dæmt 30 daga skilorðsbundið fangelsi en B til greiðslu 50.000 króna sektar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. nóvember 2006

S-221/2006

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson) gegn Óla Pétri Gunnarssyni (Helgi Jóhannsson hrl)
Lykilorð: Dýravernd.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ó sakfelldur fyrir illa meðferð á hrossum og dæmdur til að greiða 700.000.- krónur í sekt auk sakarkostnað.