Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lykilorð: Höfundarréttarmál

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

E-3001/2025

SA Tintinimaginatio (Alexander Hafþórsson lögmaður) gegn Pennanum ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

Deilt var um það hvort bótaskyld brot gegn höfundalögum hefðu átt sér stað með sölu stefnda á veggspjöldum íslensks listamanns þar sem teiknimyndapersónur og önnur fyrirbæri úr teiknimyndasögum um ævintýri Tinna eftir Hergé höfðu verið sett í íslenskt umhverfi og samhengi. Fallist var á að brotið hefði verið gegn bæði fjárhaglegum rétti og sæmdarrétti (rétti til nafngreiningar höfundar) við sölu verkanna. Var stefndi því dæmdur til greiðslu bæði skaða- og miskabóta en skaðabótakrafa stefnanda var þó lækkuð talsvert. Í því ljósi var stefnda aðeins gert að greiða hluta málskostnaðar stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. mars 2026

E-2249/2025

Björn Brynjúlfur Björnsson (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) gegn Storytel Iceland ehf (Gunnar Sturluson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af skaða- og miskabótakröfum stefnanda þar sem ekki var talið sannað að með notkun stefnda á heitinu „Sönn íslensk sakamál“ við birtingu hljóðbókarþátta í efnisveitu stefnda hefði verið brotið gegn réttindum stefnanda samkvæmt ákvæðum höfundalaga, laga um vörumerki og lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. apríl 2020

E-3554/2015

Guðbjörg Jónsdóttir, Þórhildur Jónsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Sveinbjörn Jónsson, Kristinn Jónsson, Katrín Jónsdóttir, Þorsteinn Jónsson, Sigrún Jónsdóttir og Gunnar Rafn Jónsson (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður) gegn Familíunni ehf, Þorsteini Bachmann, Hrefnu Bachmann, Margréti Þorsteinsdóttur (Flóki Ásgeirsson lögmaður) og Fabrik ehf (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Höfundarréttarmál.

Fallist var að hluta til á kröfur stefnenda um að stefndu greiddu þeim skaða- og miskabætur vegna óheimillar sýningar, eintakagerðar og breytinga á verkum föður stefnenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2017

E-2227/2016

Hallur Kristvinsson, Vilhjálmur Guðmundsson, Páll Guðmundsson, Ragnheiður Þ Guðmundsdóttir og Andri Þór Guðmundsson (Einar Páll Tamimi hdl) gegn Þreki ehf. (Gestur Jónsson hrl), Úti og inni sf. (Árni Gestsson hdl), Ara Má Lúðvíkssyni (Almar Þór Möller hdl) og Baldri Ólafi Svavarssyni og Reykjavíkurborg (Ragnar Tómas Árnason hrl)

Máli vísað frá dómi

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. janúar 2012

E-2691/2011

Ólafur Einarsson Björg Marteinsdóttir (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn DV ehf og Jóhannesi Kristjáni Kristjánssyni, til vara (Ólafur Örn Svansson hrl)

Stefnda dæmt til greiðslu skaðabóta vegna óheimillar birtingar mynda í eigu stefnenda í dagblaði. Þá var stefnda gert að birta forsendur og niðurstöður dómsins í blaðinu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. maí 2007

E-1569/2006

Hugarflug ehf og Ingi Gunnar Jóhannsson (Erla Svanhvít Árnadóttir hrl) gegn Auglýsingastofu E. Backman ehf (Halldór Helgi Backman hrl)

Vísað var frá dómi kröfu H um viðurkenningu á höfundarrétti félagsins á tilteknum beinlínukortum sem það hafði gefið út. A var að öðru leyti sýknað af kröfum H og I sem byggðust á ætluðum brotum A á hugverkarétti H og I vegna útgáfu beinlínukorta af samgöngukerfi Strætó bs.