Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Alþjóðleg vernd

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. október 2025

E-7841/2024

A, B, C, D og E (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Stefndi, Íslenska ríkið, var sýknað af kröfum stefnenda um ógildingu á úrskurði Kærunefndar Útlendingamála, sem staðfesti ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum í málum stefnenda. Var ekki fallist á málsástæður stefnenda um að borið hafi að veita þeim slíka alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi að lögum eins og á stóð eða að málsmeðferð hafi verið þannig áfátt að varðaði ógildingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2025

E-504/2025

A (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógiltur yrði með dómi úrskurður Kærunefndar útlendingamála þar sem synjað var umsókn stefnanda um alþjóðlega vernd á Íslandi, ásamt því að honum var þá einnig synjað um dvalarleyfi á grunni 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og vísað frá landinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. febrúar 2025

E-1945/2024

A og B (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Ógiltur var úrskurður kærunefndar útlendingamála þess efnis að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir stefnanda og barns hennar um alþjóðlega vernd hér á landi. Talið var að sérstakar aðstæður í skilningi þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga hefðu mælt með því að taka umsóknirnar til efnismeðferðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. desember 2024

E-1173/2024

A (Sigurður Gústavsson Hafstað lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem endurtekinni umsókn stefnanda um alþjóðlega vernd var vísað frá nefndinni. Íslenska ríkið var sýknað af kröfu stefnanda þar sem talið var að tafir á afgreiðslu umsóknarinnar hefðu verið á hans ábyrgð í skilningi 2. málsliðar 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júlí 2022

E-5409/2021

A (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem staðfest var ákvörðun Útlendingastofnunar um að hafna umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi og synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var fallist á þá kröfu með vísan til þess að kærunefndin hefði ekki rannsakað með fullnægjandi hætti eða lagt nægilega rökstutt mat á trúverðugleika frásagnar stefnanda varðandi kynhneigð hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. desember 2020

E-6830/2020

A og B og fyrir hönd ólögráða sonar þeirra C (Magnús Davíð Norðdahl lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Krafist ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem hafnað var frestun réttaráhrifa úrskurðar um að synja um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Sýkna.