Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Kaupauki

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2025

E-6908/2024

A (Ingvi Hrafn Óskarsson lögmaður) gegn B ehf (Sigmar Páll Jónsson lögmaður)

Stefnandi gegndi starfi framkvæmdastjóra hjá stefnda. Í kjölfar uppsagnar krafðist stefnandi vangreiddra launa á uppsagnarfresti, uppsafnaðs ótekins orlofs, greiðslu kaupauka og áfallins lögmannskostnaðar auk málskostnaðar. Fallist var á að stefnandi ætti inni ógreidd laun á uppsagnarfresti sem næmi einum mánuði. Þá var fallist á að stefnda bæri að greiða stefnanda ógreitt orlof en hafnað var að nægilega skýrt hafi verið leitt í ljós að orlof skyldi safnast upp og færast milli orlofsára. Stefndi var sýknaður af kröfu um greiðslu kaupauka þar sem sú krafa hafi niður fallið án endurgjalds samkvæmt ákvæðum ráðningarsamningsins við starfslok stefnanda hjá stefnda. Þá hefði stefnandi ekki gætt þess að slíkrar kröfu yrði getið í ársreikningum félagsins, sem hún skyldi undirrita lögum samkvæmt sem framkvæmdastjóri. Að auki var óupplýst hvernig farið hafi verið með skattskil vegna útgjalda stefnanda í eigin þágu en sem framkvæmdastjóri félagsins hafi stefnandi sjálf borið ábyrgð á því.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. maí 2024

E-662/2023

Arnar Grétarsson (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður) gegn Knattspyrnufélagi Akureyrar (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um árangurstengda greiðslu sem hann taldi sig eiga rétt á úr hendi stefnda vegna starfa hans sem knattspyrnuþjálfari meistaraflokks karla hjá stefnda. Ennfremur var fallist á að krafan væri launakrafa sem greiða bæri orlofslaun af í samræmi við 1. gr. laga nr. 30/1987. Kröfu stefnanda um greiðslu lífeyrisiðgjalda af kröfunni var aftur á móti vísað frá dómi. Þá féllst dómurinn á kröfu stefnda um frádrátt ferðakostnaðar frá árangurstengdu greiðslunni til stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. október 2019

E-4187/2018

Sigurður Guðmundsson Lúðvík Örn Steinarsson gegn Borgun hf Stefán A Svensson

Deilt um rétt fjármálafyrirtækis til að fella niður frestaðan hluta kaupauka eða árangurstengdrar þóknunar fyrrum starfsmanns með vísan til reglna Fjármálaeftirlitsins um kaupaaukakerfi fjármálafyrirtækja.