Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-2023/2024:

Guðfinna Magney Sævarsdóttir

(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

gegn

ACE FBO Reykjavík ehf

(Svanhvít Axelsdóttir lögmaður)

Munnlegur samningur. Samningur. Sönnun. Sönnunarbyrði.

Stefnandi krafði stefnda um greiðslu vegna vinnu við fjármálastjórnun honum til handa í gegnum erlent félag. Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda þar sem ekki þótti sannað að til umþrætts réttarsambands hefði stofnast.

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 14. janúar 2025, var höfðað 27. mars 2024 af Guðfinnu Magneu Sævarsdóttur, til heimilis að [...] í [...], gegn ACE FBO Reykjavík ehf., til heimilis að [...] í [...].
  2. Stefnandi krefst þess að stefndi greiði henni 42.000 evrur auk dráttarvaxta skv. III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, n.tt. 1. mgr. 5. gr. laganna og 6. gr. s.l., af 2.000 evrum frá 30. nóvember 2018 til 31. desember 2018, 4.000 evrum frá þeim degi til 31. janúar 2019, 6.000 evrum frá þeim degi til 28. febrúar 2019, 8.000 evrum frá þeim degi til 31. mars 2019, 10.000 evrum frá þeim degi til 30. apríl 2019, 12.000 evrum frá þeim degi til 31. maí 2019, 14.000 evrum frá þeim degi til 30. júní 2019, 16.000 evrum frá þeim degi til 31. júlí 2019, 18.000 evrum frá þeim degi til 31. ágúst 2019, 20.000 evrum frá þeim degi til 30. september 2019, 22.000 evrum frá þeim degi til 31. október 2019, 24.000 evrum frá þeim degi til 30. nóvember 2019, 26.000 evrum frá þeim degi til 31. desember 2019, 28.000 evrum frá þeim degi til 31. janúar 2020, 30.000 evrum frá þeim degi til 29. febrúar 2020, 32.000 evrum frá þeim degi til 31. mars 2020, 34.000 evrum frá þeim degi til 30. apríl 2020, 36.000 evrum frá þeim degi til 31. maí 2020, 38.000 evrum frá þeim degi til 30. júní 2020, 40.000 evrum frá þeim degi til 31. júlí 2020 og 42.000 evrum frá þeim degi til greiðsludags.
  3. Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnda.
  4. Stefndi krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda og málskostnaðar úr hennar hendi.

Helstu málsatvik

A

  1. Aðilar máls þessa eru um margt ósammála um málsatvik. Fyrir liggur að stefnandi og fyrirsvarsmaður og eigandi stefnda, Hilmar Ágúst Hilmarsson, voru í óskráðri sambúð sem lauk í september 2021. Þá mun stefnandi vera eigandi og fyrirsvarsmaður eignarhaldsfélagsins GX Holding Limited, sem skráð er á Cayman-eyjum, en hún var jafnframt varamaður í stjórn stefnda.
  2. Stefnandi kveðst hafa starfað sem fjármálastjóri stefnda í verktöku árin 2017 til 2020 samkvæmt samningi sem Hilmar Ágúst hafi gert fyrir hönd stefnda. Vinna stefnanda hafi verið reikningsfærð í nafni GX Holding Limited. Störf stefnanda hafi hafist á vordögum 2017 og umfang þeirra verið verulegt en hún hafi auk starfa fyrir stefnda sinnt stjórn fjármála fyrir systurfélög stefnda, þ.e. Ace Handling ehf., GFI ehf., ACE FBO ehf. og Bjargfast ehf. Stefnandi hafi hótað því sumarið 2018 að hætta störfum fyrir stefnda nema eitthvað yrði greitt en í kjölfarið hafi verið samið um uppgjör fyrir árin 2017 og 2018.

    Stefndi hafi hins vegar ekkert greitt samkvæmt því uppgjöri. Við sama tímamark hafi verið samið um að stefndi greiddi 2.000 evrur á mánuði til GX Holding Limited. Sams konar samningur hafi verið gerður við ACE FBO ehf., en það félag hafi hins vegar farið í þrot. Stefnandi hafi lokið störfum fyrir stefnda mánaðamótin júní/júlí 2020. Hinn 31. desember 2023 hafi GX Holding Limited framselt kröfur sínar á hendur stefnda til stefnanda.

