Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Stjórnarmaður

Landsréttur birt 17. október 2024

276/2023

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Sigurberg Inga Pálmasyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Pétri Péturssyni (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður, Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

S og P voru ákærðir fyrir meiriháttar skattalagabrot, S sem daglegur stjórnandi og varamaður í stjórn og P sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður, með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum nánar tiltekins einkahlutafélags og ekki staðið ríkissjóði skil á innheimtum virðisaukaskatti, sem og fyrir að hafa ekki staðið skil á staðgreiðsluskilagrein einkahlutafélagsins vegna staðgreiðslu opinberra gjalda og ekki staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda. Í dómi Landsréttar var lagt til grundvallar að daglegur rekstur félagsins hefði verið í höndum S, þar með talin skil á skilagreinum til skattyfirvalda og skattskil félagsins. P hefði verið skráður stjórnarformaður og framkvæmdastjóri félagsins. Hefðu þeir báðir borið ábyrgð á stjórn félagsins og fjármálum. Var því slegið föstu að S hefði af ásetningi gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök en P hefði sýnt af sér stórkostlegt hirðuleysi við stjórn félagsins og með því einnig gerst sekur um þá háttsemi sem hann var sakaður um. Var refsing S ákveðin fangelsi í 16 mánuði og honum gert að greiða sekt til ríkissjóðs en sæta ella fangelsi í 240 daga. P var gert að sæta fangelsi í níu mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár og honum gert að greiða sekt til ríkissjóðs en sæta ella fangelsi í 240 daga.

Landsréttur birt 9. desember 2022

304/2021

Sigurður Andrésson (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn LOB ehf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

L ehf. og SAV ehf., sem var í eigu S, gerðu með sér verksamning þar sem L ehf. tók að sér að framleiða og reisa forsteyptar einingar í hótelbyggingu að Hverfisgötu 103 í Reykjavík. Vegna ágreinings aðila krafðist L ehf. kyrrsetningar hjá SAV ehf. til tryggingar kröfu að fjárhæð 94.346.645 krónur. Sýslumaður varð við þeirri beiðni og kyrrsetti réttindi SAV ehf. yfir fasteigninni að Hverfisgötu 103 og að auki hlutabréf í H ehf. að því marki sem kaupsamningsgreiðsla vegna eignarinnar hrykki ekki upp í kröfur L ehf. Með dómi héraðsdóms í máli L ehf. til staðfestingar á gerðinni var fallist á kröfu hans að fjárhæð 56.986.195 krónur að viðbættum dráttarvöxtum og að frádreginni tilgreindri innborgun. Hafði H ehf. þá tekið við skyldum SAV ehf. eftir samruna félaganna. L ehf. fékk ekki greiddar nema 3.082.073 krónur af hinni dæmdu fjárhæð og höfðaði mál á hendur S til heimtu skaðabóta. Byggði L ehf. á því að S hefði með saknæmum og ólögmætum hætti gert ráðstafanir til að tæma SAV ehf. og H ehf. og spilla gildi kyrrsetningargerðarinnar. Í dómi Landsréttar var ekki fallist á að S hefði brugðist skyldum sínum sem stjórnarmaður í SAV ehf. við innheimtu söluandvirðis Hverfisgötu 103 eða að honum hefði sem stjórnarmanni í SAV ehf. og H ehf. borið að leita gjaldþrotaskipta á búi félaganna. Þá var L ehf. ekki talinn hafa sýnt fram á að hann hefði fengið kröfu sína greidda ef ekki hefði komið til tilgreindrar háttsemi S við innheimtu LB hf. á kröfu þess síðastnefnda eða að samruni SAV ehf. og H ehf. hefði sem slíkur valdið honum tjóni. Á hinn bóginn benti Landsréttur á að uppsetning félaga S hefði leitt til þess að allir stjórnunarþræðir SAV ehf., H ehf. og SAB ehf. hefðu legið hjá S sjálfum og skipti það máli við mat á því hvort saknæm háttsemi hefði falist í sölu fasteignar H ehf., svokallaðs Landsbankareits, til SAB ehf. Rakti Landsréttur þær skyldur sem fylgja kyrrsetningu samkvæmt lögum nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl. og efni matsgerða dómkvaddra manna. Komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að Landsbankareiturinn hefði verið seldur á undirverði út úr H ehf. Með því hefði S vikið með saknæmum hætti frá þeim kröfum sem gera hafi mátt til hans og rýrt gildi kyrrsetningarinnar. Eðlileg sala reitsins hefði aukið verulega möguleika H ehf. til að standa við skuldbindingar sínar, þar á meðal gagnvart L ehf., og gögn málsins bæru með sér að L ehf. hefði að minnsta kosti að verulegu leyti notið þeirra viðbótarfjármuna sem runnið hefðu inn í H ehf. við eðlilega sölu. Var S því dæmdur til að greiða L ehf. skaðabætur sem ákveðnar voru að álitum 45.000.000 króna.

Landsréttur birt 24. júní 2021

359/2021

A ehf (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn B og C (Kristín Edwald lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A ehf. gegn B og C var vísað frá dómi. A ehf. var í eigu varnaraðila, B að 33% hlut en C að 67% hlut. C var eini stjórnarmaður A ehf. og tók ákvörðun um að fela lögmanni að höfða málið. Í úrskurði Landsréttar kom fram að samkvæmt fortakslausu ákvæði 48. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög hafi C verið óheimilt að taka þátt í meðferð máls til ákvörðunar um málshöfðun A ehf. gegn sér. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.