Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Laun í uppsagnarfresti

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. janúar 2026

E-5592/2025

Hildur K. Sveinbjarnardóttir og Elís Orri Guðbjartsson (Elías Karl Guðmundsson lögmaður) gegn Arion banka hf (Snorri Stefánsson lögmaður)

Riftun stefnda á ráðningarsamningum stefnenda var talin ólögmæt og var því fallist á kröfur stefnenda um greiðslu launa í uppsagnarfresti ásamt dráttarvöxtum. Ennfremur var fallist á að annar stefnenda ætti rétt á greiðslu mismunar á fullum launum og greiðslum í fæðingarorlofi. Kröfu stefnenda um miskabætur var hins vegar hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2025

E-6908/2024

A (Ingvi Hrafn Óskarsson lögmaður) gegn B ehf (Sigmar Páll Jónsson lögmaður)

Stefnandi gegndi starfi framkvæmdastjóra hjá stefnda. Í kjölfar uppsagnar krafðist stefnandi vangreiddra launa á uppsagnarfresti, uppsafnaðs ótekins orlofs, greiðslu kaupauka og áfallins lögmannskostnaðar auk málskostnaðar. Fallist var á að stefnandi ætti inni ógreidd laun á uppsagnarfresti sem næmi einum mánuði. Þá var fallist á að stefnda bæri að greiða stefnanda ógreitt orlof en hafnað var að nægilega skýrt hafi verið leitt í ljós að orlof skyldi safnast upp og færast milli orlofsára. Stefndi var sýknaður af kröfu um greiðslu kaupauka þar sem sú krafa hafi niður fallið án endurgjalds samkvæmt ákvæðum ráðningarsamningsins við starfslok stefnanda hjá stefnda. Þá hefði stefnandi ekki gætt þess að slíkrar kröfu yrði getið í ársreikningum félagsins, sem hún skyldi undirrita lögum samkvæmt sem framkvæmdastjóri. Að auki var óupplýst hvernig farið hafi verið með skattskil vegna útgjalda stefnanda í eigin þágu en sem framkvæmdastjóri félagsins hafi stefnandi sjálf borið ábyrgð á því.