  3. Stefndi kveður stefnanda aldrei hafa starfað sem fjármálastjóri hans. Þá hafi enginn samningur verið gerður milli GX Holding Limited og stefnda svo sem stefnandi byggi á.
  4. Fyrir liggur að GX Holding Limited höfðaði mál vegna sömu reikninga og ágreiningur máls þessa hverfist um hinn 23. nóvember 2022 en því var vísað frá dómi með úrskurði Landsréttar frá 12. október 2023 í máli nr. 532/2023 sökum vafa um aðildarhæfi félagsins.

B

  1. Fyrir dóminum liggja 21 reikningur frá GX Holding Limited til stefnda, dagsettir frá 31. október 2018 til 30. júní 2020, hver að fjárhæð 2.000 evrur. Útskýring í öllum reikningunum er tiltekin „CFO for ACE FBO Reykjavík ehf.“. Þá er meðal gagna málsins listi yfir hreyfingar lánardrottna úr bókhaldi stefnda, þar sem fyrrgreindir reikningar hafa verið bókfærðir. Allar færslur á hreyfingaryfirlitinu eru þar merktar sem breyttar af Elísabetu, sem er móðir stefnanda. Einnig má ráða af yfirlitinu að reikningar sem dagsettir eru á árinu 2018 hafi verið færðir inn 26. ágúst 2019, reikningar sem dagsettir eru á árinu 2019 hafi verið færðir inn 18. febrúar 2020 og reikningar sem dagsettir eru á árinu 2020 hafi verið færðir inn 30. janúar 2022.
  2. Þá liggur fyrir samningur um framsal milli GX Holding Limited og stefnanda, dags. 31. desember 2023, þar sem félagið framselur kröfur á hendur stefnda til stefnanda, samtals að fjárhæð 42.000 evrur samkvæmt 21 reikningi. Stefnandi skrifar tvívegis undir samkomulagið, annars vegar í eigin nafni og hins vegar fyrir hönd fyrrnefnds félags.
  3. Að auki hefur stefnandi lagt fyrir dóminn ýmis tölvubréf, flest sem hún sendi úr netfanginu g.saevarsdottir@avijet.is, en umrædd bréf varða samskipti við ýmsa aðila vegna flugrekstrar. Hvað ágreining aðila snertir má einkum horfa til þeirra tölvubréfa sem reifuð eru stuttlega hér í kjölfarið.
  4. Hinn 30. september 2018 sendi fyrirsvarsmaður stefnda tölvubréf til Greg Evans hjá Universal, sem mun hafa haft til skoðunar að kaupa stefnda á umræddum tíma. Með bréfinu fylgdi m.a. mynd af „Organigram“, þ.e. einhvers konar skipuriti, en þar voru stefndi, Ace Fbo Keflavik og Global Fuel Iceland tiltekin og sagði svo m.a. orðrétt „CFO for the Group Gudfinna Magney Saevarsdottir“.
  5. Stefnandi sendi tölvubréf 7. febrúar 2019, en fyrirsvarsmaður stefnda var meðal viðtakenda. Hjálagt með bréfinu var skjal sem bar heitið „Accounts payables“ og í því skjali kom fram að kröfuhafi tveggja krafna væri GX Holding og útskýring tiltekin „Guðfinna CFO“, annars vegar 2017 og hins vegar 2018. Upphæðin fyrrnefnda árið var 16.000 evrur og 24.000 evrur síðara árið.
  6. Í tölvubréfi stefnanda til fyrirsvarsmanns stefnda 11. september 2019 segir stefnandi m.a. um fjármál „ACE RVK“: „Hér meðfylgjandi staðan í Reykjavík samkvæmt netbanka.

    Ég setti svo annað sem er ógreitt þarna neðar, m.a. erlendu tryggingarnar sem eru með gjalddaga núna 15. september og gamalt frá BSR, bókhalds- og fjármálavinnan til Bjarnveigar og GX. Við höfum ekki greitt Bjarnveigu vegna bókhalds fyrir apríl og síðar og ekkert vegna fjármál[a]stjórnar til mín frá upphafi.“ Hjálagt með bréfinu var yfirlit yfir fjármál stefnda. Í yfirlitinu kom m.a. fram undir liðnum annað útistandandi, „GX- fjármál“, ágúst 2018 til ágúst 2019, 24.000 evrur.

