Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
9 dómar fundust
Lykilorð: Skuldabréfamál
Fallist á að ábyrgð stefnda sé fallin niður þar sem fyrri kröfuhafi stóð ekki við samningsskyldur sínar.
Skuldabréfamál. Fallist var á að heimilt væri að reka málið sem skuldabréfamál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Stefnandi hafði ekki samþykkt að frekari varnir kæmust að en heimilað er skv. 118. gr. laga nr. 91/1991. Þar sem stefndu lánaðist ekki að sanna með framlögðum skjölum þær málsástæður sem varnir þeirra byggðust á voru þær dæmdar til greiðslu umkrafinnar skuldar.
Lán sem stefnandi tók í október 2006 var talið lögmætt lán í erlendum myntum. Stefnandi var talinn neytandi í skilningi laga nr. 121/1994. Þótt láðst hefði að reikna heildarlántökukostnað í krónum og árlega hlutfallstölu kostnaðar þegar lánið var veitt var það ekki talið grundvöllur þess að víkja mætti ákvæðum lánsssamningsins um vexti til hliðar með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936. Lánið var ekki talið andstætt lögum nr. 121/1994 að öðru leyti. Lánveitandinn var sýknaður af öllum kröfum lántaka.
Stefndu gert að greiða stefnanda skuld samkvæmt veðskuldabréfi þrátt fyrir að veðskuldabréfinu hafi verið aflýst af eigninni fyrir mistök. Þá var staðfest kyrrsetning eignar stefndu.
Frávísun.
Fallist var á kröfu stefnda um frávísun máls.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda þar sem ekki hafði farið fram lögmæt stefnubirting innan fyrningarfrests og krafan því fallin niður fyrir fyrningu.
Stefnandi krafði stefndu um greiðslu samkvæmt skuldabréfum. Af hálfu stefndu var því haldið fram að krafan hefði fallið niður fyrir fyrningu. Fallist var á það og stefnda því sýknuð af kröfu stefnanda.
NBI hf gegn
Þórunni Sigríði Þorsteinsdóttur og Þorbjörgu Maríu Ragnarsdóttur
Deilt um ábyrgð stefndu samkvæmt sjálfskuldarábyrgðaryfirlýsingu þeirra á skuldabréfi í eigu stefnanda. Áfellisdómur.