Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Samningskrafa

Hæstiréttur birt 27. júní 2011

325/2011

Nv, Raiffaisenbank, International, AG og DZ Bank AG (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Sögu Fjárfestingarbanka hf (Björgvin Þorsteinsson hrl)

B o.fl. kærðu úrskurð héraðsdóms þar sem máli þeirra á hendur S hf. var vísað frá dómi. B o.fl. lýstu kröfum við slit SB hf. og samþykkti slitastjórn þær sem forgangskröfur samkvæmt 112. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. B o.fl. mótmæltu þeirri afstöðu. Eignir SB hf. nægðu ekki til fullrar greiðslu krafna og var leitað nauðasamnings við kröfuhafa í samræmi við 3. mgr. 103. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Var nauðasamningurinn staðfestur 18. ágúst 2010. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að réttur kröfuhafa eftir ákvæðum 1. mgr. 120. gr. laga nr. 21/1991 til að mótmæla afstöðu skiptastjóra til viðurkenningar kröfu sem annar kröfuhafi hefði gert væri samkvæmt orðum ákvæðisins háður þeirri forsendu að niðurstaða um hana hefði áhrif við skiptin á hagsmuni þess sem hefði uppi mótmælin. Nauðasamningur bindi lánadrottna og þá sem kæmu í þeirra stað. Engin frávik væri að finna í lögum nr. 21/1991 frá reglum í 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála um að sá sem leiti dóms þurfi að eiga lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr kröfu sinni. Var hinn kærði úrskurður staðfestur með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hans.