Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lykilorð: Skuldabréfamál

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. nóvember 2018

E-4171/2018

Landsbankinn hf (Fríða Thoroddsen lögmaður) gegn Rakel Jónu Hreiðarsdóttur og Línu Sigríði Hreiðarsdóttur (Ólafur Kjartansson lögmaður)

Skuldabréfamál. Fallist var á að heimilt væri að reka málið sem skuldabréfamál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Stefnandi hafði ekki samþykkt að frekari varnir kæmust að en heimilað er skv. 118. gr. laga nr. 91/1991. Þar sem stefndu lánaðist ekki að sanna með framlögðum skjölum þær málsástæður sem varnir þeirra byggðust á voru þær dæmdar til greiðslu umkrafinnar skuldar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. maí 2018

E-76/2017

Kristján Vídalín Óskarsson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Íslandsbanki hf (Áslaug Árnadóttir lögmaður)

Lán sem stefnandi tók í október 2006 var talið lögmætt lán í erlendum myntum. Stefnandi var talinn neytandi í skilningi laga nr. 121/1994. Þótt láðst hefði að reikna heildarlántökukostnað í krónum og árlega hlutfallstölu kostnaðar þegar lánið var veitt var það ekki talið grundvöllur þess að víkja mætti ákvæðum lánsssamningsins um vexti til hliðar með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936. Lánið var ekki talið andstætt lögum nr. 121/1994 að öðru leyti. Lánveitandinn var sýknaður af öllum kröfum lántaka.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. janúar 2010

E-3948/2009

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Guðrún Eysteinsdóttir hdl) gegn Helgu Kristínu Benediktsson (Sigurður A. Þóroddsson hdl)

Stefnandi krafði stefndu um greiðslu samkvæmt skuldabréfum. Af hálfu stefndu var því haldið fram að krafan hefði fallið niður fyrir fyrningu. Fallist var á það og stefnda því sýknuð af kröfu stefnanda.