Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Munnlegur samningur

Héraðsdómur Vesturlands birt 3. mars 2026

E-180/2025

Málval ehf (Hafsteinn Viðar Hafsteinsson lögmaður) gegn Ólafi Einari Rúnarssyni (Einar Páll Tamimi lögmaður)

Deilt um umfang og endurgjald fyrir málningarvinnu í húsi stefnda. Greinargerð stefnda um efnisvarnir komst ekki að gegn mótmælum stefnanda þar sem greinargerð stefnda sem var einungis um formhlið málsins kom of seint fram. Kröfu um frávísun málsins var hafnað á fyrri stigum en talið eftir dómtöku að málið væri vanreifað og var því vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. febrúar 2025

E-2023/2024

Guðfinna Magney Sævarsdóttir (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn ACE FBO Reykjavík ehf (Svanhvít Axelsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda um greiðslu vegna vinnu við fjármálastjórnun honum til handa í gegnum erlent félag. Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda þar sem ekki þótti sannað að til umþrætts réttarsambands hefði stofnast.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. desember 2023

E-2068/2022

A (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður) gegn B (Jóhann Tómas Sigurðsson lögmaður)

Stefnda var sýknuð af kröfum stefnanda, þar sem í ljósi gagna, vitnisburðar og framburðar stefndu, þá þótti þrátt fyrir vísbendingar ekki vera nægilega í ljós leitt að millifærslur stefnanda til stefndu hefðu í reynd falið í sér endurkræft lán stefnanda til stefndu vegna fasteignaviðskipta eða annars, fremur en að um væri að ræða greiðslur þeirra í millum í tengslum við uppgjör óhefðbundinna lánsviðskipta sem þau hafi haft aðkomu að. Var það mat dómsins að við svo búið hafi það staðið stefnanda nær að axla sönnunarbyrði fyrir kröfu sinni á hendur stefndu og að sú sönnun hafi þannig ekki náð fram að ganga.