  7. Þá sendi stefnandi tölvubréf til fyrirsvarsmanns stefnda 12. júní 2020 undir fyrirsögninni „Fjármál fyrirtækja þinna“, en í því sagði m.a.: „Ég er löngu orðin dauðþreytt að hafa áhyggjur af þínum málum og geta ekki greitt mömmu eða sjálfri mér fyrir alla þá hjálp sem við höfum veitt. Og þar að auki að fá engar þakkir eða virðingu fyrir því [sic] sem ég er að gera.“
  8. Í framlögðum yfirlitum um fjármál stefnda/ógreidda reikninga á mismunandi tímum árið 2020 eru meðal annarra útistandandi krafna tilteknar kröfur „GX-fjármál“ í evrum.
  9. Þá sendi stefnandi tölvubréf hinn 26. júní 2020 til fyrirsvarsmanns stefnda og Stefáns Smára Kristinssonar, sem titlaður er í tölvubréfasamskiptum COO stefnda, undir fyrirsögninni „Ég er farin í frí!“. Í tölvubréfinu sagði stefnandi orðrétt: „Sæll Stefán, Ég er farin í ótímabundið frí frá fjármálum ACE. Hilmar tekur við öllu sem ég hef verið að gera á meðan. Ég sendi ykkur seinna í dag það sem ég vil benda ykkur á að passa upp á.“
  10. Að auki sendi stefnandi tölvubréf til fyrirsvarsmanns stefnda 9. júlí 2020 undir fyrirsögninni „Fjármál ACE 2020“, þar sem hún sagði „Skoða vel“. Hjálagt með bréfinu var töflureikniskjal sem var nefnt „Fjármál ACE KEF 2020“ en í því var tilgreint meðal útistandandi gjalda „GX-fjármál“ ágúst 2018 til janúar 2020, 36.000 evrur.
  11. Þá liggja jafnframt fyrir dóminum handskrifaðar færslur í dagbók sem stefnandi segist hafa haldið frá desember 2017 til mars 2020 er varði greiðslur og samninga stefnda.

C

  1. Stefnandi og fyrirsvarsmaður stefnda, Hilmar Ágúst Hilmarsson, gáfu aðilaskýrslur fyrir dómi við aðalmeðferð málsins. Verður vitnað til framburðar þeirra eftir því sem þurfa þykir.

Helstu málsástæður stefnanda

  1. Stefnandi byggir á því að hún hafi starfað samkvæmt samkomulagi við stefnda sem fjármálastjóri hans árin 2017 til 2020 sem verktaki og umfang vinnu hennar hafi verið verulegt. Þegar félag hennar, GX Holding Limited, hafi ekki fengið greiðslur fyrir umrædd störf hafi hún hótað stefnda sumarið 2018 að hætta störfum, nema eitthvað yrði greitt. Þá hafi verið samið um uppgjör vegna áranna 2017 og 2018 en greiðslur ekki farið fram samkvæmt því uppgjöri. Samtímis hafi verið samið um að greiddar yrðu framvegis 2.000 evrur á mánuði frá stefnda til fyrrnefnds félags stefnanda. Stefnandi hafi lokið störfum fyrir stefnda mánaðamótin júní/júlí 2020.
  2. Stefnandi vísar til þess að hún hafi aldrei fengið greitt og skýrist það fyrst og fremst af eftirlátssemi við fyrrum sambýlismann hennar og fyrirsvarsmann stefnda. Reikningar hafi hins vegar verið gefnir út mánaðarlega af hálfu félags stefnanda og þeir færðir í kostnaðarbókhald stefnda og ársreikningar stefnda endurspegli þessar kröfur sem skuld við stefnanda.
  3. Þá byggir stefnandi á reglum samninga- og kröfuréttar um loforð og efndir fjárskuldbindinga. Reikningar hafi verið gefnir út vegna starfa stefnanda í nafni félags hennar, GX Holding Limited, og hafi þeir ekki sætt andmælum stefnda heldur þvert á móti verið færðir sem útgjöld í bókhaldi hans. Krafan sé því óumdeild og fyrir margt löngu fallin í gjalddaga, án þess þó að vera fallin niður fyrir tómlæti, þar sem stöðugt hafi verið gerð krafa um uppgjör reikninganna, auk þess sem gert hafi verið ráð fyrir því hjá stefnda að þeir yrðu greiddir. Tómlæti hafi verið endanlega út úr myndinni og möguleg fyrning síðan rofin með þeirri málshöfðun sem vísað var frá dómi með fyrrnefndum úrskurði Landsréttar í mál nr. 532/2023.

