Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Bókun

Hæstiréttur birt 12. desember 2017

707/2017

Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Hafþór Ólafsson (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Arion banka hf (Karl Óttar Pétursson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu Á og H um að felld yrði úr gildi nauðungarsala á tiltekinni fasteign þeirra sem fram fór að kröfu A hf. Á og H héldu því fram að við byrjun uppboðs á fasteigninni hefði ekki verið leitað boða í fasteignina og ekkert boð hefði komið fram þrátt fyrir að það kæmi fram í bókun í gerðabók sýslumanns. Um þetta vísuðu Á og H til þess að gerð hefði verið hljóðupptaka á síma Á og kæmi þetta hvergi fram. Hefði því ekkert boð verið gert í eignina við byrjun uppboðsins og sýslumanni af þeim sökum borið að fella nauðungarsöluna niður, sbr. 1. mgr. 34. gr. laga nr. 90/1991. Vegna þessara málsástæðna Á og H ákvað Hæstiréttur að gefa aðilunum kost á að leggja fram nánar tiltekin gögn. Af þessu tilefni afhenti A hf. Hæstarétti ljósrit úr gerðabókinni sem bar ekkert með sér sem stutt gæti staðhæfingar Á og H um hvað þar hefði gerst. Taldi rétturinn að ekki yrði slegið föstu að áðurnefnd hljóðupptaka gæfi rétta mynd af því sem fram fór umrætt sinn. Á og H hefðu ekki neytt þess kosts sem þeim var gefinn á að afla vitnisburðar um þessi efni. Að því gættu hefðu Á og H ekki axlað sönnunarbyrði fyrir staðhæfingum sínum gagnstætt ákvæði 3. mgr. 71. gr. laga nr. 91/1991 sem leiddi til þess að byggja yrði á því sem fulltrúi sýslumanns færði í gerðabók. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Hæstiréttur birt 24. mars 2011

493/2010

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir líkamsárás, sbr. 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa slegið A margsinnis með krepptum hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að A hlaut opið beinbrot á nefi, bólgu og mar umhverfis hægra auga og mar við vinstra auga. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að ákærði hefði haft samband við A, sem staddur var á heimili sínu, og fengið hann til að koma þaðan og upp í bifreið, sem ákærði hefði haft til umráða, í því skyni að beita hann ofbeldi. Árásin hefði verið langdregin og harkaleg og brotavilji ákærða einbeittur. Auk þess hefði ákærði hagað aðstæðum þannig að A hefði ekki átt þess kost að komast undan atlögum hans. Var héraðsdómur því staðfestur með vísan til forsendna og refsing X ákveðin óskilorðbundið fangelsi í sex mánuði. Þá var hann dæmdur til að greiða A nánar tilgreindar skaðabætur.

Hæstiréttur birt 27. janúar 2011

407/2010

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir vararíkissaksóknari) gegn X (Hróbjartur Jónatansson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var með ákæru ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 170. gr. sbr. 1. mgr. 169. gr. tollalaga nr. 88/2005 með því að hafa flutt inn til landsins og eigi framvísað nánar tilgreindum varningi með tilskildum hætti við tollgæsluna. Í héraði var X fundinn sekur um brot gegn 170. gr. tollalaga, sbr. 6. gr. og 3. mgr. 27. gr. sömu laga og 2. gr. reglugerðar nr. 630/2008 um ýmis tollfríðindi. Fyrir Hæstarétti byggði ákærði á því að vörn hans hafi orðið áfátt vegna meðferðar málsins í héraði. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að skýra verði 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála svo að veita skuli ákærða tíma og aðstöðu til að undirbúa vörn sína miðað við breyttan lagagrundvöll málsins. Var héraðsdómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar á ný.

Hæstiréttur birt 27. janúar 2011

148/2010

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari) gegn X og Y (Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X og Y voru með ákæru ákærðir fyrir brot gegn 231. og 168. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa farið í heimildarleysi inn á flugvallarsvæði, með því að klifra yfir girðingu, og hlaupið mörg hundruð metra innan svæðisins og raskað með því öryggi loftfara. Í héraði voru ákærðu fundnir sekir um brot gegn 1. mgr. 70. gr. sbr. 141. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir, 1. mgr. 19. gr. sbr. 40. gr. reglugerðar nr. 361/2005 um flugvernd og 1. mgr. 168. gr. almennra hegningarlaga. Fyrir Hæstarétti byggðu ákærðu á því að vörn þeirra hafi orðið áfátt vegna meðferðar málsins í héraði. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að skýra verði 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála svo að veita skuli ákærða tíma og aðstöðu til að undirbúa vörn sína miðað við breyttan lagagrundvöll málsins. Var héraðsdómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar á ný.

Hæstiréttur birt 18. nóvember 2010

82/2010

Ísak Sverrir Hauksson (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn Kristni Sverrissyni og Tryggva Sverrissyni (Jón Auðunn Jónsson hrl)

K og T kröfðu Í um eftirstöðvar reikninga, sem útgefnir voru í tilefni framkvæmda K og T við fasteign Í að Víðihlíð 43 í Reykjavík. Í gerði gagnkröfu á hendur K og T, en henni var hafnað í héraði að undanskilinni kröfu vegna galla á flísalögn í bílskúr sem K og T höfðu viðurkennt að bera ábyrgð á. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að telja yrði að héraðsdómur, sem skipaður var tveimur sérfróðum meðdómendum, hefði við þessa úrlausn tekið fullnægjandi afstöðu til matsgerða sem lutu að flísalögn í bílskúrnum. Væru ekki efni til annars en að staðfesta niðurstöðu dómsins um þetta. Þá var héraðsdómur staðfestur að öðru leyti með vísan til forsendna þar sem fallist var á kröfu K og T en þeir sýknaðir af kröfu Í, um annað en það sem að framan greinir.