Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Afhendingarréttur

Hæstiréttur birt 28. október 2004

160/2004

Ólöf Guðnadóttir Þrúður Sigríður Guðnadóttir og Dagný Guðnadóttir (Kristján Ólafsson hrl) gegn Tómasi Kristjánssyni (Páll Arnór Pálsson hrl)

Fasteignakaup. Gjalddagi. Afhendingarréttur. Viðtökudráttur. Dráttarvextir. Kröfugerð. Frávísun máls frá héraðsdómi. Af hálfu Ó, Þ og D, seljenda fasteignar, var því haldið fram að kaupandinn, T, hafi átt að afhenda þeim húsbréf við undirritun kaupsamnings í mars 2000. Voru húsbréfin boðin fram í maí s.á. en synjað viðtöku þar til samkomulag náðist milli aðila í desember s.á. Kröfðust seljendur greiðslu þess mismunar sem var á markaðsvirði bréfanna við undirritun kaupsamnings og við afhendingu þeirra, auk dráttarvaxta af mismuninum. Frá því að málið var höfðað og þar til það var munnlega flutt fyrir Hæstarétti hafði grundvöllur og útreikningur dómkröfu þeirra verið á reiki og röksemdir að hluta í ósamræmi við kröfugerð. Voru slíkir annmarkar á málatilbúnaði seljenda að óhjákvæmilegt var að vísa málinu sjálfkrafa frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 13. febrúar 2003

383/2002

Ólafur Lúðvíksson og Guðmundína Kolbeinsdóttir (Gylfi Thorlacius hrl) gegn Byggingafélaginu Sólhofi ehf (Þorsteinn Júlíusson hrl)

ÓL og G keyptu íbúðarhúsnæði í byggingu af ÓÞ, en S ehf. tók síðar við réttindum og skyldum ÓÞ vegna framkvæmdanna. Verulegar vanefndir urðu á framkvæmd verksins og héldu ÓL og G að sér höndum með nánar tilteknar kaupsamningsgreiðslur. Fór svo að S ehf. höfðaði mál gegn ÓL og G til greiðslu eftirstöðva kaupverðsins auk ýmiss kostnaðar í tengslum við viðskiptin. Var ÓL og G gert að greiða S ehf. stærstan hluta af kröfunni, en frá henni dregin gagnkrafa sem aðilar höfðu orðið sammála um að ÓL og G ætti á hendur S ehf. Var upphafstími dráttarvaxta miðaður við þann dag sem S ehf. aflétti tryggingabréfi að fjárhæð 10.000.000 krónur af íbúð ÓL og G.