Helstu málsástæður stefnda

  1. Stefndi byggir á því að stefnandi hafi aldrei starfað sem fjármálastjóri hjá honum árin 2017 til 2020 og að fullyrðingar hennar þar um séu rangar og ósannaðar. Á því tímabili sem stefnandi kveðist hafa starfað í verktöku við fjármálastjórn hjá stefnda hafi hún verið í fullu starfi sem flugmaður hjá Icelandair, auk þess sem hún kveðist hafa starfað sem framkvæmdastjóri félagsins Finna Hótel ehf. á sama tíma, þ.e. frá 2014 til apríl 2023. Þá hafi enginn samningur verið gerður á milli GX Holding Limited, félags stefnanda, við fyrirsvarsmann stefnda um störf stefnanda, og það sé í öllu falli ósannað.
  2. Þá mótmælir stefndi því að félag stefnanda hafi gefið út reikninga mánaðarlega og þeir færðir í bókhald hans. Umræddir reikningar hafi aldrei borist stefnda og þeir aldrei verið færðir í bókhald hans. Sjá megi af hreyfingarlista úr bókhaldi stefnda að reikningar fyrir árið 2018 hafi ekki verið skráðir þar fyrr en 26. ágúst 2019, reikningar fyrir árið 2019 ekki fyrr en 18. febrúar 2020 og reikningar vegna ársins 2020 ekki fyrr en 30. janúar 2022. Þá komi þar fram að reikningarnir hafi verið skráðir í bókhaldið af móður stefnanda, (Bjarnveigu) Elísabetu Pálsdóttur, en það hafi verið gert án vitundar eða samþykkis stjórnenda stefnda.
  3. Stefndi vísar jafnframt til þess að með öllu sé óútskýrt af hálfu stefnanda hví stefndi, íslenskt einkahlutafélag, hafi gert samning um fjármálastjórn við félag sem virðist skráð á Cayman-eyjum, sem vinna skyldi í verktöku af hálfu stefnanda sem var, að því er ætla megi, starfsmaður þess félags. Hvorki í stefnu né framlögðum gögnum sé gerð grein fyrir sambandi stefnanda og félags hennar í tengslum við þá meintu vinnu sem stefnandi eigi að hafa innt af hendi. Þá sé með öllu ósannað að stefnandi hafi sem starfsmaður félags síns, GX Holding Limited, í raun veitt stefnda nokkra þjónustu tengda fjármálastjórn eða öðrum verkefnum. Engin gögn hafi verið lögð fram sem sýni fram á slíkt eða veiti vísbendingu um það, hvorki að samningur hafi verið gerður né að slík þjónusta hafi verið veitt. Þá sé engar upplýsingar að finna á framlögðum reikningum um þá ætluðu þjónustu sem stefndi eigi að hafa keypt af félaginu og útlistun þar um ekki til að dreifa í stefnu.
  4. Stefndi byggir sýknukröfu sína jafnframt á aðildarskorti, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Ekkert liggi fyrir í málinu um að stefnandi hafi hæfi til að skuldbinda félagið GX Holding Limited. Þannig hafi engin gögn verið lögð fram um að hún sé framkvæmdastjóri félagsins, hafi prókúru fyrir félagið, sitji í stjórn þess eða hafi, á grundvelli einhvers þessa eða annars, haft þá heimild sem þurfi til að framselja kröfur sem félagið telji sig eiga. Máli GX Holding Limited á hendur stefnda vegna sömu reikninga hafi verið vísað frá dómi þar sem ekki hafi verið með framlögðum gögnum sýnt fram á hæfi félagsins til að eiga aðild að dómsmáli. Forsenda aðildarhæfis sé að viðkomandi geti átt réttindi eða borið skyldur samkvæmt landslögum, sbr. 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Ekki sé sýnt fram á að félagið hafi slíkt hæfi þannig að það geti átt réttindi sem félagið hafi þá getað framselt til stefnanda. Þá sé vafa undirorpið hvort félagið GX Holding Limited sé raunverulega til en stefndi telji að félagið hafi þegar verið afskráð og/eða því slitið þegar umrætt framsal hafi farið fram.
  5. Þá byggir stefndi sýknukröfuna einnig á því að sérhver möguleg krafa stefnanda samkvæmt fyrrgreindum reikningum sé fallin niður fyrir tómlæti, auk þess sem hluti krafnanna sé fyrndur, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda.
  6. Stefndi mótmælir kröfu stefnanda um dráttarvexti sérstaklega og ef fallist verði á kröfur stefnanda beri að miða upphafstíma vaxta við dómsuppsögu. Allir vextir eldri en fjögurra ára séu fyrndir.

