Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Hljóðupptaka
L kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu hans um heimild til tiltekinna rannsóknaraðgerða. Í úrskurði Landsréttar kom fram að skilyrðum 1. og 2. mgr. 83. gr. laga nr. 88/2008 laga um meðferð sakamála, sbr. a- og b-liða 1. mgr. 82. gr. sömu laga, fyrir umbeðnum rannsóknaraðgerðum væru uppfyllt. Var því fallist á kröfu L um heimild til umbeðinna rannsóknaraðgerða.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X og Y (
Björn Jóhannesson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem L var heimilað að koma fyrir hljóðupptökubúnaði á heimili X, dvalarstað Y, þó þannig að L var talið óheimilt að taka upp samtöl og hljóð með slíkum búnaði á heimili X, dvalarstað Y, eftir handtöku X og Y.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn
X (enginn)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu um heimild til að koma fyrir og nota hljóðupptökubúnað á heimili X þar sem ekki hefðu verið færð fram fullnægjandi rök fyrir því að uppfyllt væru skilyrði 83. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
J krafði Í um miskabætur vegna handtöku og rannsóknaraðgerða sem beindust að honum í tengslum við rannsókn lögreglu á ætluðum innflutningi J og nafngreinds manns á miklu magni fíkniefna. Fólust aðgerðirnar í því að eftirfararbúnaður var settur í tvær bifreiðar J, hlustun fór fram í einu herbergi á heimili hans, hlustað var á símtöl í tveimur símum hans auk þess sem leit var gerð í íbúð hans og bifreið. Var máli J lokið án þess að ákæra væri gefin út og það því fellt niður í skilningi 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í dómi Hæstaréttar kom fram að J hefði verið sviptur frelsi í fimm og hálfa klukkustund þegar hann var handtekinn. Ætti hann því rétt á miskabótum eftir 2. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar. Var jafnframt talið að hann ætti rétt til miskabóta á grundvelli sama ákvæðis laga nr. 88/2008 vegna fyrrgreindra rannsóknaraðgerða. Með leit í íbúð og bifreið J hefði verið brotið gegn friðhelgi hans, sbr. 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar. Enda þótt hann hefði samþykkt þær aðgerðir hefði hann ekki firrt sig rétti til bóta, þar sem hann hefði ella mátt búast við að lögregla færi fram á dómsúrskurð til leitar. Þá var ekki talið að rök stæðu til þess að lækka bætur á þeim grunni að J hefði sjálfur stuðlað að aðgerðunum. Að þessu virtu og því hve hlustun í íbúð J hefði falið í sér tilfinnanlega skerðingu á friðhelgi einkalífs hans, var Í gert að greiða J 1.200.000 krónur í miskabætur.