Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Eignarréttarfyrirvari
Viðurkenndur var eignarréttur stefnanda að fimm hundum og stefndi dæmdur til að afhenda stefnanda hundana að viðlögðum dagsektum. Ekki var fallist á kröfu um að áfrýjun frestaði ekki aðför.
Hafnað kröfu sóknaraðila um að krafa hans yrði viðurkennd sem sértökukrafa í þrotabú. Varakröfum sóknaraðila einnig hafnað.
Stefndi dæmdur til afhendingar þriggja krana í eigu stefnanda gegn greiðslu flutnings og geymslukostnaðar. Sýknað af kröfu um dagsektir.
Þ hf. krafðist að honum yrði með beinni aðfarargerð afhentar tvær tilteknar vélar sem T ehf. hafði keypt af honum samkvæmt munnlegum samningi. Í reikningi Þ hf. var greint frá kaupunum og verði vélanna. Tveimur dögum eftir útgáfu hans ritaði fyrirsvarsmaður undir yfirlýsingu sem nefnd var eignarréttarfyrirvari. Með vísan til þess að yfirlýsingin væri óskýr í nokkrum atriðum auk þess sem fyrir lægi að T ehf. hefði greitt Þ hf. þá fjárhæð sem reikningurinn kvað á um og T ehf. hefði að minnsta kosti greitt andvirði verðminni vélarinnar þegar hin umdeilda yfirlýsing var gefin út var talið að ekki væri fullnægt skilyrðum 1. mgr. 78. gr. laga nr. 90/1989 um aðför til að veita Þ hf. umráð yfir vélunum með beinni aðfarargerð. Var úrskurður héraðsdóms því felldur úr gildi.