Niðurstaða

  1. Áður en tekin verður afstaða til efnislegs ágreinings málsaðila er rétt að leysa úr því hvort málsástæða stefnanda um að meint réttarsamband, sem mál þetta hverfist um, byggist á munnlegum samningi teljist of seint fram komin, svo sem stefndi tefldi fram við aðalmeðferð málsins.
  2. Í stefnu segir m.a. að stefnandi hafi starfað sem verktaki hjá stefnda samkvæmt samningi við stjórnarmanninn Hilmar Ágúst Hilmarsson og hafi vinna hennar verið reikningsfærð í nafni GX Holding Limited. Þar er og vísað til þess að sumarið 2018 hafi verið samið um greiðslur fyrir störf stefnanda að fjárhæð 2.000 evrur á mánuði og þess að reikningar hafi verið gefnir út mánaðarlega og ekki sætt andmælum heldur verið færðir í bókhald stefnda.
  3. Af stefnu er ljóst að kröfur stefnanda fyrir dómi eru reistar á samningi sem hún byggir á að hafi komist á milli GX Holding Limited og stefnda sumarið 2018 vegna vinnu hennar við fjármálastjórn fyrir stefnda. Af samhengi stefnunnar má ljóslega ráða að ekki hafi verið um skriflegan samning að ræða enda vísað til reikninga og annarra ráðstafana til sönnunar því að til réttarsambands hafi stofnast. Má og ráða af greinargerð stefnda að málatilbúnaður stefnanda var nægjanlega skýr svo grípa mætti til efnislegra varna um framangreint. Er umrædd málsástæða því ekki of seint fram komin í skilningi 5. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
  4. Líkt og nánar er rakið í atvikalýsingu voru stefnandi og fyrirsvarsmaður og eigandi stefnda í óskráðri sambúð til ársins 2021. Stefnandi byggir á því að hún hafi samið svo um við fyrirsvarsmann stefnda um miðbik árs 2018 að hún myndi áfram gegna stöðu fjármálastjóra stefnda í gegnum GX Holding Limited og að umrætt félag myndi fá 2.000 evrur á mánuði vegna þeirrar þjónustu. Stefndi hafnar þessum fullyrðingum sem röngum og ósönnuðum.
  5. Af framlögðum gögnum, einkum tölvubréfum sem stefnandi sendi á árunum 2017 til 2020, er ljóst að hún hafði aðkomu að fjármálum stefnda á umræddum tíma. Þá kom og fram í vætti fyrirsvarsmanns stefnda fyrir dómi að stefnandi hefði aðstoðað hann við fjármál stefnda auk annarra fyrirtækja í hans eigu. Vísaði hann hins vegar til þess að störf stefnanda hefðu verið innt af hendi í greiðaskyni, hún hefði þá verið í sambúð með honum og hann aðstoðað hana með viðlíka hætti á öðrum sviðum.
  6. Sönnunarbyrðin um að samningur hafi komist á milli GX Holding Limited og stefnda hvílir á stefnanda. Það hnikar ekki til sönnunarbyrðinni hér um þótt stefnandi hafi sýnt fram á störf í þágu stefnda, m.a. í ljósi tengsla stefnanda og fyrirsvarsmanns stefnda á umræddum tíma svo og með hliðsjón af aðild og efni meints samnings í öndverðu.
  7. Fyrir dóminum liggja 21 reikningur frá GX Holding Limited til stefnda, frá 31. október 2018 og til 30. júní 2020, hver að fjárhæð 2.000 evrur. Umræddir reikningar voru einhliða gefnir út af fyrrnefndu félagi og hafa af þeim sökum takmarkað sönnunargildi, einir og sér, um hvort til umþrætts réttarsambands hafi stofnast.
  8. Þá liggur jafnframt fyrir dóminum svonefnt hreyfingaryfirlit úr bókhaldi stefnda þar sem fyrrnefndir reikningar GX Holding Limited eru færðir inn líkt og skuldir stefnda, en af ítarlegra hreyfingaryfirliti er ljóst að móðir stefnanda, sem um skeið færði bókhald stefnda, skráði umræddar hreyfingar. Skráningarnar á hreyfingaryfirlitinu eru ekki í tímalegu samhengi við dagsetningar reikninganna heldur skráðar í yfirlitið margar í einu á þremur mismunandi tímum, þ.e. 26. ágúst 2019, 18. febrúar 2020 og 30. janúar 2022.
  9. Í tilteknum tölvubréfum til fyrirsvarsmanns stefnda fylgdu bókhaldsgögn um stefnda þar sem kröfur GX Holding Limited voru útlistaðar, auk annarra krafna. Að auki var stefnandi í skipuriti sem fyrirsvarsmaður stefnda sendi með tölvubréfi 30. september 2018 sögð yfir fjármálastjórn „samstæðunnar“, þ.e. m.a. stefnda, en innihald framangreindra gagna er nánar reifað í B-kafla atvikalýsingar dómsins.
  10. Hvergi í framlögðum gögnum er hins vegar að finna trausta staðfestingu þess að til um- þrætts réttarsambands hafi stofnast. Færslur á hreyfingaryfirlit úr bókhaldi stefnda verða í fyrirliggjandi samhengi ekki taldar staðfesta að til réttarsambandsins hafi stofnast, m.a. þar sem móðir stefnanda færði umþrætt bókhald. Önnur bókhaldsgögn er tilgreina um- deilda kröfu stefnanda, sem vikið er að hér að framan, virðast stafa frá stefnanda sjálfri og sanna því ekki að til réttarsambandsins hafi stofnast. Þá verður ekki talið að skipurit fyrir „samstæðu“ tiltekinna félaga, þ. á m. stefnda, þar sem stefnandi er tiltekin sem aðalfjármálastjóri, staðfesti að til þess samnings hafi stofnast sem deila aðila lýtur að.

