Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Hjón - Ráðstöfun eignar að öðru leyti
Stefnda gert að greiða stefnanda 22.613.680 krónur. Krafa stefnanda byggði á skilnaðarsamkomulagi hennar og stefnda, um að stefndi keypti hennar hluta í fasteign sem þau áttu í sameiningu, en eignin skyldi þó án tafar sett í sölumeðferð, og seldist hún á hærri verði en nam matsverði sem aðilar höfðu komið sér saman um, skyldi söluverðinu skipt jafnt.
Ákvörðun sýslumanns um að stöðva aðfarargerð var felld úr gildi og ákveðið að gerðinni skyldi framhaldið.
Ágreiningi fyrir skiptastjóra um hvort fasteign verði talin séreign og falli utan skipta eða ekki vísað til hérasdóms. Talið var að fasteignin væri séreign að hluta og teldist ígildi fyrri séreignar og félli því utan skipta að hluta til. Kröfu varnaraðila um að hluti eignarinnar teldist séreign sín í skjóli hjúskaparsamnings gerðum í Þýskalandi hafnað. Þá var kröfu varnaraðila um endurgreiðslu lánsfé vísað frá dómi þar sem þeim ágreiningi hafði ekki verið vísað til héraðsdóms af hálfu skiptastjóra. Málskostnaður var látinn falla niður.