    Skoðast framangreint m.a. í ljósi aðildar að meintu réttarsambandi í öndverðu og öðrum auðkennum þess, m.a. mánaðarlegri fjárhæð meints samnings.

  11. Í ljósi alls framangreinds hefur stefnanda ekki auðnast sönnun þess að til umþrætts réttarsambands hafi stofnast og verður stefndi því þegar af þeirri ástæðu sýknaður af kröfum stefnanda.
  12. Með hliðsjón af þessum málsúrslitum og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður stefnandi dæmd til að greiða stefnda 1.400.000 krónur í málskostnað.
  13. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður flutti málið fyrir hönd stefnanda og Svanhvít Axelsdóttir lögmaður fyrir hönd stefnda.
  14. Sindri M. Stephensen, settur héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Stefndi, ACE FBO Reykjavík ehf., er sýknaður af kröfum stefnanda, Guðfinnu Magneyjar Sævarsdóttur.

Stefnandi greiði stefnda 1.400.000 krónur í málskostnað.

Sindri M. Stephensen

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 1. mgr. 16. gr.2. mgr. 16. gr.5. mgr. 101. gr.1. mgr. 130. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 5. gr.6. gr.III. kafli
Lög nr. 150/2007 Lög um fyrningu kröfuréttinda 3. gr.

Dómaskrá